SKÝRSLAN: Fyrsti sigur hjá Þróttur Vogum
Hvað réði úrslitum?
Þróttur voru miklu sterkari allann leikinn. Þeir pressuðu vel, spiluðu boltanum vel og vörninn þeirra var mjög góð. Þróttur er kominn með nýja framherjalínu með Ruben og Hans, sem stóðu þeir sig frábærlega í kvöld. Grindavík átti bara engan sjens í þetta Voga lið.
Bestu leikmenn
1. Hans Mpongo
Fyrsti leikurinn hans fyrir Vogum. Ný búinn að skrifa undir samning og fær svo traustið í byrjunarliðið. Hann þakkar því trausti með tvemum mörkum.
2. Rafal Stefán Daníelsson
Það var erfitt að velja næst besta leikmann Þrótts í þessum leik. Þeir voru allir frábærir, en ég ætla að gefa þetta til Rafal í markinu sem hélt hreinu og varði nokkur mjög góð færi.
Atvikið
Atvik leiksins var þegar Hans fékk traustið til að fara á púnktinn. Hans tekur vítið og skorar, en markið er dæmt ólölegt og þarf Hans að endurtaka vítið. Hann skýtur boltanum á sama stað í seinna vítinu og skorar svo lölegt víta mark.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur V. fá sín fyrstu 3 stig og eru komnir í 5 stig í Lengjudeildinni, samt ennþá í seinasta sæti. Grindavík liggur í 5. sæti í deildinni og fara heim án stiga úr þessum leik.
Vondur dagur
Grindavík gátu lítið sem ekkert í þessum leik. Þeir voru með ekkert sjálfstraust á vellinum. Leikmenn Grindavíks virtust hafa engan áhuga á þennan leik og voru Þróttur með allan völdin í leiknum.
Dómarinn - 6
Vilhjálmur og teymið hans dæmdi leikinn ágætlega. Fannst fleiri gul spjöld geta farið á loft. Mér fannst líka oft þar sem brotið var á leikmann Grindavíkur, en ekkert var dæmt.



