SKÝRSLAN: HK-ingar nýttu gæðin sín
Hvað réði úrslitum?
HK-ingar hafa að skipa betra liði en Fjaraðbyggð og nýttu sér það þegar líða tók á leikinn. Leikmenn Fjarðabyggðar lögðu sig þó vel fram í verkefnið.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Marteinsson
Skoraði tvisvar sinnum og lagði upp mark. Var alltaf líklegur að valda usla fyrir varnamenn gestanna.
2. Leifur Andri Leifssson
Flottur í bakverðinum bæði varnalega og sóknarlega.
Atvikið
Jöfnunarmark HK kom stuttu eftir að gestirnir náðu forustu. Gott fyrir heimamenn að ná að jafna stuttu eftir mark Fjarðabyggðar
Hvað þýða úrslitin?
HK verður í hattinum þegar dregið verður næst en Fjarðabyggð eru dottnir úr leik.
Vondur dagur
Milos Peric markmaður Fjarðabyggðar fékk á sig 5 mörk í leiknum. Fékk ekki mikið fleiri skot á sig, mörkin þó alls ekki öll honum að kenna.
Dómarinn - 9
Guðmundur og hans menn dæmdu mjög vel. Fór lítið fyrir honum sem er alltaf jákvætt fyrir dómara


