SKÝRSLAN: Rándýr dómaramistök hjálpuðu KA áfram
Hvað réði úrslitum?
Ótrúlegar senur í blálok leiksins. Stjarnan var yfir lengi vel í leiknum en KA jafnaði og allt stefndi í framlengingu þegar Elfar Árni skoraði mark sem ekki átt að standa. Flautumark sem kom KA áfram. Nánar um markið hér að neðan!
Bestu leikmenn
1. Elfar Árni Aðalsteinsson - KA
Elskar að spila á Samsung vellinum og hefur skorað ófá mörkin þar. Þetta er annað sigurmarkið sem hann skorar á vellinum á þessu tímabili því hann tryggði KA einnig sigur í deildarleik þessara liða fyrr í sumar.
2. Eggert Aron Guðmundsson - Stjarnan
Þessi strákur, fæddur 2004, verður að fá hrós. Fékk tækifæri í byrjunarliðinu og var þrusuflottur. Miklir hæfileikar.
Atvikið
Risastóra atvikið er sigurmark KA. Boltinn var farinn langt út af þegar varamaðurinn Sveinn Margeir tæklar hann til Elfars Árna sem skorar í tómt markið. Stjörnumenn voru æfir af reiði og tvö gul fóru á loft í mótmælum.
Hvað þýða úrslitin?
Silfurskeiðin var syngjandi og trallandi á leið í 16-liða úrslitin þegar allt fór í vaskinn í lokin. KA setti inn ferska varamenn, náði að jafna og fékk svo góða hjálp frá þriðja liðinu til að ná inn sigurmarkinu.
Vondur dagur
Bryngeir Valdimarsson aðstoðardómari fær að vera í þessum dálki. Hann dæmdi að öllum líkindum ranglega mark af Stjörnunni í fyrri hálfleik og í þeim seinni missti hann af því þegar boltinn var farinn út af í aðdragandanum að marki KA. Það var líka talsverð þreytumerki á mörgum leikmönnum í kvöld, ekki bara dómurunum
Dómarinn - 2
Dómaramistök réðu úrslitum í kvöld. Því miður. - Athugið að þessi einkunn er gefin til dómarateymisins í heild.



