Leik lokið!
Jóhann Ingi flautar leikinn af og heldur Vestri sér á toppnum en KFG eru fallnir niður í 3. deild. Frábær 5-0 sigur Vestramanna. Hefnd eftir 5-1 tap síðustu viðureignar félaganna.
90. mín
Zoran skýtur yfir eftir að vinna boltann eftir hreinsun eftir horn.
89. mín
Gult spjald
Elmar Atli Garðarsson
Elmar fær að líta gula spjaldið vegna glannaskaps. Goran tekur aukaspyrnuna og er nálægt því að minnka muninn er Robert ver örugglega.88. mín
Vestramenn heimta víti eftir að Garðbæingur snertir boltann með höndinni en það er ekkert dæmt nema horn en það er hreinsað auðveldlega.
85. mín
Rautt spjald
Tómas Orri Almarsson
Vestramenn fá aukaspyrnu eftir að Tómass Orri fær að líta sitt 2. gula spjald.83. mín
Vestramenn virðast vera komnir í vörn.
79. mín
InnElmar Atli Garðarsson
ÚtFriðrik Þórir Hjaltason
Vestramenn gera 2 skiptingar. Friðrik virðist hafa meiðst og er tekinn útaf til öryggis. Elmar tekur við fyrirliðabandinu.
79. mín
InnDaníel Agnar Ásgeirsson
ÚtHákon Ingi Einarsson
78. mín
MAAAARK!
Aaron Robert Spear (stoðsending: Hákon Ingi Einarsson)
Frábær há sending frá Hákoni og ennþá flottara mark hjá Aaroni.77. mín
KFG eiga aukaspyrnu á ákjósanlegum stað en Friðrik Þórir er tekinn útaf til sjúkraþjálfara.
75. mín
Korter eftir og Garðbæingar þurfa virkilega að fara að taka sig saman í andlitinu ef þeir ætla heim með stig.
74. mín
InnAaron Robert Spear
ÚtViktor Júlíusson
2. skipting heimamanna og Viktor fer sáttur útaf eftir að hafa skorað frábært mark.
71. mín
MAAAARK!
Viktor Júlíusson
Frábært skot fyrir utan teig. 4-0!!68. mín
InnJoshua Ryan Signey
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Vestri gerir sína fyrstu skiptingu
63. mín
Gult spjald
Tómas Orri Almarsson
Brotið á Isaac og fær hann sjúkraþjálfara en heldur ótrauður áfram eftir létt spjall við þjálfara.62. mín
Þórður Gunnar með frábært skot fyrir utan teig en það er varið örugglega
61. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtErnir Freyr Guðnason
Það er brotið á Vestramönnum en ekkert spjald er sýnt en KFG gerir sína 2. skiptingu.
58. mín
Vestramenn hafa verið á boltanum síðustu mínúturnar en hafa bara spilað stutt sín á milli á sínum helmingi.
55. mín
InnFrans Sigurðsson
ÚtBjarni Pálmason
Garðbæingar vildu ekki taka sénsinn á rauðu spjaldi og senda því inn nýjan mann.
54. mín
Gult spjald
Bjarni Pálmason
Hér brýtur Bjarni Pálmason á Gunnari Jónasi og fær að líta gula spjaldið fyrir það.51. mín
Selfyssingar eru komnir yfir á Vogum en þá geta Vestramenn ekki verið öruggir ennþá á sæti í Inkasso á næsta ári.
49. mín
Þórður Gunnar sprettir upp völlinn og er kominn í frábært skotfæri en reynir frekar sendingu á Pétur en hún er stoppuð og hreinsuð.
47. mín
MAAAARK!
Isaac Freitas Da Silva (stoðsending: Zoran Plazonic)
Vestramenn komnir 3 mörkum yfir!!! Frábærlega klárað eftir sæta sendingu frá Zoran.45. mín
Hér hefjast leikar að nýju og Vestramenn byrja að þessu sinni.
