SKÝRSLAN: Þægilegur dagur á skrifstofunni hjá KA
Hvað réði úrslitum?
KA einfaldlega of stór biti fyrir Uppsveitirnar. KA var ekki með neina flugeldasýningu en nýtti föstu leikatriðin vel, bara þægilegur dagur á skrifstofunni hjá þeim.
Bestu leikmenn
1. Pætur Petersen
Leit vel út á undirbúningstímabilinu en verið slakur í fyrstu tveimur deildarleikjunum, gríðarlega gott fyrir hann að skora tvö í dag.
2. Dusan Brkovic
Það var ekki mikið að gera hjá honum í öftustu línu, hann fékk hins vegar nokkur tækifæri hinu megin á vellinum og nýtti það vel og skoraði tvö mörk.
Atvikið
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig fimm mörk var Hjörtur Geir Heimisson frábær í marki Uppsveita. Hann hefur ekki spilað fótbolta í 3 ár og var að redda liðinu þar sem aðalmarkvörðurinn er staddur á Tene. Hjörtur varði tvö skot í röð með stórkostlegum hætti eftir stundarfjórðung.
Hvað þýða úrslitin?
KA komið áfram í 16 liða úrslit en bikarævintýri Uppsveita lokið.
Vondur dagur
5-0 sigur en sóknarleikurinn var alltof hægur hjá KA í kvöld. Föstu leikatriðin skiluðu mörkum, verða sýna betri frammistöðu gegn Keflavík um helgina.
Dómarinn - 6
Það var svolítið ósamræmi í dómgæslunni fannst mér. Brot hér og þar sem var hægt að dæma á og svo öfugt.


