Fotbolti.net
Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Mjólkurbikar karla
Kaplakrikavöllur
Sól og lítill vindur. 12 stiga hiti.
FH
FH
4 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 125' Bergþór Ingi SmárasonBjörn Daníel Sverrisson 36'1 - 1Steven Lennon 43'2 - 1Matthías Vilhjálmsson 79'3 - 1Guðmundur Kristjánsson 90'4 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 212
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH kom til baka og afgreiddi ferska Njarðvíkinga

Hvað réði úrslitum?

Njarðvík voru ferskir og hefðu geta fengið meira út úr þessum leik ef þeir hefðu nýtt þrjú dauðafæri snemma leiks. Þar endurspeglast munurinn á þessum liðum því FH fékk ekkert mörg færi en nýtti þau flest, enda með gæða leikmenn sem eru sérfræðingar á því sviði.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Eðvald Hlynsson (FH)

Það var mikill kraftur í Ágústi í kvöld og dugnaður. Reyndi að skapa færi og skjóta á markið allan þann tíma sem hann var inná.

2. Magnús Þórðarson (Njarðvík)

Ein af ástæðum þess að Njarðvík var mikið betra liðið á vellinum fyrsta hálftímann. Átti gott sko sem fór rétt framhjá og kom sér í færi.

Atvikið

Stóra atvikið í dag er endurkoma Óla Jó í Kaplakrika. Hann er dáður hjá FH-ingum eftir að hafa komið af stað gullöldinni hjá félaginu og unnið með þeim fyrstu Íslandsmeistaratitlana. Nú kemur hann aftur á miðju tímabili til að rífa liðið upp úr mikilli lægð og byrjar á sigri.

Hvað þýða úrslitin?

FH er komið í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins en getur nú sett athyglina á mikilvæga leiki framundan gegn KA og Val í deildinni og írsku liði í Evrópukeppninni. Njarðvík hefur lokið keppni þetta árið.

Vondur dagur

Ein æfing undir stjórn Óla Jó var ekki nóg til að breyta miklu hjá FH liðinu sem var langt frá því að vera sannfærandi í dag og kannski voru þeir heppnir að mótherjinn var 2. deildarlið. Það gekk illa að tengja saman spilið og þeir voru galopnir til baka og heppnir að Njarðvík nýtti ekki færin.

Dómarinn - 8

Auðveldur leikur að dæma hjá Agli, engin umdeild atvik og hann leysti hlutverkið vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.