

Puskas Arena - Búdapest
Umspil fyrir EM
Aðstæður: Toppaðstæður!
Dómari: Björn Kuipers (Hol)
Áhorfendur: Áhorfendabann













Þakka fyrir lesturinn í dag og í kvöld. Það er fullt af efni á leið inná síðuna.

Hannes kemur inni í teiginn en við náum ekki að koma boltanum á markið. Sóknarbrot og Sverrir fær gult.
Rétt fyrir annað mark Ungverja átti íslenska liðið stórhættulega sókn, Jón Daði fékk skotfæri en náði ekki nægilega góðu skoti og boltinn í varnarmann.
Það er svo skelfilega stutt á milli í þessu.

Þetta er hriiiikalegt. Hinn tvítugi Szoboszlai að reynast hetja Ungverja. Frábær afgreiðsla í stöngina og inn.

Þetta var hrikalega klaufalegt. Hörður Björgvin sparkar knettinum í Kára og boltinn dettur skyndilega á Nego sem er í dauðafæri og skorar.
Jæja þarna fór boltinn loks í markspyrnu!

Aron Einar var svona solid 7/10 à einkunn à fyrri hálfleik en er að vinna með 15/10 à seinni þannig heildar einkunn upp á 11.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) November 12, 2020
Besti landsleikur Kára à treyjunni? #fyririsland #fotboltinet
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) November 12, 2020



Hann kemur orði á að vesen skapast þegar Aron stígur upp, Rúnar of senn í færslunni. Skapaði smá vesen 1-2 sinnum í fyrri hálfleik og svo núna aftur.
Sömu 22 og byrjuðu leikinn sem hefja seinni hálfleikinn.
Miklu betri frammistaða à fyrri hálfleik en ég þorði að vona fyrir leik, strákarnir eru að láta þetta Ungverska lið spila vel undir pari að sem af er.
— Einar MatthÃas (@einarmatt) November 12, 2020
Hannes verið hrikalega flottur í fyrri hálfleik.
Ísland virðist vera mjög ánægt með hvernig heimamenn eru að spila. Virðast vera að mæta þeim akkúrat þar sem þeir bjuggust við. Einstaka færslur á miðjunni sem hafa klikkað og skapað smá hættu.
Hannes, Aron, Gylfi og Jói Berg allir átt rosalega flottan fyrri hálfleik. Gamla bandið!
Kuipers flautar til leikhlés. Við erum yfir í hálfleik eftir aukaspyrnumark Gylfa á 11. mínútu.
Hannes verulega reiður eftir þessa aukaspyrnu... veggurinn ekki réttur.
Það venst svo hratt alltaf að halda með liðinu sem er þétt, situr aftarlega á vellinum og stoppar flæðið à leiknum með þvà að brjóta! #hjartaðogviljinn #fyrirÃsland
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) November 12, 2020
Hamren ljónheitur #fotboltinet pic.twitter.com/19efRxJWUW
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
Alfreð með sendingu fyrir og Birkir Bjarnason var að fara að stýra boltanum í netið þegar Andre Botka fleygir sér í þetta og bjargar í horn!!! STÓRHÆTTA!!!
Ãnægður með markið @hanneshalldors #fotboltinet pic.twitter.com/HxiA369eEH
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
HÆTTULEG hornspyrna. Orban með skallann en beint á Hannes.
Tvö mjög góð skallafæri frá heimamönnum með skömmu millibili.
STOP THE COUNT!!!
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) November 12, 2020
Gylfi Sigurdsson is just the third player to score 25 goals for the Iceland national team.
— Squawka Football (@Squawka) November 12, 2020
He's just one away from equalling the all-time record. 🇮🇸 pic.twitter.com/bvHq6A3LxS
Gúllas með spaghettihendur à markinu! #Fotboltinet
— Brynjar Þór Bergsson (@binnithor) November 12, 2020
JÃJÃJÃJÃJÃ!!!!!
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) November 12, 2020
1-0 #fyririsland
Hver annar en Gylfi Þór Sigurðsson úr aukaspyrnu! pic.twitter.com/Uxav1B365c

