Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pepsi Max-deild karla
Greifavöllurinn
KA
KA
2 - 2
FH
FH
0 - 129' Ólafur GuðmundssonNökkvi Þeyr Þórisson 52'1 - 11 - 254' Oliver HeiðarssonDusan Brkovic 86'Hallgrímur Mar Steingrímsson 90'2 - 2
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Þessu er lokið! KA endar í 4. sæti!
KA
90. mín
MAAAARK!

Hallgrímur Mar Steingrímsson

HALLGRÍMUR JAFNAR!

Hallgrímur skorar úr vítinu! KA þarf að vinna til að ná þriðja sætinu!
90. mín
VÍTI KA! OF LÍTIÐ OF SEINT?
90. mín
KA fær aukaspyrnu!
90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
FH
90. mín
InnBaldur Kári Helgason
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
Þreföld skipting hjá FH!
FH
90. mín
InnÓskar Atli Magnússon
ÚtJónatan Ingi Jónsson
Þreföld skipting hjá FH!
FH
90. mín
InnDagur Traustason
ÚtMatthías Vilhjálmsson
Þreföld skipting hjá FH!
89. mín
ELFAR ÁRNI! MEÐ SKOT Í STÖNG!
88. mín
Nú er róðurinn þungur fyrir KA! Þeir þurfa á einhverju rosalegu kraftaverki að halda!
KA
86. mín
Gult spjald

Hallgrímur Jónasson

Gult á bekkinn í kjölfarið!
KA
86. mín
Rautt spjald

Dusan Brkovic

DUSAN FÆR RAUTT!

Fær gult fyrir brot en fær sitt annað gula spjald fyrir tuð!
KA
85. mín
Gult spjald

Dusan Brkovic

FH
85. mín
InnVuk Oskar Dimitrijevic
ÚtBaldur Logi Guðlaugsson
82. mín
Hornspyrna hjá KA. boltinn fer yfir allan pakkann en Dusan nær boltanum. Á fyrirgjöf en boltinn í fangið á Gunnari.
79. mín
Morten Beck fær boltann inn í markteignum og leggur boltann á markið en Stubbur vel á verði!
77. mín
FH að komast í álítlega skyndisókn en eru klaufar að fá dæmda á sig rangstöðu.
KA
77. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtBjarni Aðalsteinsson
74. mín
Aukaspyrna hjá Hallgrím tekin stutt á Þorra sem fer inná teiginn og á slakt skot sem Gunnar á í engum vandræðum með.
FH
73. mín
Gult spjald

Jóhann Ægir Arnarsson

70. mín
FH vinnur hornspyrnu!
KA
68. mín
InnElfar Árni Aðalsteinsson
ÚtÁsgeir Sigurgeirsson
65. mín
KA farið að sækja í sig veðrið. Eru hinsvegar ekkert að nýta sér aukaspyrnur og hornspyrnur sem þeir fá hérna hægri vinstri.
64. mín
KA vinnur hornspyrnu!
63. mín
Aukaspyrna á vænlegum stað fyrir KA
FH
63. mín
Gult spjald

Jónatan Ingi Jónsson

FH
61. mín
InnMorten Beck Andersen
ÚtOliver Heiðarsson
58. mín
Rangstaða dæmd á FH í kjölfarið á horninu.
57. mín
leikmenn KA eins og keilur í kringum Oliver. Qvist kemur til bjargar og kemur boltanum í horn.
FH
54. mín
MAAAARK!

Oliver Heiðarsson

Oliver með snyrtilega klárslu. Er rétt fyrir utan vítateig og vippar yfir Stubb sem stóð langt útúr markinu!
KA
52. mín
MAAAARK!

Nökkvi Þeyr Þórisson (stoðsending: Bjarni Aðalsteinsson )

NÖKKVI ÞEYR!

Fær sendinguna frá Bjarna, leitar inná teiginn og smyr boltann í fjærhornið! KA menn eru búnir að jafna! Nökkvi SJÓÐANDI HEITUR þessa dagana!
51. mín
Þetta byrjar rólega í síðari hálfleik. FHingar enn með yfirhöndina í leiknum. Það er ekkert eins og KA menn séu að berjast um evrópusæti.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur!
45. mín
KA menn með áhugaverða útfærslu á aukaspyrnu svo ekki sé meira sagt. Boltinn endaði svo hjá Nökkva sem átti skotið en boltinn framhjá markinu.
42. mín
Tekin stutt, fyrirgjöfin slök og FHingar bruna fram. Mikkel Qvist að eiga hörku leik í vörn KA og kemur boltanum frá.
41. mín
KA fær hornspyrnu!
36. mín
Þá komast KA menn í færi. Þorri Mar með hörku skot en boltinn fer í samherja og framhjá.
34. mín
Leikurinn fer fram á vallarhelming KA þessa stundina.
FH
29. mín
MAAAARK!

Ólafur Guðmundsson

MAAAARK!

