Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Mjólkurbikar karla
Kórinn
Logn í Kórnum eins og alltaf.
HK
HK
2 - 1
Grótta
Grótta
Stefan Alexander Ljubicic 8'1 - 0Martin Rauschenberg Brorsen 60'2 - 02 - 180' Pétur Theódór Árnason
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: HK í hattinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit

Hvað réði úrslitum?

Það var nokkuð jafndrægi með liðunum og það sem réði úrslitunum var að HK-ingar fóru betur með færin sín í kvöld en Grótta sem fékk nokkur mjög góð tækifæri en náðu ekki að koma boltanum í netið.

Bestu leikmenn

1. Örvar Eggertsson (HK)

Var frábær í hægri bakverðinum hjá HK í kvöld. Var frábær varnarlega og var grimmur upp vænginn og skapaði oft miklar hættur
með sprengikrafti sínum og átti nokkrar mjög góðar fyrirgjafir sem liðsfélagar hans hefðu mátt nýta betur.

2. Kristófer Melsted (Grótta)

Kristófer Melsted vinstri bakvörður Gróttu var mjög góður á meðan hann var inn á vellinum og sérstaklega í þeim fyrri. Bjó til færi fyrir liðsfélaga sína og kom sér í nokkrar ákjósanlegar stöður fyrir framan mark HK en náði ekki að koma boltanum í netið.

Atvikið

Varslan hjá Arnari Frey í stöðunni 1-0 - Kristófer Melsted tók snöggt innkast upp á Axel Sigurðar kom honum yfir á Agnar sem komá ferðinni og laggði hann fyrir á Melsted sem var mættur inn í teiginn og skot hans var á leiðinni inn en Arnar Freyr varði vel

Hvað þýða úrslitin?

HK verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkubikarsins en bikarævintýri Gróttumanna eru úti í ár.

Vondur dagur

Erfitt að setja einhvern inn í þennan dálk en ég ætla setja þetta á varnarleik Gróttu fyrir að fá á sig tvö mörk upp úr föstum leikatriðum í kvöld. Hefðu geta varist aukaspyrnunni betur í fyrra marki HK og síðan í hornspyrnunni í öðru marki HK.

Dómarinn - 8

Varðstjórinn dæmdi þetta mjög vel og tók á því sem þurfti að taka á í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.