GYLFI HEFUR KOMIÐ ÍSLANDI YFIR ÚR AUKASPYRNU!!! Okkar besti maður!
Peter Gulacsi í marki Ungverja átti að verja þetta, skotið beint á hann, en hann er með smjör á hönskunum!!!
Ok formaður fjárhagsnefndar er við það að fá hjartaáfall. Koma svo strákar 💪😀 Ãfram Ãsland #fotboltinet #Euro2021
— Borghildur Sig (@missbvip) November 12, 2020

Ég hef engar áhyggjur af liðinu okkar. En ég hef áhyggjur af dómaraskandal à hag Ungverja sem gestgjafaþjóð EM. #samsæriskenningin
— Hans Steinar (@hanssteinar) November 12, 2020
Heyrist í Kára Árnasyni: "Þetta er okkar fokking leikur, það eru hreinar línur" (Afsakið orðbragðið)
Komið að þjóðsöngvum!
Viðurkenni að matarlystin var ekkert spes. Leikurinn loksins að byrja. Koma svo strákar ðŸ‡®ðŸ‡¸âš½ï¸ Ãfram Ãsland! #hunisl
— Helga Birkisdóttir (@helgabirkis) November 12, 2020
Kæru Ãslendingar - Þetta er okkar staður - Þetta er okkar stund Ãfram Ãsland #fyririsland #EURO2020 pic.twitter.com/PMdD7gFHYQ
— Páll Sævar Guðjónsso (@PallSaevar) November 12, 2020
Maður var nú alveg nógu gÃraður fyrir en við það að heyra Freysa nota frasann "Við erum klárir à þessa orrustu" þá svoleiðis leifturpeppaðist maður á núll einni #fotboltinet
— Engilbert Aron (@engilbertaron) November 12, 2020
Allt klárt! #Fotboltinet pic.twitter.com/Zgw7KmepwL
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
Þið megið kalla það jinx en ég er búinn að kæla þessa aumingjalegu kampavÃnsflösku #fotboltinet pic.twitter.com/epXu2ICobG
— Óðinn Svan Óðinsson (@OdinnSvan) November 12, 2020
Norður-Makedónía er komin á Evrópumótið í fótbolta í fyrsta sinn frá því að Júgóslavía féll. Það var gamla brýnið Goran Pandev sem skoraði eina markið gegn Georgíu. Sjá nánar.
Það er allt undir í leiknum; sigurliðið kemst inn á Evrópumótið næsta sumar.
"Það er loksins komið að þessu, veit ekki hvað er búið að vera löng bið. Spennustigið er mjög gott. Ég er nokkuð rólegur og líður vel. Ég er sannfærður um að liðið sé eins vel undirbúið og kostur er á. Það hefur gengið eins og í sögu miðað við stuttan undirbúning," sagði Freyr í viðtali við Stöð 2 Sport.
Rúnar Már Sigurjónsson kemur inn í byrjunarliðið fyrir Arnór Ingva Traustason, sem er fjarri góðu gamni.
"Það sést á liðsvalinu í heild sinni að það er verið að setja marmarakúlurnar á 'chemistry-ið' í liðinu. Það er augljóst að mál, eins og gegn Rúmeníu, að við erum að veðja á leikmenn sem ná virkilega vel saman þegar allt er undir."
Birkir Bjarnason fer út á vinstri kantinn og Rúnar Már kemur inn á miðjuna. Freyr segir að staðan sem Birkir fer í komi til með að reynast mjög mikilvæg gegn 3-5-2 leikkerfi Ungverja og að Rúnar Már komi inn á miðjuna með mikla taktíska þekkingu.
"Þetta eru engin geimvísindi. Við spilum okkar leik og þið munuð fá að sjá íslenska landsliðið sem öll þjóðin þekkir," sagði Freyr.
Ma esti kezdÅ‘csapatunk! #magyarok #csakegyutt âš½ï¸ #HUNISL ðŸ‡ðŸ‡º-🇮🇸 pic.twitter.com/8k3lDEhXg3
— MLSZ (@MLSZhivatalos) November 12, 2020
Rétt val á byrjunarliðinu að mÃnu mati. Rúnar Már er öflugur miðjumaður sem á það til að skora og leggja upp. ÃFRAM ÃSLANDðŸ‘âš½ï¸
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) November 12, 2020
Gamla bandið kemur saman og er ein breyting á byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn Rúmeníu í síðasta mánuði. Arnór Ingvi Traustason er ekki með í dag og kemur Rúnar í liðið í hans stað.