FH komið yfir! Hornspyrna sem Jónatan tók, Stubbur virtist vera með'etta í markinu en boltinn rennur úr höndunum á honum og Ólafur fljótur að fleygja sér í boltann.
27. mín
FH fær hornspyrn
24. mín
Mikkel Qvist með skalla eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnunni.
23. mín
Ásgeir komst fyrir Gunnar í markinu og náði boltanum af honum. Ásgeir féll síðan í teingum í baráttu við Gunnar og KA menn vildu víti. ekkert dæmt. Ásgeir hélt boltanum og Ólafur Guðmunds felldi hann á hægri kanntinum.
FH
22. mín
Gult spjald

Ólafur Guðmundsson

17. mín
Jónatan Ingi með góða fyrirgjöf á kollinn á Matthíasi en boltinn yfir markið.
15. mín
Fyrirgjöf frá Hallgrím úr aukaspyrnu og Brebels nær skallanum en boltinn framhjá.
11. mín
Þorri Mar með flottan sprett inná teig FH en skot hans langt framhjá markinu.
10. mín
Þá kemur loks tilraun á markið. Oliver Heiðarsson með skot rétt fyrir utan vítateiginn en boltinn framhjá markinu.
9. mín
FH er með yfirhöndina en er ekki að ná að skapa sér neitt
3. mín
ekkert varð úr henni og KA menn reyna sækja hratt en slök sending innfyrir frá Bjarna Aðalsteins beint til Gunnars í markinu.
2. mín
Matthías nær að bjarga því að boltinn fari útaf, FH heldur boltanum og vinnur aðra hornspyrnu.
1. mín
FH vinnur hornspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. FHingar byrja með boltann.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár

KA gerir eina breytingu á liðinu sínu frá 4-1 sigri liðsins á Val í síðustu umferð. Jakob Snær Árnason sest á bekkinn og Nökkvi Þeyr Þórisson kemur inn í hans stað.

FH gerir tvær breytingar frá 1-0 sigri gegn Breiðablik í síðustu umferð. Gunnar Nielsen kemur aftur í markið fyrir Atla Gunnar Guðmundsson eftir að hafa tekið út leikbann. Þá er Hörður Ingi Gunnarsson í banni og Jóhann Ægir Arnarsson kemur inn í hans stað.
Fyrir leik
Ágúst Þór Ágústsson er spámaður lokaumferðarinnar í Pepsi Max-deildinni. Hann spáir því að KA loki 3. sætinu.

KA 2 - 1 FH
2-1 Heimasigur i hörkuleik. Elfar Árni setur sigurmarkið og einn af ungu strákunum hjá FH skorar. Davíð Viðars segir okkur eftir leik hvað hann heitir, hvenær hann er fæddur og hvar hann á heima.
Fyrir leik
Guðmann Þórisson spilar sinn síðasta leik fyrir FH í dag en hann fær ekki nýtt samningstilboð frá félaginu.

Fyrir leik
LOKAUMFERÐIN BEINT Á X977

Hitað verður upp frá klukkan 12 þar sem Elvar Geir og Tómas Þór rýna í leikina. Allir leikirnir verða svo flautaðir á klukkan 14 og við verðum með menn á öllum völlum.

Elvar Geir, Benedikt Bóas og Rafn Markús verða í hljóðverinu og heyra í fréttamönnum á völlunum.

Allt í þráðbeinni en hægt er að hlusta á útsendingu Xins með því að smella HÉR

Fyrir leik
Þjálfaramál eru hinsvegar mjög óljós í Krikanum. ,,Ólafur Jóhannesson er með samning út tímabilið en mjög mikill vafi á því hvort samstarfið heldur áfram. Menn í Kaplakrika halda spilunum þétt að sér. Sögur hafa verið í gangi um að Davíð Þór Viðarsson gæti tekið við sem aðalþjálfari og einnig um að Heimir Guðjónsson sé á blaði ef hann verður látinn fara frá Val," segir í grein Fótbolta.net um þjálfaramál í tveimur efstu deildum karla.
Fyrir leik
KA staðfesti í gær að Arnar Grétarsson þjálfari liðsins muni stýra liðinu áfram á næstu leiktíð. Liðið hefur náð mögnuðum árangri á þessari leiktíð en liðið endaði í 7. sæti á því síðasta.

Fyrir leik
Einar Ingi Jóhannsson dæmir leikinn í dag. Ragnar Þór Bender er AD 1 og Guðmundur Ingi Bjarnason AD 2. Valdimar Pálsson er varadómari og Vilhelm Adolfsson eftirlitsmaður KSÍ.


Einar Ingi Jóhannsson
Fyrir leik
Eins og fyrr segir gera KA menn sér von um að spila í Evrópukeppni á næsta tímabili. Liðið var í hörku baráttu um titilinn áður en KA mætti Breiðablik í tveimur leikjum í röð í lok ágúst en tapaði báðum leikjunum. Liðið hefur unnið þrjá leiki í röð síðan þá, sterkur 1-4 sigur á Hlíðarenda gegn Val í síðustu umferð.

Nökkvi Þeyr Þórisson hefur skorað í tveimur leikjum í röð
Fyrir leik
Skemma FHingar annað partý?

FH hefur ekki að neinu að keppa þar sem liðið er fast í 6. sæti deildarinnar. Þeir unnu Breiðablik með einu marki gegn engu í ótrúlegri síðustu umferð. Blikar þurfa því að vinna HK og treysta á að Leiknir taki stig af Víkingi til að verða Íslandsmeistarar.

FH-ingar eru á góðu skriði en liðið hefur aðeins tapað einum af síðustu sjö leikjum sínum.

Fyrir leik
Evrópusæti í húfi

Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og FH í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla. Það er mögulega mikið undir hér í dag. Með sigri gulltryggir KA þriðja sætið í ár og það gæti skilað Evrópusæti ef Víkingi tekst að sigra bikarkeppnina!

Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri, hann lítur kannski aðeins betur út í dag en á þessari mynd.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.