Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Sambandsdeild UEFA
KR-völlur
Sól og blíða og grasið betra en á Windsor Park
KR
KR
1 - 0
Pogon Szczecin
Pogon Szczecin
Sigurður Bjartur Hallsson 44'1 - 0
Dómari: Andrew Davey (Norður-Írland)
Leik lokið!
Þáttöku KR lokið í Evrópu þetta árið þrátt fyrir sigur á Pogon í dag. EN þessi sigur skilar stigum sem færa okkur nær því að endurheimta fjórða Evrópusætið og er Íslenskum fótbolta til sóma. Ljóst var að verkefnið var erfitt en KRingar geta gengið stoltir frá borði með þennan sigur í bókinni.
Pogon Szczecin
93. mín
Gult spjald

Vahan Bichakhchyan

Brot
92. mín
Almqvist kemst í boltann í teignum en Beitir mættur á móti og fær boltann í sig. Vissi minnst um það sjálfur Beitir en vel gert fyrir því.
90. mín
Aron Þórður með kraftlítið skot af 20 metrum sem Dante á ekki í vandræðum með. Uppbótartími er að minnsta kosti fjórar mínútur.
Pogon Szczecin
86. mín
Inn Mariusz Fornalczyk
ÚtKamil Grosicki
Grosicki haft hægar um sig í dag en fyrir viku síðan.
83. mín
Aron Kristófer með skot af talsverðu færi en beint í fang Stipica
82. mín
Kamil Grosicki með stórhættulegan bolta fyrir markið frá vinstri. Nafni hans Drygas örlítið of seinn og boltinn afturfyrir.
80. mín
Boltinn fyrir mark Pogon frá vinstri en Stipica hirðir boltann.
KR
79. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtAtli Sigurjónsson
KR
79. mín
InnÞorsteinn Már Ragnarsson
ÚtKennie Knak Chopart
KR
79. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtTheodór Elmar Bjarnason
75. mín
Klaufagangur í öftustu línu, Jean Carlos leggur boltann fyrir markið þar sem mér sýnist það vera Vahan Bichakhchyan sem á skotið, Beitir ver en boltinn við það að leka yfir línuna þegar Kennie mætir og hreinsar í horn.
72. mín
Kamil Grosicki fær að fara ansi nálægt markinu í teig KR og leggja boltann fyrir markið. Aron Kristófer kemur sér á endanum fyrir og hreinsar í horn.
71. mín
Heimamenn stálheppnir. Pontus fær boltann klaufalega í hendina sem aftasti maður en Írinn er ekkert að hafa áhyggjur af því. Líklega ekki séð þetta þó augljóst væri.
Pogon Szczecin
68. mín
InnVahan Bichakhchyan
Út Sebastian Kowalczyk
Pogon Szczecin
68. mín
Inn Pontus Almqvist
ÚtLuka Zahovic
KR
68. mín
InnKjartan Henry Finnbogason
ÚtStefan Alexander Ljubicic
KR
64. mín
InnÆgir Jarl Jónasson
ÚtSigurður Bjartur Hallsson
Markaskorarinn farinn af velli. Ægir Jarl kemur inn
64. mín
Luka Zahovic í hættulegu færi í teig KR en skóflar boltanum yfir markið.
59. mín
Luis Mata í góðri stöðu í teignum en á ömurlega fyrirgjöf beint í fang Beitis.
KR
58. mín
Gult spjald

Kennie Knak Chopart

Fer í bókina fyrir sömu sakir og Atli. Kowalczyk sleppti samt leikritinu núna.
57. mín
Góð sókn KR. Kennie og Atli líkt og oft áður að leika vel sín á milli. Fyrirgjöf Kennie berst út í teiginn þar sem Atli nær skotinu en boltinn framhjá markinu.
KR
56. mín
Gult spjald

Atli Sigurjónsson

Brýtur á Sebastian Kowalczyk sem setur á svið smá leikrit til að krydda hlutina.
55. mín
Rólegt yfir leiknum þessa stundina. Gestirnir varfærnir og ekki á jafn háu tempói og í fyrri leiknum.
48. mín
Pontus með frábæra varnartilburði og bjargar nánast öruggu marki þegar hann hendir sér fyrir skot í teignum eftir snögga sókn gestanna.
47. mín
Damian Dabrowski með skotið en beint á Beiti
Pogon Szczecin
46. mín
Gult spjald

Luka Zahovic

Sparkar Grétar Snæ niður.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn KRingar hefja þennan síðari hálfleik. Þurfa tvö mörk enn til að koma sér í framlengingu sem og að halda hreinu að sjálfsögðu. Fjögurra marka sigur tryggir áframhald.
45. mín
Flautað til hálfleiks hér í Vesturbæ. Heimamenn leiða eftir rislítinn fyrri hálfleik en okkur er nokk sama um það. Væri gaman að sjá KR setja annað mark snemma í síðari hálfleik og hleypa mögulega smá spennu í þetta.
45. mín
+1 Atli með stórhættulegan bolta fyrir marki Pogon en Stefán og Sigurður ekki nægjanlega vakandi og ekkert verður úr.
45. mín
+1 Uppbótartími er að minnsta kosti 2 mínútur
KR
44. mín
MAAAARK!

Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Aron Kristófer Lárusson)

KR er búið að setja mark í þetta. Aron Kristófer með sendingu frá miðlínu innfyrir vörn Pogon. Stefán Alexander í rangstöðunni en gerir enga tilraun að ná til boltans. Það gerir Sigurður Bjartur hinsvegar og nýtir sér að varnarmenn eru steinsofandi. Tekur vel á móti boltanum og klárar með frábærri afgreiðslu. Eitt mark enn og það gæti komið skjálfti í Pogonmenn.
40. mín
Jean Carlos með sprett upp hægri vænginn og setur boltann fyrir en Zahovic ekki á tánum og boltinn afturfyrir.
Pogon Szczecin
37. mín
InnMariusz Malec
ÚtKostas Triantafyllopoulos
Kostas meiddist á ökkla áðan í baráttu við Stefán. Hélt áfram en hefur fengið nóg í dag.
36. mín
Fín sókn KR. Kennie með fyrirgjöf frá hægri sem skapar smá klafs. Boltinn berst aftur útfyrir teiginn þar sem Kennie lætur vaða með vinstri en boltinn vel yfir markið.
KR
31. mín
Gult spjald

Sigurður Bjartur Hallsson

Glæfralegt brot á Kamil Drygas. Missir boltann frá sér og fylgir á eftir með tæklingu.
29. mín
Atli fer vel með boltann úti til hægri, kemur boltanum inn á teiginn en finnur ekki samherja og boltinn afturfyrir.
25. mín
Það er voðalega lítið um að vera í þessu. Gestirnir með gott forskot eftir fyrri leikinn og eru lítið að stressa sig.
19. mín
Fátt hægt að segja um leikinn þessa stundina. Pogon ögn meira með boltann en hvorugt liðið að skapa sér neitt að ráði.
13. mín
Kamil Grosicki að valda usla í vörn KR en nær ekki að koma boltanum á markið. Skapast alltaf hætta þegar hann fær að keyra á vörnina.
8. mín
Álitleg sókn KR, Kennie og Atli leika sín á milli en varnarmenn komast fyrir og setja boltann út fyrir hliðarlínu.
6. mín
Hornið tekið stutt á Theodór Elmar sem er eitthvað óákveðinn en setur boltann á endanum fyrir markið þar sem Dante Stipica handsamar boltann næsta örugglega.
5. mín
KR vinnur horn eftir fínt hlaup frá Sigurði Bjarti.
5. mín
4. mín
Jean Carlos liggur á vellinum eftir samstuð við Pontus. Þarf aðhlynningu. Virðist hafa misst andan við höggið frá Pontus en er mættur á fætur.
1. mín
Þetta er farið af stað á Meistaravöllum. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
0. mín
Einhverjir stuðningsmenn Pogon gerðu sér glaðan dag í miðborg Reykjavíkur í dag. Vefur Morgunblaðsins fjallar meðal annars um að fjöldi lögreglumanna hafi mætt við stjórnarráðið og fylgt þeim eftir og gætt þess að þeir færu ekki inn á EM-torgið þar sem fólk fylgdist með leik Íslands og Ítalíu. Þeir eru væntanlega mættir á Meistaravelli og munu syngja þar.
0. mín
Meira um dómarann Okkar allra besti Maggi Bö kom með skemmtilega staðreynd um Norður-Írann sem er fjórði dómari í dag. Thomas Anthony Clarke er grasvallarfræðingur að mennt og sparaði ekki hrósið á völlinn hans Magga og sagði hann grasið talsvert betra en á Windsor Park sjálfum þjóðarleikvangi Norður-Íra Ekki leiðinlegt hrós að fá frá öðrum fagmanni í bransanum. Viss um að Maggi og Andrew gætu tekið langt spjall um sín fræði og haft gaman að.
0. mín
Byrjunarlið KR Liðin eru mætt í hús hér. Rúnar Kristinsson gerir tvær breytingar frá liðinu sem lék fyrri leikinn. Pálmi Rafn Pálmason og Kjartan Henry Finnbogason fá sér sæti á bekknum fyrir þá Sigurð Bjart Hallsson og Stefan Alexander Ljubicic. Þá er einnig ánægjulegt fyrir KR að sjá að Kristján Flóki Finnbogason er á varamannabekk KR í kvöld en hann er að stíga upp úr meiðslum eftir að hafa fótbrotnað í vor. Hvað gestina varðar sýnist mér þetta í fljótu bragði vera sama byrjunarlið og hóf fyrri leikinn í Póllandi.
0. mín
Dómarinn Andrew Davey frá Norður Írlandi sér um dómgæslu á vellinum í dag. Georgios Argyropoulos og Ryan Kelsey eru honum til aðstoðar og fjórði dómari er Thomas Anthony Clarke.
0. mín
Á KR möguleika? Miði er alltaf möguleiki en KR liðið þarf að eiga besta leik sem íslenskt hefur átt í Evrópu til þess að snúa taflinu við. Það má þó alltaf vera bjartsýnn og trúa á óvænt kraftaverk þar sem KR liðið hefur engu að tapa. Fari svo að KR eigi einhverja þá ótrúlegustu endurkomu knattspyrnusögunar hér á Íslandi bíður lið Bröndby í næstu umferð.
0. mín
Fyrri leikurinn KR liðið sá aldrei til sólar í fyrri hálfleik gegn þeim pólsku í fyrri leik liðanna í Szczecin. Heimamenn komust yfir snemma leiks og lágu þungt á liði KR í fyrri hálfleik sem þurfti að gera sér að góðu að fara þremur mörkum undir inn í hálfleikinn. Síðari hálfleikur var betri hjá KR sem fékk þó á sig fjórða markið í leiknum áður en að Aron Kristófer Lárusson náði að minnka munin í 4-1 á 71. mínútu leiksins en það urðu lokatölur.
0. mín
Velkomin til leiks Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin i beina textalýsingu Fótbolta.net frá Meistaravöllum þar sem fram fer seinni leikur KR og Pogon Szczecin í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.