Fotbolti.net
@fotboltinetEster Ósk Árnadóttir
Ester Ósk Árnadóttir
Inkasso deildin - 1. deild karla
Þórsvöllur
17 stiga hiti og logn. Bið ekki um meira
Þór
Þór
1 - 7
Fjölnir
Fjölnir
Alvaro Montejo Calleja 2'1 - 01 - 16' Rasmus Steenberg Christiansen1 - 235' Orri Þórhallsson 1 - 344' Jóhann Árni Gunnarsson 1 - 449' Albert Brynjar Ingason1 - 552' Orri Þórhallsson Orri Sigurjónsson 54'1 - 678' Kristófer Óskar Óskarsson 1 - 789' Kristófer Óskar Óskarsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Draumabyrjun endaði í martröð

Hvað réði úrslitum?

Þór hóf þennan leik á marki. Leikurinn var nokkuð jafn framan af. Fjölnir skorar svo þessi þrjú mörk í fyrri hálfleik og það var eins og Þór hefði enga trú á verkefninu eftir það. Hausinn bara fór hjá öllum leikmönnum. Allt sem Fjölnir gerði á vellinum virkaði auðvelt á meðan leikmenn Þór sendu ítrekað boltann í fæturnar á Fjölnismönnum.

Bestu leikmenn

1. Orri Þórhallsson

Má ég velja allt liðið? Annars var Orri alveg geggjaður í dag og fær þennan titill verðskuldað. Skorar tvö mörk fyrir liðið og var í fanta formi fram á við. Þórsvörnin réð illa við hann.

2. Ingibergur Kort Sigurðsson

Geggjaður á kantinum! Á þrjár stoðsendingar og bjó til helling fyrir liðsfélagana. Hann gerði Aron Elí lífið leitt með geggjuðum rispum.

Atvikið

Þórsarar komu grimmir inn í seinni hálfleikinn en Albert Brynjar henti í rothögg þegar hann skoraði fjórða mark Fjölnis á 49 mínútu og eftirleikurinn var ansi auðveldur fyrir drengina í Fjölnir.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir er komið í laglega stöðu á toppi deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir og það styttist óðum í (staðfest) á Pepsí Max dvöl á næstu leiktíð. Mögnuð frammistaða í dag. Þór stimplaði sig eiginlega út úr baráttunni og þurfa að liggja á bæn að Afturelding vinni Gróttu í kvöld. Annars er Pepsí Max draumurinn endanlega úr sögunni.

Vondur dagur

Þórsliðið eins og það leggur sig fær falleinkunn í dag. 1-7 í toppslag er ekki boðlegt. Þeir missa hausinn í seinni hálfleik. Vörnin var hörmung og pirringsbrotið hjá Orra sem varð til þess að hann fékk rautt spjald setur hann efst á lista yfir annars mjög langan lista af þeim sem áttu vondan dag.

Dómarinn - 8

Pétur stóð sig að mínu mati mjög vel í dag. Virkilega erfiður leikur að dæma á köflum og mér fannst hann hafa tök á honum allann tíma. Öll spjöld réttmæt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.