SKÝRSLAN: Þróttarar létu KR-inga hafa fyrir hlutunum
Hvað réði úrslitum?
Fyrsta markið réði úrslitum, þá var alveg ljóst hvort liðið myndi vinna leikinn og þegar annað markið datt var einungis spurning um hversu stór sigurinn yrði. Þróttarar fá hrós fyrir virkilega gott skipulag í fyrri hálfleik og dugnað með í bland.
Bestu leikmenn
1. Theodór Elmar Bjarnason
Byrjar tímabilið mjög vel og var mjög góður í þriðja leiknum í röð. Á stóran þátt í fyrsta markinu.
2. Þórhallur Ísak Guðmundsson
Var góður milli stanganna í kvöld, góð tenging við varnarlínuna og stóð fyrir sínu.
Atvikið
Markið frá Olav Öby, sláin inn úr aukaspyrnu. Kom KR í 2-0 og úrslitin ráðin.
Hvað þýða úrslitin?
KR verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitunum í næstu viku. Liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð og haldið hreinu í tveimur leikjum í röð. Framundan hjá Þrótturum er barátta í 2. deild.
Vondur dagur
Fyrir fyrri hálfleikinn: Kennie Chopart. Mér fannst Kennie versti maður vallarins í fyrri hálfleik, nokkur upphlaup KR-inga sem enduðu með slakri sendingu frá fyrirliðanum, ekkert vesen á honum varnarlega en sendingarnar eitthvað vanstiltar sem drap taktinn. Hann svo auðvitað skorar fyrsta markið og endar í solid sjöu sem er mjög týpískt fyrir Kennie undanfarin ár, traustur leikmaður.
Dómarinn - 5,5
Var með fullmörg algjörlega óþarfa flaut þegar menn voru örlítið að láta finna fyrir sér. Línan: ,,Þetta er ekki körfubolti" kemur upp í kollinn.



