Fotbolti.net
@BaldvinBorgarsBaldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Pepsi-Max deild kvenna
JÁVERK-völlurinn
Smá vindur og ekkert alltof hlýtt, fínar aðstæður.
Selfoss
Selfoss
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Hólmfríður Magnúsdóttir 3'1 - 0
Dómari: Atli Haukur Arnarsson

SKÝRSLAN: Heimasigur í bragðdaufum leik

Hvað réði úrslitum?

Selfoss var betra liðið heilt yfir, fékk nokkur færi og gaf fá á sér.

Bestu leikmenn

1. Barbára Sól Gísladóttir (Selfoss)

Barbára var frábær í dag, elti Ídu eins og skugginn og tók hana úr leik, auk þess að leggja upp markið fyrir Selfoss.

2. Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfoss)

Sífellt ógnandi, skoraði markið og lét hafa mikið fyrir sér, lang hættulegasti leikmaður vallarins.

Atvikið

Klobbi Allison á Lovísu, fór ansi illa með hana! Hefði verið svakalegt ef Magdalena hefði skorað í kjölfarið.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss styrkir sína stöðu í 3. sæti deildarinnar en Fylkir situr eftir í 5. sætinu.

Vondur dagur

Sóknarleikur Fylkis var ekki upp á marga fiska, Ída í vandræðum með Barbáru, Marija sást lítið og Bryndís fékk litla aðstoð frá liðsfélögum sínum.

Dómarinn - 6

Dómarinn var fínn í frekar auðveldum leik, en umræðan eftir leik meðal leikmanna og þjálfara var rosalega neikvæð þar sem dómarinn blótaði og talaði niður til leikmanna inná vellinum, eitthvað sem ég heyri ekki í skúrnum en ljótur blettur, það verður að vera virðing milli þátttakenda leiksins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.