SKÝRSLAN: KA menn kláruðu Sindra á síðustu 15 mínútunum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í leiknum voru í rauninni meiri gæði KA manna og færri mistök. Sindramenn áttu góða spretti og hefðu getað komið boltanum í netið en heilt yfir voru KA menn bæði meira með boltann og með meiri gæði en baráttuglaðir Sindramenn.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Hallgrímur átti góða spretti í leiknum og var réttur maður á réttum stað á síðustu 15 mínútum leiksins þegar hann kláraði leikinn fyrir KA menn með þrennu.
2. Daníel Hafsteinsson
Daníel átti frábærar sendingar í leiknum og góða spretti þar sem hann var síógnandi.
Atvikið
Atvikið sem slökkti svolítið í Sindramönnum var þegar Hallgrímur Mar skoraði úr vítinu þriðja mark KA manna og þá var eftirleikurinn nokkuð auðveldur fyrir KA.
Hvað þýða úrslitin?
KA eru komnir í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins svo einfalt er það!
Vondur dagur
Þrátt fyrir úrslitin er ekki hægt að segja að neinn hafi átt slæman dag í dag. Sindramenn stóðu vel í KA-mönnum fram að síðasta korterinu í leiknum en ekki má gleyma því að KA menn spila í Pepsi Max og Sindramenn í 3. deild svo segja má að frammistaða þeirra hafi stærstan hluta leiksins verið fín þrátt fyrir úrslit leiksins.
Dómarinn - 7
Stærstur hluti leiksins var ágætlega dæmdur en Guðgeir virðist þó hafa gert stór mistök í tvígang í öðru marki KA, annars vegar þegar tveir KA menn virtust vera rangstæði í aðdraganda marksins og hins vegar virtist vera bakhrinding þegar markið var skorað en það þarf þó að skoða betur áður en fullyrt er um það.


