Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Mjólkurbikar karla
Origo völlurinn
Hlýtt, 12 stiga hiti og stillt
Valur
Valur
1 - 2
FH
FH
0 - 129' Jákup Ludvig Thomsen0 - 261' Atli GuðnasonBirnir Snær Ingason 69'1 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1241
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH henti Íslandsmeisturunum úr Mjólkurbikarnum

Hvað réði úrslitum?

Spilamennska FH-inga. Voru betri eiginlega allan leikinn og manni fannst þeir hafa góð tök á forystunni allan tímann.

Bestu leikmenn

1. Atli Guðnason

Atli elskar stóra sviðið, enn eitt tímabilið hjá honum og hann lék frábærlega í dag, lagði upp fyrra markið og skoraði seinna.

2. Jónatan Ingi Jónsson

Jónatan var öflugur í dag, fór oft illa með varnarmenn Vals og átti frábæra hælsendingu í fyrra marki FH.

Atvikið

Seinna mark FH.
Hannes varði gjörsamlega stórkostlega aukaspyrnu frá Brandi en því miður fyrir Hannes og Val þá skoruðu FH í kjölfarið, spurning hvort boltinn var kominn útaf í aðdraganda marksins.

Hvað þýða úrslitin?

FH eru komnir í 16-liða úrslitin en Valur eru dottnir út hér strax í 32-liða úrslitum.

Vondur dagur

Hefði getað valið nokkra úr framlínu Vals en Emil Lyng var ósýnilegur í dag. Skoraði í fyrstu umferð en spurning hvort hann sé ekki betri fái hann að spila fyrir miðju, týndur á kantinum í dag.

Dómarinn - 9

Hafði mjög góð tök á leiknum, einn sá besti í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.