Fotbolti.net
Hilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Mjólkurbikar karla
Meistaravellir
Gott fótboltaveður, milt og stillt
KR
KR
5 - 0
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
Björgvin Stefánsson 5'1 - 0Alex Freyr Hilmarsson 20'2 - 0Aron Bjarki Jósepsson (víti) 48'3 - 0Ægir Jarl Jónasson 71'4 - 0Aron Bjarki Jósepsson 90'5 - 0
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 490

SKÝRSLAN: KR skemmdi skemmtiferð Dalvíkur/Reynis

Hvað réði úrslitum?

Gæðamunur og markið í byrjun sem setti tóninn fyrir það sem var í vændum.

Bestu leikmenn

1. Alex Freyr Hilmarsson (KR)

Byrjar á að leggja upp og skorar svo 2. markið sjálfur, mjög góður í leiknum og mörg af færum KRinga komu eftir spil sem fór í gegnum Alex.

2. Björgvin Stefánsson (KR)

Mjög góður frammi, mikið að skapa hættu fyrir sig og samherja og endalaust hlaupandi eins og alltaf. Flottur leikur hjá Bjögga með mark og stoðsendingu.

Atvikið

Eins og kemur fram hér að ofan þá var 3. mark KRinga það sem gerði endanlega út um leikinn. Annars fannst mér líka gaman af löngu atviki sem var í raun bara stuðningurinn sem Dalvík/Reynir fékk frá stuðningsmannasveitinni sinni í leiknum. Alveg til fyrirmyndar.

Hvað þýða úrslitin?

KR spilar í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í ár á meðan að Dalvík/Reynir einbeitir sér að 2. deildinni.

Vondur dagur

Kelwin W. Sarkorh fær þann heiður vegna mikilvægis þess að gefa vítið í 3. markinu, slær nánast boltann sem var á leið út í teiginn en ekki í átt að marki. Þess utan ekkert öruggur í vörninni.

Dómarinn - 8

Elías Ingi var mjög góður á flautunni í dag, góð spjöld á báða bóga og hárrétt flæði á leiknum. Flottur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.