Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Mjólkurbikar karla
Origo völlurinn
Valur
Valur
4 - 1
RB
RB
Hilmar Starri Hilmarsson 20'1 - 01 - 128' Alexis AlexandrenneÞorsteinn Emil Jónsson 45'2 - 1Haukur Páll Sigurðsson 85'3 - 1Lúkas Logi Heimisson 90'4 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Skýrslan: Valur kláraði RB alveg í lokin

Hvað réði úrslitum?

Mark Valsmanna alveg undir lok fyrri hálfleiks eftir að RB höfðu jafnað í miðjum fyrri hálfleik. RB fengu líka dauðafæri þegar það voru 10 mínútur eftir af leiknum þar sem Slawomir Jaworski fær frían skalla fyrir framan opið mark og skallaði boltann yfir. En síðan gerir Valur út um leikinn með marki á 85. mínútu frá Hauki og marki á 90. mín frá Lúkasi Loga.

Bestu leikmenn

1. Alexis Alexandrenne

Markaskorari RB í kvöld og heilt yfir að mínu mati besti leikmaður vallarins. Hann tók færið sitt mjög vel þegar hann jafnaði metin í kvöld og var mjög mikið að ógna. Helber í hægri bakvörði Valsmanna var í töluverðu basli með Alexis. Hann var oft að koma sér í góðar stöður og var sífellt að ógna með krafta sínum og hraða.

2. Haukur Páll Sigurðsson

Hann kemur inn á í hálfleik og við það breytist leikurinn. RB sáu ekki til sólar frá því að seinni hálfleikurinn byrjaði og fram að 80. mínútu, en fyrirliði Valsmanna var duglegur að brjóta niður skyndisóknir RB áður en þær urðu að einhverju. Síðan toppaði hann frammistöðu sína með marki sem kom á mjög mikilvægum tíma.

Atvikið

Það er úr mörgu að velja en ég myndi segja að klúðrið hans Slawomir hafi verið atvik leiksins. Þetta klúður var í dýrari kantinum þar sem 10 mínútur voru eftir og staðan var 2-1 fyrir Val. Eftir góða hornspyrnu RB verður til eitthvað klafs í teignum þar sem boltinn var síðan skallaður til Slawomir sem var með markið galopið fyrir framan sig en hann skallaði boltann yfir markið. Maður sér sjaldan svona stórt klúður og sérstaklega þar sem Valur komst í 3-1 fimm mínútum síðar. Hver veit hvað hefði gerst ef RB hefðu náð að jafna á 80. mínútu og búið til eitthvað panik hjá Val.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er í pottinum í næsta drætti og eru komnir í 16 liða úrslit en bikardraumar RB urðu að engu.

Vondur dagur

Slawomir Jaworski. Ef og hefði og allt það en ég held að við hefðum fengið framlengingu ef hann hefði skorað úr þessu dauðafæri á 80. mínútu. Þegar þú færð svona færi þar sem markið er galopið fyrir framan þig áttu að skora. Þetta færi var í kringum 0.99xg

Dómarinn - 6.5

Það var ekki mikið að gera hjá ÞÞÞ í dag. Það var samt eitt atriði sem veldur því að ég gef honum ekki 10 eða 9. En mér fannst RB eiga að fá vítaspyrnu þegar Sveinn í marki Valsmanna traðkar á Slawomir. ÞÞÞ hristi bara hausinn og gaf ekkert. Annars ansi góður í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.