Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   þri 30. apríl 2024 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Vardy hefur alltaf skorað mörk og mun alltaf gera það"
Mynd: Getty Images

Jamie Vardy framherji Leicester skoraði tvö mörk þegear liðið tryggði sér titilinn í Championship deildinni með 3-0 sigri gegn Preston North End í gær.


Leicester mun því spila í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en þessi 37 ára gamli framherji sagði fyrir leikinn í gær að hann væri tilbúinn að taka slaginn með liðinu á næstu leiktíð.

Enzo Maresca stjóri Leicester var spurður út í framtíð enska framherjans eftir leikinn.

„Vardy hefur alltaf skoraði mörk í lífinu og mun alltaf gera það. Við erum ánægð með hann, við höfum núna tíma til að setjast niður og taka rétta ákvörðun," sagði Maresca.


Athugasemdir
banner
banner