SKÝRSLAN: Aðeins annar risinn virðist ætla að rísa upp
Hvað réði úrslitum?
FH-ingar voru betri á öllum sviðum fótboltans, frá upphafi til enda. Þeir vildu þetta meira og voru miklu betri út á velli. Virkilega sanngjarn sigur.
Bestu leikmenn
1. Vuk Oskar Dimitrijevic (FH)
Var virkilega líflegur. Skoraði tvö og var óheppin að gera ekki þrennuna.
2. Davíð Snær Jóhannsson (FH)
Frábær í þessum leik, sérstaklega til að byrja með. Var mikill drifkraftur í honum.
Atvikið
Fyrsta markið sem kom eftir fimm mínútur úr vítaspyrnu. FH klúðraði tveimur vítaspyrnum í síðasta leik en Matthías Vilhjálmsson var gríðarlega öruggur og setti tóninn.
Hvað þýða úrslitin?
FH er tveimur stigum frá fallsvæðinu, en það er mikil stemning með þeim núna og jákvæðari blær yfir Kaplakrika. Í larí lei var spilað eftir hvert einasta mark og það var geggjuð stemning í Krikanum. Skagamenn eru á botninum og væru þeir fallnir ef það væru enn bara 22 umferðir í deildinni, en þeir eru enn í möguleika og þurfa að rífa sig í gang. Þetta eru tveir risar í íslenskum fótbolta en aðeins annar þeirra virðist vera að rísa upp - allavega miðað við leikinn í dag.
Vondur dagur
Árni Marinó átti ekki góðan dag í markinu, en það er ósanngjarnt að taka hann út þegar allt Skagaliðið spilaði eins og það gerði. Nánast enginn með lífsmarki hjá þeim.
Dómarinn - 8,5
Flottur leikur hjá Erlendi og hans teymi. Allt undir góðri stjórn.




