Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 26. janúar 2015 18:30
Elvar Geir Magnússon
El Shaarawy frá í sex vikur
Stephan El Shaarawy.
Stephan El Shaarawy.
Mynd: Getty Images
Stephan El Shaarawy verður frá í sex vikur eftir að hafa brotið bein í fæti. AC Milan tilkynnti þetta í dag.

El Shaarawy fann fyrir sársauka í lokin á 3-1 tapleiknum gegn Lazio um helgina.

AC Milan tókst ekki að vinna leik í janúar og það er mikil pressa á Filippo Inzaghi þjálfara.

Franski landsliðsmaðurinn Jeremey Menez sagði í viðtali í dag að leikmenn stæðu við bakið á Inzaghi en hvort það nægir á eftir að koma í ljós.

Milan mætir Lazio í ítalska bikarnum á morgun.
Athugasemdir
banner
banner