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
4. Guðlaugur Victor Pálsson
6. Ragnar Sigurðsson
7. Jóhann Berg Guðmundsson
8. Birkir Bjarnason
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Alfreð Finnbogason
14. Kári Árnason
16. Rúnar Már S Sigurjónsson
17. Aron Einar Gunnarsson (f)
18. Hörður Björgvin Magnússon
England og Ísland hafa fengið leyfi frá breskum stjórnvöldum til að spila á Wembley, þjóðarleikvangi Englands, í Þjóðadeildinni í næstu viku. Sjá nánar.
Hannes rýnir à Ungverjaleikinn: Held að þetta ráðist á einu marki https://t.co/mTefslYD5T
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
"Stóra spurningin er hvort okkar langbesti leikmaður verði i stuði? Ég hef ekki séð okkur tapa oft þegar hann er í stuði. Ef Gylfi er í stuði þá förum við á EM. Gylfi er langmikilvægasti leikmaðurinn í liðinu. Þú sérð hvernig hann klárar Rúmeníuleikinn. Við höfum ekki átt möguleika þegar hann er ekki góður Þetta stendur og fellur með honum. Við eigum besta manninn á vellinum í kvöld."
Smelltu hér til að horfa á nýtt viðtal við Hannes þar sem hann rýnir í leikinn.
"Ef Ungverjar ætla að spila sitt venjulega kerfi, 3-5-2 (5-3-2), þá geri ég ráð fyrir því að við tökum mann inn sem nýtist vel í stöðu sem aukamaður á miðju. Ef Rúnar myndi koma inn, þá meikar það sens... Við erum með nokkra möguleika. Sama hvað finnst mér líklegt að við séum að spila 4-5-1 gegn kerfi þeirra. Hvort að Gylfi sé þá ekki frammi en færist aftar á miðjuna, þá sérstaklega í varnarleiknum."
"Með uppleggið í síðustu leikjum, þá höfum við verið að pressa hærra en við höfum verið að gera áður. Þá er spurningin hvort það hafi verið gert til að drilla inn eitthvað ákveðið gegn Ungverjum. Ég held að Hamren, Freyr og allir séu búnir að kortleggja þá ansi vel og finna veikleika. Ég held að við munum ráðast á veikleika þeirra ansi vel."
"Hvort þeir sitji djúpt eða standi vel, þá er það alltaf þannig að Ungverjarnir eru með sterkari yfirtölu á miðjunni ef þeir spila 3-5-2. Einhvern veginn verðum við að svara því og Rúnar, það hljómar alls ekki vitlaust. En við erum með nóg af möguleikum og nóg af mönnum sem geta leyst þau verkefni í mismunandi stöðum sem þarf að leysa."
Smelltu hér til að horfa á nýtt viðtal við Hannes
Sviðið er klárt fyrir Ungverjaland ðŸ‡Â🇺 - 🇮🇸 ÃÂsland àBúdapest #fotboltinet pic.twitter.com/TiGm151euR
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
Það er ekki bara Ungverjaland - Ísland í kvöld. Átta þjóðir eru að fara að keppa í úrslitaleikjum um sæti á EM, leikið til þrautar og mikið stuð. Fyrsti leikurinn hefst eftir rúman klukkutíma.
17:00 Georgía - Norður-Makedónía
19:45 Serbía - Skotland
19:45 Norður-Írland - Slóvakía
19:45 Ungverjaland - Ísland
Ein mesta óvissan í byrjunarliði Ungverja snýr að því hver byrjar með Adam Nagy og Dominik Szoboszlai á miðjunni. David Siger (Ferencvaros) og Zsolt Kalmar (DAC) berjast um sæti þar.
Í vinstri vængbakverði stendur vali á milli Attila Fiola og Filip Holender. Fiola er öflugri varnarlega en Holender er öflugri sóknarlega.
Lykilmenn Ungverja eru markvörðurinn Peter Gulacsi (RB Leipzig), varnarmaðurinn Willi Orban (RB Leipzig) og miðjumaðurinn Dominik Szoboszlai (RB Salzburg). Fjórir leikmenn í líklegu byrjunarliði Ungverja spila í þýsku úrvalsdeildinni.
Szoboszlai hefur verið mikið í umræðunni. Hann er bara tvítugur en með rosalegan skotfót og hefur skorað nokkur STÓRglæsileg mörk.
