Fotbolti.net
Óliver Magnússon
Mjólkurbikar karla
Hásteinsvöllur
8° hiti og blankalogn
ÍBV
ÍBV
1 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Óskar Elías Zoega Óskarsson 114'1 - 0
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 430

SKÝRSLAN: Stjörnufall í Eyjum

Hvað réði úrslitum?

Eyjamenn skoruðu sigurmark í framlengingunni, Óskar negldi boltanum þá í netið eftir að Haraldur hafði varið skot frá Eyþóri Orra. Varamennirnir réðu því úrslitum í dag.

Bestu leikmenn

1. Telmo Castanheira

Stýrði leik ÍBV virkilega vel á miðjunni, var öflugur sóknarlega og varnarlega. Með góðar sendingar og tæklingar.

2. Matt Garner

Var eins og klettur í vörn ÍBV og vann flest öll einvígin sín. Sýndi að hann er ekki búinn og gæti átt ár eftir í boltanum.

Atvikið

Sigurmarkið. Eyþór Orri nýtti sér mistök í vörn Stjörnunnar og náði skoti á mark sem Haraldur varði, Óskar var mættur eins og gammur á boltann og bombaði honum í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða einfaldlega það að Eyjamenn eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Bikarmeistararnir eru því úr leik og það við fyrstu hindrun.

Vondur dagur

Það voru fáir sem áttu vondan dag í dag, en Guðjón Baldvinsson fær þann heiður. Lítið sem ekkert gekk upp hjá honum og fór hann af velli eftir 65 mínútna leik.

Dómarinn - 7.5

Var flottur í þessum leik, flautaði kannski aðeins of mikið en leikstjórnin var virkilega góð.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.