SKÝRSLAN: Sofandaháttur Kórdrengja réði úrslitum
Hvað réði úrslitum?
Fylkir var betra liðið frá upphafi en kaflinn í upphafi seinni hálfleiks lokaði þessu endanlega. Kórdrengja liðið virkaði eins og það væri sofandi.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Eyþórsson
Alltaf flottur í vörninni og hæðin á honum gerir honum kleift að vera mjög ógnandi í föstum leikatriðum.
2. Arnór Breki Ásþórsson
Fínn leikur hjá honum heilt yfir. Draumamarkið hans gerir það þó að verkum að hann verður að fá tilnefningu.
Atvikið
Upphafsmínútur seinni hálfleiks voru ótrúlegar. Tvö mörk á einni mínútu og sigurinn var kominn í hús
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir heldur toppsæti sínu en Kórdrengir misstu af séns til að blanda sér í baráttuna í efri hlutanum.
Vondur dagur
Kórdrengir eiga þrjá gæða markmenn og baráttan um hanskana er mikil en Nikita Chagrov var ekki að vinna sér inn neina greiða með hörmungar frammistöðu sinni í dag.
Dómarinn - 7
Ekkert hægt að setja út á dómarann í dag. Enginn stóratvik til að dæma og leyfði leiknum að fljóta vel.



