Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Mjólkurbikar karla
Fífan
Augnablik
Augnablik
1 - 4
Fjölnir
Fjölnir
0 - 19' Hallvarður Óskar Sigurðarson0 - 216' Kristófer Jacobson Reyes0 - 366' Lúkas Logi HeimissonArnar Laufdal Arnarsson 67'1 - 31 - 489' Andri Freyr Jónasson
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Fjölnir sigraði í Portúgal

Hvað réði úrslitum?

Gæði Fjölnis sýndu sig á köflum við mark Augnabliks og kláruðu þeir leikinn fagmannlega þrátt fyrir að vera kannski á smá cruise control heilt yfir.

Bestu leikmenn

1. Lúkas Logi Heimisson (Fjölnir)

Mér fannst Lúkas að mörgu leyti frábær í dag, skoraði gott mark, átti geggjaða spretti og sýndi snilldar takta inná vítateig Augnabliks þegar hann setti boltann í slánna.

2. Arnór Breki Ásþórsson (Fjölnir)

Áætlunarferðir upp vænginn skiluðu stoðsendingu og fleiri færum, kraftmikill og öflugur leikmaður sem skilar alltaf sínu.

Kristófer Reyes fær shout fyrir gott mark og að bjarga Sigurjóni einusinni í skógarhlaupi.

Atvikið

Markið hjá Augnablik, þeir tóku miðju, settu boltann upp völlinn og tveir Fjölnismenn féllu í jörðina eins og þeir hefðu verið skotnir, Arnar lyfti boltanum huggulega yfir Kristófer Reyes og hamraði hann upp í fjærhornið, augnakonfekt en stórundarleg atburðarás samt sem áður.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir fer í hattinn fræga, Augnablik einbeitir sér að því að komast upp úr 3. deildinni eins og þeir ætla sér.

Vondur dagur

Verð að setja þetta á Hilmi Rafn Mikaelsson, maður hefði haldið að jafn góður leikmaður myndi gera sér einhvern mat úr 3. deildar liði en svo var nú ekki, það gekk ekkert upp hjá honum, hvorki sendingar né nokkur skapaður hlutur.

Dómarinn - 10!

Frábærlega dæmdur leikur hjá tríóinu, hápunktur leiksins hjá Gunnari að sjá í gegnum leikaraskap Brynjar Óla sem reyndi að sækja vítaspyrnu í stöðunni 3-1 en hann hefur sótt þær nokkrar ódýrar í gegnum tíðina með klókindum og leikaraskap en Gunnar lét ekki plata sig.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.