Er kominn úr göngutúrnum. Það helsta sem gerðist á meðan ég rölti um Búdapest:
- Því miður þá tapaði íslenska U21 landsliðið fyrir Ítalíu.
- Zoltan Gera verður á bekknum hjá Ungverjum í kvöld. Þessi fyrrum miðjumaður í ensku úrvalsdeildinni er í dag þjálfari U21 landsliðs Ungverja en leggur sitt á vogaskálarnar í kvöld þar sem Marco Rossi landsliðsþjálfari er fjarri góðu gamni eftir að hafa fengið Covid-19.
- Svo er hægt að minna á að í leiknum í kvöld verða fimm skiptingar leyfðar á hvort lið! Nánar um það hér.
Ég ætla að fá mér smá göngutúr meðfram Dóná og mæti svo aftur klukkan 15:15 og held áfram að hita upp fyrir stórleikinn. Mæli með því að þið fylgist með U21 landsleiknum á meðan. Bæ í bili!
Það var klárlega rétt ákvörðun að taka Arnór Ingva Traustason ekki í þetta verkefni. Liðsfélagi hans hjá Malmö smitaðist af Covid-19 og nú er komið í ljós að Arnór sjálfur er með veiruna! Þetta kemur fram á Vísi.
"Við viljum ekki taka neina áhættu, ég gæti verið með veiruna og smitað út frá mér og valdið usla með því. Það er best fyrir alla að halda öllum öruggum og mér sjálfum líka. Það er besta ákvörðunin sem hægt var að taka núna," sagði Arnór við Fótbolta.net í vikunni en ákveðið var að taka enga áhættu. Sem betur fer!
Fótbolti.net hefur verið með skoðanakönnun á forsíðunni að undanförnu þar sem lesendur eru spurðir út í þeirra tilfinningu fyrir stórleikinn gegn Ungverjalandi.
Íslendingar eru bjartsýnir fyrir leiknum en 64% spá því að Ísland komist á EM. 36% telja að það verði Ungverjar sem hafi betur í kvöld. Það má búast við æsispennandi leik.
Liðið sem vinnur leikinn í kvöld fer á EM og verður í riðli með heimsmeisturum Frakklands, Þýskalandi og Portúgal. Riðill sem er svo sannarlega ekkert slor!
Núna klukkan 13:15 hefst U21 landsleikur Ãslands og ÃtalÃu! Mikilvægur leikur sem @AddiLauf textalýsir à beinni frá heimavelli hamingjunnar #fotboltinet https://t.co/mYb3ThzB3D pic.twitter.com/ijhBbq852w
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
"Ég horfi ekki á þetta sem síðasta dansinn. Það myndi setja of mikla pressu á okkur. Við erum meira að hugsa um það hversu mikið afrek það yrði að ná þriðja stórmótinu í röð," sagði Aron Einar Gunnarsson fyrirliði á fréttamannafundi í gær.
"Við erum langt frá því að vera hættir. Við höfum afrekað frábæra hluti með því að komast tvisvar á stórmót í röð. Það væri frábært afrek að ná því þrisvar í röð. Það veltur líka á okkur að gefa ungu leikmönnunum reynslu og hjálpa þeim að taka við, hvenær sem það verður."
Sjá nánar
Allir Íslendingar vita vel hversu mikilvægt er fyrir Ísland að vinna í kvöld en mikilvægið fyrir heimamenn er líka gríðarlegt. Hér í Ungverjalandi eru menn að tala um einn mikilvægasta landsleik í sögu landsliðsins.
Svo er planið að Puskas Arena verði einn af leikvöngunum sem notaðir verða á EM á næsta ári. Ungverjar sætta sig ekki við neitt annað en að þeir verði með á mótinu.
Smelltu hér til að lesa grein Magnúsar Más Einarssonar þar sem hann rifjar þann leik upp.
Ísland hefur ellefu sinnum mætt Ungverjum í A-landsleikjum karla. Ungverjar hafa unnið sjö sinnum en Ísland aðeins þrisvar. Síðasti sigurleikur Íslands gegn Ungverjalandi kom 1995 í undankeppni EM. Guðni Bergsson, núverandi formaður KSÍ, og Sigurður Jónsson skoruðu mörkin í 2-1 sigri á Laugardalsvelli.
Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur landsliðsins og Ãslenskar fréttir https://t.co/N4KbEq8kdD
