SKÝRSLAN: Stjarnan refsaði Keflavík grimmilega
Hvað réði úrslitum?
Að geta klárað færin sín er mikilvægur hæfileiki í fótbolta. Keflavík fékk þó nokkur frábær færi sem ekki nýttust og geta nagað sig í handarbökin fyrir það. Á hinum enda vallarins nýttu Stjörnustúlkur sín færi afar vel og refsuðu gestunum grimmilega fyrir slaka færanýtingu.
Bestu leikmenn
1. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir
Eftir erfiðan fyrri hálfleik sprakk framlína Stjörnunar út. Hildigunnur var þar fremst meðal jafningja með sín tvö mörk og var að finna sér svæði til að vinna í og tengja vel á köflum við liðsfélaga sína. Uppskar fyrir vikið tvö mörk.
2. Anna María Baldursdóttir
Var eins og aðrar í basli framan af en dreif sínar stelpur áfram með krafti í þeim síðari og barðist eins og ljón. Einnig er vert að minnast á þátt Anítu og Shameeku í liði Stjörnunar sem gerðu varnarlínu Keflavíkur lífið leitt í síðari hálfleik.
Atvikið
Jöfnunarmark Stjörnunar fær atvik dagsins. Má alveg færa fyrir því rök að það hafi verið gegn gangi leiksins en að því er ekki spurt. Stjörnustúlkur fundu lykt af sigri gáfu í og kláruðu leikinn með stæl.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er öruggt með sæti í Pepsi Max að ári sem er kærkomið fyrir þær eftir erfitt sumar.
Keflavík er því miður nánast dæmt til að falla eftir þessi úrslit og ekkert nema kraftaverk kemur í veg fyrir að þær spili í Inkasso 2020.
Vondur dagur
Keflavíkurstúlkur hafa gleymt markaskónum heima. Fengu urmul færa, oft eftir undirbúning Sveindísar Jane sem byrjaði leikinn af fítonskrafti. En það er víst þannig að það er ekki nóg að skapa færin það þarf víst að skora úr þeim líka.
Dómarinn - 7
Nokkuð náðugt hjá Ásmundi og hans mönnum í dag. Veit ekkert um þessa vítaspyrnu þar sem ég sá ekki hvað gerðist svo við gefum okkur að það hafi verið rétt. Stýrði leiknum ágætlega og átti bara fínan dag.


