Fotbolti.net
Orri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Mjólkurbikar karla
Würth völlurinn
Mjög góðar, blæs aðeins völlurinn lítur vel út.
Fylkir
Fylkir
2 - 1
Grótta
Grótta
0 - 15' Pétur Theódór Árnason Arnór Gauti Ragnarsson 16'1 - 1Arnór Gauti Ragnarsson 71'2 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fylkir marði Gróttu í stórskemmtilegum leik

Hvað réði úrslitum?

Þetta var geggjaður leikur í alla staði, mikið tempó og mikið af góðum færum. Gestirnir voru hugaðir og reyndu að spila í hvert einasta skipti frá markinu í stað þess að dúndra boltanum fram og voru oft á tíðum að sundurspila Fylkismenn. Þetta gat fallið báðum megin í dag en í dag féll það fyrir Fylkismenn. Frábær auglýsing fyrir íslenskan fótbolta þessi leikur.

Bestu leikmenn

1. Arnór Gauti Ragnarsson (Fylkir)

Arnór var frábær í dag, var á fullu gasi allan tíman og skorar tvö mörk. Ef hann fer að detta í gang í markaskorun þá geta Fylkismenn brosað breitt. Frábær leikur hjá Arnóri.

2. Hákon Rafn Valdimarsson (Grótta)

Þrátt fyrir að fá á sig tvö mörk í dag varði Hákon meistarlega nokkrum sinnum í leiknum. Virkilega skemmtilegur og góður markmaður og verðskuldar að fá hrós fyrir sinn leik í dag.

Atvikið

Annað mark Fylkis kom eftir frábæra skyndisókn það sem þeir vinna boltann á miðjunni. Arnór Gauti virðist hinsvegar brjóta af sér og liggur Dagur hægri bakvörður Gróttu eftir á vellinum. Fylkir bruna í sókn og Arnór skorar aleinn á fjærstönginni sem Dagur hefði annars verið að dekka han

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn eru komnir áfram í 16-liða úrslit á meðan Grótta situr eftir!

Vondur dagur

Það er erfitt að gefa leikmanni vondan dag í dag en þá kannski helst hægt að setja það á Andrés Má hann var ekki sá sami leikmaður og maður er vanur að sjá. Tekinn af velli eftir 60 mínútur og átti oft í erfiðleikum varnarlega á móti sprækum Axel Frey.

Dómarinn - 7,5

Pétur var flottur. Kannski helst atvikið í öðru marki Fylkis (Sjá nánar í atvikið)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.