SKÝRSLAN: Grótta fór auðveldlega með Selfoss
Hvað réði úrslitum?
Grótta spilaði sem mikil heild í dag og átti Selfoss erfitt með að komast í góð færi en aftur á móti var vandræðagangur í varnarleik Selfyssinga.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Kári Halldórsson
Skoraði 2 í dag og kom sér í fleiri færi, frábær leikur.
2. Luke Rae
Kom með frábæra stoðsendingu á Kjartan og ógnaði mikið í sóknarleik Gróttu.
Atvikið
Annað mark Gróttu var mjög mikilvægt en það kom á geggjuðum tímapunkti, rétt fyrir hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Grótta kom sér upp í 2. sætið en Selfoss fer niður í það 4.
Vondur dagur
Varnarleikur Selfyssinga var ekki upp á marga fiska á Vivaldivellinum fyrr í kvöld.
Dómarinn - 6
Nokkrar skrýtnar ákvarðanir en engin stór mistök að mínu mati.



