Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
2 - 1
KV
KV
Sigurjón Rúnarsson 34'1 - 0Símon Logi Thasaphong 47'2 - 02 - 186' Einar Már Þórisson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Pétur flautar þetta af og sigur Grindvíkinga staðreynd.

Gestirnir geta þó gengið frá stoltir frá velli enda lögðu þeir allt i þetta.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
92. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti fjórar mínútur.
Grindavík
91. mín
InnFreyr Jónsson
ÚtKairo Asa Jacob Edwards-John
90. mín
KV fær hornspyrnu sömu megin og markið kom frá.

Boltinn tekinn á svipaðan hátt en hittir ekki markið í þetta sinn.
Grindavík
89. mín
Gult spjald

Kairo Asa Jacob Edwards-John

Brýtur af sér og sparkar boltanum í burtu.

Bóas sem að sjálfsögðu er í Grindavík veifar rauðu.
KV
87. mín
Gult spjald

Þorsteinn Örn Bernharðsson

KV
86. mín
MAAAARK!

Einar Már Þórisson

Beint úr hornspyrnu

Nýtir vindinn og setur boltann hátt upp í hann, vindurinn feykir boltanum í átt að marki og yfir Maja og í markið.
84. mín
Kristján Páll gerir vel úti til hægri og sækir horn fyrir gestina.
Grindavík
82. mín
InnHilmar Andrew McShane
ÚtThiago Dylan Ceijas
KV
82. mín
InnKristján Páll Jónsson
ÚtMagnús Snær Dagbjartsson
KV
82. mín
InnAskur Jóhannsson
ÚtBjörn Axel Guðjónsson
KV
82. mín
Gult spjald

Björn Þorláksson

KV
79. mín
InnBjörn Þorláksson
ÚtGunnar Helgi Steindórsson
Grindavík
75. mín
InnJosip Zeba
ÚtMarinó Axel Helgason
73. mín
Enn gestirnir að ógna, Vihjálmur Kaldal með fínan skalla í teignum sem Maja ver í horn.
70. mín
Hrafn Tómasson með skot i stöngina frá vítateig.

Gestirnir verða ekki sakaðir um að reyna ekki að sækja.
68. mín
Gestirnir sækja, Björn Axel reynir hælspyrnu í teignum en nær engum krafti í boltann sem fer þægilega í hendur Maja.

Gestirnir mæta aftur upp og vinna hornspyrnu.
66. mín
Grindvíkingar fjórir á tvo, fara afskaplega illa með þetta og Kenan tapar boltanum í teignum. Fjölmargir möguleikar í boði en völdu klárlega þann versta.
KV
63. mín
Gult spjald

Hrafn Tómasson

Bannað að teika segir Pétur.
KV
63. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtIngólfur Sigurðsson
57. mín
Grindavík að sjá um að sækja hér.

Fá hornspyrnu.
52. mín
Einar Már með skot að marki Grindavíkur sem Maja ver í horn.

Boltinn dettur fyrir Hrafn Tómasson í teignum sem hefur komið inn á í hálfleik en skot hans frá vítapunkti hátt yfir markið.
50. mín
Kairo að ógna aftur frá hægri en varnarmenn komast fyrir og að endingu boltinn í fang Ómars.
Grindavík
47. mín
MAAAARK!

Símon Logi Thasaphong

Hræðileg varnarmistök í öftustu línu KV.

Léleg fyrirgjöf frá Kairo berst inn á teiginn frá hægri, varnarmaður ætlar að spyrna boltanum frá en kiksar boltann sem berst til Símons sem fær varla auðveldara færi á ferlinum til að klára fyrir opnu marki á markteig.
KV
46. mín
InnHrafn Tómasson
ÚtGrímur Ingi Jakobsson
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Gestirnir sparka þessu af stað.
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn leiða í hálfleik. Hafa verið heilt yfir betri en KV átt sínar rispur og geta vel sprengt þetta upp í síðari hálfleik.
45. mín
KV að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað!

Einar Már setur boltann fyrir markið en Grindvíkingar hreinsa.
42. mín
Barátta allsráðandi eftir markið, hart barist en fátt um færi.
Grindavík
34. mín
MAAAARK!

