SKÝRSLAN: Magni Grenivík halda enn í vonina
Hvað réði úrslitum?
Það er erfitt að segja. Leikmenn Magna gerðu nú ekki mikið fram á við í þessum leik, t.d. annað markið sem að þeir skora (sem að ég missti af) það var bara klafs inn í teig. En held að aðalástæðan fyrir sigri magna hér í dag sé hræðileg nýting heimamanna á sínum færum.
Bestu leikmenn
1. Kristófer Reyes
Held að enginn hafi farið framhjá honum í leiknum og allar sendingar frá honum voru upp á 10
2. Steinar Adolf
Var flottur í marki gestanna í dag.
Atvikið
Seinna markið hjá Magna. Gummi Magg dettur niður í eigin teig og heldur um hausinn. dómarinn stoppar ekki leikinn og þeir skora eftir mikið klafs í teignum.
Hvað þýða úrslitin?
Magni heldur í vonina að halda sér uppí inkasso með þessum sigri, en Víkingar sigla bara lygnan sjó um miðja deild.
Vondur dagur
Öll sóknarlína Víkinga átti slæman dag í dag. Liðið Óð í færum allann leikinn og náðu ekki að nýta neitt af þeim.
Dómarinn - 8
Var flottur í dag og ekkert út á hann að setja


