SKÝRSLAN: KR tryggja sér top 6 með góðum sigri
Hvað réði úrslitum?
KR voru bara töluvert betra liðið í dag. Það gekk virkilega illa hjá Stjörnunni að skapa sér góð færi og KR voru hættulegir þegar þeir sóttu.
Bestu leikmenn
1. Stefán Árni Geirsson (KR)
Stefán skorar 2 mörk í dag og það var bæði virkilega góðar afgreiðslur. Hann var hættulegur sóknarlega og duglegur varnarlega.
2. Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Theodór skorar fyrsta markið og á þátt í því öðru þar sem hann á sendinguna á Ægir sem á svo stoðsendingu. Annars stýrði hann leiknum mjög vel frá miðjunni.
Atvikið
Annað mark KR kom strax á 14. mínútu og leikurinn var aldrei í hættu fyrir heimamenn eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
KR fer upp í 5. sæti og eru öruggir í efri hlutanum.
Stjarnan fer niður í 6. sæti með 3 stiga forskot á næsta lið þegar 1 leikur er eftir af venjulegri deildarkeppni
Vondur dagur
Sóknarleikur Stjörnumanna var virkilega bitlaus í dag. Eggert Aron var að spila framherja stöðuna og virkaði oft mjög einmanna í leiknum. Það virtist líka erfitt fyrir hann á köflum að kljást við stóru og sterku varnarmenn KR.
Dómarinn - 8
Ívar Orri og hans teymi áttu góðan leik. Vítaspyrnudómurinn réttur og annað gekk bara fínt.