Sigurjón Rúnarsson (stoðsending: Aron Jóhannsson )

Aron með fasta sendingu fyrir markið úr aukaspyrnu frá hægri kanti.

Boltinn berst yfir á fjærstöng þar sem að Sigurjón hristir af sér varnarmann og hendir sér á boltann og skallar hann í netið framhjá Ómari.
30. mín
Líf í þessu!

Ingó Sig með skot frá vítateigslínu með jörðinni sem smellur í stönginni!
29. mín
Ómar er að eiga stórleik í marki KV hér í fyrri hálfleik.

Heimamenn sækja hratt Dagur ber upp boltann og finnur Aron í dauðafæri í teignum sem nær góðu skot en Ómar ver með tilþrifum.
26. mín
Kairo Edwards með alvöru takta, leikur á tvo varnarmenn við vítateigslínu og lætur vaða á markið.

Boltinn smellur í þverslánni og út og gestirnir ná að hreinsa.
24. mín
Símon með fallhlífarbolta inn á teiginn frá vinstri, Dagur í teignum en á ekki möguleika gegn Ómari sem handsamar boltann.
21. mín
Mjög rólegt yfir þessu hér í Grindavík, heimamenn meira með boltann síðustu mínútur en ekkert verið að skapa sér.
15. mín
Ómar í skógarhlaup og missir af boltanum, boltinn berst á Aron sem skýtur að marki en boltinn af varnarmanni og afturfyrir.
14. mín
Dagur Ingi í dauðafæri eftir flikk innfyrir frá Aron.

Þarf að hafa fyrir skotinu en nær boltanum fast á markið úr góðri stöðu en nokkurn veginn beint á Ómar í markinu.
8. mín
Aron með skot úr aukaspyrnu af löngu færi en Ómar vandanum vaxinn í markinu.
5. mín
Gestirnir verið sprækari aðili leiksins hér í upphafi. Vinna annað horn.
3. mín
Laglegt spil úti vinstra megin hjá gestunum. Björn Axel og Grímur leika sín á milli. Grímur með skotið en af varnarmanni og afturfyrir.

Hornspyrna, KV fyllir markteiginn og nær fyrstu snertingu á boltann en framhjá
1. mín
Leikur hafinn
Farið af stað hér í Grindavík, það eru heimamenn sem sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Trióið

Varðstjórinn sjálfur Pétur Guðmundsson heldur um stjórnartaumanna í leik kvöldsins. Honum til aðstoðar eru Smári Stefánsson og Guðni Freyr Ingvason. Þórður Georg Lárusson er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Pétur hefur dæmt tvo leiki í Lengjudeildinni það sem af er sumri og gefið alls níu gul spjöld í þeim en hvorki rekið mann af velli né dæmt vítaspyrnu ennþá.


Fyrir leik
Grindavík

Grindavík er taplaust i fyrstu sex umferðum mótsins og má vel við una með það. Stigin eru þó ekki nema tíu en tveir sigrar og fjögur jafntefli með markatöluna 9-5 er þeirra uppskera.

Eins og tölurnar gefa til kynna er varnarleikur Grindvíkinga sterkur og er erfitt að brjóta þá á bak aftur en að sama skapi hefur sóknarleikur liðsins verið helst til bitlaus. Þeir sitja í fimmta sæti deildarinnar og gætu með hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum smellt sér í annað sætið að leik loknum í kvöld.


Fyrir leik
KV

Nýliðarnir úr vesturbæ Reykjavíkur hafa farið hægt af stað í upphafi móts. Þrjú stig úr fyrstu sex leikjunum með markatöluna 6-18 er uppskeran það sem af er en sigur á Aftureldingu í síðustu umferð setti fyrstu stig KV á töfluna og blés mönnum eflaust baráttuanda í brjóst.

Tapleikir liðsins hafa allir komið gegn liðum í efri hluta deildarinnar og verður áhugavert að sjá hvort það trend haldi áfram hjá KV eða hvort þeir komi á óvart í kvöld og sæki sinn annan sigur í röð.


Fyrir leik
Lengjudeildin heldur áfram

Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavíkur og KV í 7. umferð Lengjudeildarinnar sem fram fer í Grindavík.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.