Fotbolti.net
@oddur_poddurOddur Stefánsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
0 - 5
Afturelding
Afturelding
0 - 114' Andri Freyr Jónasson (víti)0 - 227' Jason Daði Svanþórsson 0 - 336' Andri Freyr Jónasson 0 - 454' Arnór Gauti Jónsson 0 - 580' Jason Daði Svanþórsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Afturelding með óvæntustu úrslit umferðarinnar

Hvað réði úrslitum?

Það gekk ekkert upp hjá Gróttu í kvöld á meðan að það gekk allt upp hjá Aftureldingu. Allar fyrirgjafir hjá Gróttu urðu að engu og Afturelding refsaði þeim fyrir öll mistök.

Bestu leikmenn

1. Jason Daði Svanþórsson (Afturelding)

Var flottur í kvöld og var mikill lykilmaður í hápressu Aftureldingu sem skilaði þeim þrem stigum í kvöld.

2. Andri Freyr Jónasson (Afturelding)

Fyrirliðinn skoraði tvö og var mikilvægur í sóknarlínu Aftureldingu í kvöld sem átti stórleik í kvöld.

Atvikið

Mark Arnórs Gauta var frábært. Fékk boltann langt fyrir utan teig og lét bara vaða. Það var líka markið sem gjörsamlega drap þennan leik.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Afturelding fer skrefinu nær í að halda sér uppi í deildinni á meðan Grótta er ennþá í séns á að komast upp í Pepsi Max deildina eftir 1-7 tap Þórs gegn Fjölni.

Vondur dagur

Vörn Gróttu var kærulaus og var í gjafastuði í kvöld og var sóknarlína Aftureldingu tilbúin að þiggja allt sem vörnin hafði uppá að bjóða.

Dómarinn - 7

Helgi Mikael var fínn í dag en það voru sum atvik sem þarf að skoða betur. Annars fékk leikurinn að fljóta ágætlega heilt yfir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.