Fotbolti.net
Helga Katrín Jónsdóttir
Helga Katrín Jónsdóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Origo völlurinn
Fínt eins og er, smá vindur og frekar svalt. Komin blússandi sól núna
Valur
Valur
4 - 0
ÍBV
ÍBV
Hlín Eiríksdóttir 30'1 - 0Margrét Lára Viðarsdóttir 33'2 - 0Elín Metta Jensen 44'3 - 0Margrét Lára Viðarsdóttir 48'4 - 0
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson

SKÝRSLAN: Valur aftur á toppinn

Hvað réði úrslitum?

Það tók Val smá tíma að brjóta ísinn en eftir það var þetta aldrei spurning. Valur er einfaldlega með miklu miklu betra lið. Betri leikmenn í öllum stöðum á vellinum. Þetta endurspeglar bara nákvæmlega stöðu liðanna í deildinni.

Bestu leikmenn

1. Hallbera Guðný Gísladóttir

Frábær leikur hjá henni í dag. Hún er með eitraðan vinstri fót sem lagði upp tvö mörk hér í dag. Flott varnarlega líka.

2. Margrét Lára Viðarsdóttir

Mjög flottur leikur hjá henni. Skorar tvö mörk og var mjög ógnandi allan leikinn. Stjórnaði spilinu vel

Atvikið

Fyrsta markið. ÍBV voru ekkert vonlausar fram að því en um leið og Valur komst yfir var ekki spurning hvort þær myndu vinna heldur frekar hversu stórt.

Hvað þýða úrslitin?

Valur endurheimtir toppsætið og eru tveimur stigum á undan Blikum. Næst á dagskrá er svo úrslitaleikurinn milli toppliðanna. ÍBV er enn í 8. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá falli.

Vondur dagur

Enginn neitt áberandi slakur. Set þetta bara á vörn ÍBV í heild sinni, en vörnin var slök í dag og lenti í miklum vandræðum oft á tíðum.

Dómarinn - 7

Allt í lagi bara. Sumt sem ég setti spurningamerki við en svona á heildina litið kannski bara fínt. Ekkert sem hafði stór áhrif allavega.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.