SKÝRSLAN: HK sannfærandi gegn KV
Hvað réði úrslitum?
HK eru einfaldlega með meiri gæði og sýndu það í dag. Tvö mörk úr hornspyrnum.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Marteinsson
Gott mark í dag og átti önnur hörku skot.
2. Arnþór Ari Atlason
Var upptekinn allan leikinn á miðjunni. Mikilvægur hlekkur í spili HK.
Atvikið
Ég ætla að velja mark Ásgeirs Marteinssonar. Það var fallegt. Ekki mikið meira um einhver atvik.
Hvað þýða úrslitin?
HK fer upp í þriðja sæti en eiga leik til góða sem þeir spila eftir þrjá daga gegn Þrótt Vogum. KV sitja enn í 11. sæti með sjö stig.
Vondur dagur
Sigurður Víðisson, þjálfari KV sagði það best. Þeir sem byrjuðu hjá KV voru slappir en þeir sem kom inn á voru hressari.
Dómarinn - 9
Var með leikinn bara á lás.