45. mín
Hér er flautað til hálfleiks og Vestri 2-0 yfir.
41. mín
Hálfleikur nálgast óðfluga en ekkert almennilegt færi hefur átt sér stað síðan í horninu áðan.
35. mín
Vestramenn eiga horn og það tekst vel þar sem Pétri tekst að skalla boltann inn en hann er dæmdur brotlegur og fá KFG aukaspyrnu.
30. mín
Zoran með flottan háan bolta inní teig en Pétur skallar rétt framhjá markinu.
29. mín
KFG ná boltanum strax eftir auma aukaspyrnu.
28. mín
Hér brýtur Ólafur Bjarni á sér og fær Vestri aukaspyrnu á hentugum stað. Dómarinn spjaldar hann ekki en hann er á hálum ís núna.
25. mín
MAAAARK!
Pétur Bjarnason (stoðsending: Zoran Plazonic)
Frábært mark eftir frábæra fyrirgjöf frá Zoran.24. mín
Vestramenn hafa átt í basli með að ná boltanum síðustu mínúturnar en hér nær Þórður Gunnar boltanum og hleypur með hann og sendir á Zoran sem virðist vera rangstæður en hann er ekki stoppaður...
20. mín
Isaac tekur frábæran sprett að markinu og lendir í dauðafæri en skýtur rétt framhjá og enn stendur 1-0.
18. mín
Pétur Bjarnason fær frábæra stungusendingu og getur komið Vestramönnum í tveggja marka forystu en línuvarðarfánanum er flaggað til merkis um rangstöðu.
17. mín
Vestramenn komast í gott færi. 2 á móti markmanni en Stefán Björn nær boltanum og hefur betur.
16. mín
Gestirnir hafa tekið sig saman í andlitinu og ná að halda boltanum og næla sér í eitt horn en það endar í höndunum á Robert.
14. mín
Heimamenn hafa átt boltann síðustu mínúturnar
10. mín
Vestramenn eiga horn en það er hreinsað en Vestramenn hirða boltann aftur og fá aukaspyrnu eftir saklaust brot á Gunnari Jónasi. Isaac fær boltann og skýtur en það fer langt yfir markið.
8. mín
Vestramenn hafa verið gráðugir í að skora fleiri mörk og hafa tekið nokkur skot en þau hafa flest farið yfir markið eða í hendurnar á Stefáni Birni.
7. mín
KFG skapar sér ágætis færi og reyna skotið en Robert ver boltann en KFG vinna boltann aftur en ekkert verður úr því.
6. mín
Vestramenn hafa sýnt meiri lit og hafa verið með boltann nánast allan leikinn.
5. mín
Þróttur V. er kominn yfir í leik þeirra við Selfoss og ef leikirnir enda svona eru Vestramenn á leið upp.
4. mín
MAAAARK!
Zoran Plazonic
...og það er mark hjá Zoran Plazonic sem dúndrar honum í neðra hornið vinstra megin.1. mín
Isaac kemur sólar sig í gegnum vörn Garðbæinga og skilur nokkra eftir í jörðinni og reynir skotið en það fer rétt framhjá.
1. mín
Hér flautar Jóhann Ingi Jónsson leikinn á og KFG fá að byrja
Fyrir leik
Hér ganga leikmenn inn á völlinn tilbúnir í slaginn.
Fyrir leik
Vestri hefur unnið síðustu 5 leiki en KFG hefur tapað sínum síðustu 6.
Fyrir leik
Með sigri Vestra geta þeir tryggt sér sæti í Inkasso deildinni á næsta ári, ef Þrótti tekst að vinna Selfoss, en KFG verður að vinna til að eiga einhvern möguleka á því að halda sér uppi.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá Olísvellinum þar sem Vestramenn taka á móti KFG í 20. umferð 2. deildar. Vestramenn standa á toppnum en KFG er í 11. sæti í fallhættu.