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 7, 2020
Smá innsýn à aðstöðu fjölmiðlamanna á Puskas Arena à Búdapest #fotboltinet pic.twitter.com/pF55fMufyP
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
Við lifum svo sannarlega á fordæmalausum tímum. Marco Rossi, landsliðsþjálfari Ungverja, greindist með Covid-19 fyrir leikinn. Skiljanlega er hann mjög pirraður og segist ekki trúa því að þetta hafi gerst rétt fyrir svona mikilvægan leik.
Ítalinn Cosimo Inguscio mun vera á hliðarlínunni í kvöld en hann er aðstoðarþjálfari ungverska liðsins.
Arnar Gunnlaugsson um Ungverjaland - Ãsland #fotboltinet pic.twitter.com/ReRYbdv6Hs
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 12, 2020
Heima á Íslandi er Arnar Laufdal kollegi minn að koma sér fyrir á Víkingsvellinum þar sem U21 landsliðið mætir Ítalíu klukkan 13:15 í gríðarlega mikilvægum leik.
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá þeim leik og sjá byrjunarlið Íslands.
Björn Kuipers dæmir leikinn í kvöld. Hann er 47 ára og hefur um margra ára skeið verið í hópi fremstu dómara heims. VAR tæknin verður á leiknum en VAR dómari er Pol van Boekel. Allir dómarar leiksins koma frá Hollandi.
Eins og áður sagði þá verður leikið til þrautar í kvöld. Við gætum fengið framlengingu og vítaspyrnukeppni.
Arnór Ingvi Traustason er fjarri góðu gamni eftir að liðsfélagi hans hjá Malmö smitaðist af kórónuveirunni. Arnór Ingvi byrjaði á vinstri kantinum gegn Rúmeníu og ljóst er nýr leikmaður verður þar.
Fótbolti.net spáir því að Rúnar Már Sigurjónsson byrji á vinstri kantinum.
Annar möguleiki er að Birkir Már Sævarsson fari í stöðu hægri bakvarðar og Guðlaugur Victor Pálsson byrji á miðjunni. Birkir Bjarnason færist við það á vinstri kantinn en hann hefur oft spilað þá stöðu með landsliðinu.
Ari Freyr Skúlason, Arnór Sigurðsson, Albert Guðmundsson eða Jón Daði Böðvarsson gætu líka byrjað á vinstri kantinum ef að Erik Hamren vill ekki hreyfa mikið við liðinu.
Enska knattspyrnusambandið hefur beðið yfirvöld þar í landi um undanþágu til að íslenska landsliðið fái að koma frá Danmerkur til Englands eftir helgi. Ísland og England eiga að mætast á Wembley næstkomandi miðvikudag í Þjóðadeildinni.
Lestu nánar um þessi tíðindi
Íslenska landsliðið æfði á hinum magnaða Puskas Arena í gær, frábært mannvirki. Við fjölmiðlamenn fengum að fylgjast með fyrstu mínútum æfingarinnar. Allir okkar menn tóku virkan þátt á þeim tíma, þar á meðal Jóhann Berg Guðmundsson sem hefur ekki spilað síðustu tvo leiki Burnley.
Guðni Bergsson formaður KSÍ er mættur til Búdapest og fylgdist með. Hann var að sjálfsögðu með grímu. Það eru afskaplega miklir fjármunir í húfi í kvöld fyrir íslenskan fótbolta. Menn tala jafnvel um verðmætasta leik í sögu íslenska fótboltans!
Ãsland æfir à Búdapest! #fotboltinet pic.twitter.com/Evbwh1SE9U
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 11, 2020
Í vikunni tóku hertar sóttvarnareglur gildi hér í þessari fallegu borg. Þegar við tókum kvöldgönguna í gær minnti borgin á draugaborg og nánast enginn á ferli.
Þessar hertu aðgerðir gerðu að verkum að áhorfendabann er á íþróttaviðburðum. Fyrst var reiknað með að 20 þúsund áhorfendur gætu mætt á leikinn en hann verður hinsvegar nánast tómur. Bara starfsmenn, stjórnarmenn og fjölmiðlamenn.
Hér munum við reyna að stytta biðina eftir leiknum.










