Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Mjólkurbikar karla
Framvöllur
Fram
Fram
2 - 3
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 16' Emil Skúli EinarssonOrri Sigurjónsson 12'1 - 11 - 230' Emil Skúli Einarsson1 - 343' Izaro Abella SanchezTiago Manuel Da Silva Fernandes 65'2 - 3
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Óvæntur sigur Þróttara í Úlfarsárdal

Hvað réði úrslitum?

Framarar réðu illa við föstu leikatriði Þróttara en fyrstu tvö mörk þeirra komu eftir horn og aukaspyrnu en þriðja markið kom eftir fyrirgjöf. Þróttur R. vörðust vel og voru grimmari en Framarar og komust því verðskuldað áfram í næstu umferð Mjólkurbikarsins.

Bestu leikmenn

1. Emil Skúli Einarsson

Emil skoraði 2 flott mörk og var mjög flottur í leiknum heilt yfir.

2. Sam Hewson

Fyrirliði Þróttara var mjög flottur átti góða stoðsendingu úr aukaspyrnu á Emil og stýrði varnarleik sinna manna vel.

Atvikið

Þriðja mark Þróttar R. sem Izaro Sanchez skoraði þýddi mikið fyrir liðið og gátu Þróttarar þá andað léttar þó aðeins um stund.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar komast áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins, en Framarar þurfa núna að setja einbeitinguna á deildina.

Vondur dagur

Fram liðið var ekki á sínum degi í dag en ef maður ætti að benda á einn mann var Hlynur Atli í miklu brasi í miðverðinum þrátt fyrir að hafa aðeins spilað fyrri hálfleik. Hlynur gaf klaufalega hornspyrnu sem Þróttarar skoruðu svo úr og missti einnig boltann yfir sig í þriðja marki Þróttar R.

Dómarinn - 7.5

Ívar Orri dómari leiksins og aðstoðarmenn hans áttu flottan dag í dag og ekkert við þá að sakast. Magnús Garðarsson aðstoðardómari, dæmdi mark Þóris Guðjónssonar af og tel ég það hafa verið réttur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.