Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Mjólkurbikar karla
Egilshöll
Logn og fínn hiti í Egilshöllinni
Fjölnir
Fjölnir
0 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 117' Oliver Sigurjónsson 0 - 260' Ágúst Orri Þorsteinsson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
0-2 sigur niðurstaða og Blikarnir komnir í 16-liða úrslit, flott frammistaða hjá Fjölnismönnum gefum þeim það

Takk fyrir samfylgdina.
91. mín
Hvernig endaði þessi ekki í netinu??
Axel Freyr með geggjaða hreyfingu inn á teig, á sendingu fyrir sem fer af Damir og þaðan á fjær en einhvern veginn nær engin gul treyja að moka boltanum yfir línuna og markspyrna niðurstaðan.
90. mín
+3
Þrjár í uppbót frá dómarateyminu
88. mín
Lítið eftir
Tvær mínútur eftir af vemjulegum leiktíma og Fjölnismenn þurfa að fara skora ef þeir ætla að hleypa þessu í einhverja vitleysu
83. mín
Reynir...
Geggjuð skyndisókn hjá Fjölni eftir klúður hjá Blikum, frábær sending á fjær þar sem að Reynir er gapandi frír en ákveður að skjóta í fyrsta en Brynjar ver enn og aftur
81. mín
Bjarni strax farinn að valda usla!!
Bjarni vann boltann af Viktori Karli, tók einföld skæri á Damir og missir boltann út af en Brynjar gerir atlögu að þessu og Fjölnismenn vilja víti en ekkert dæmt!!
Fjölnir
80. mín
InnBjarni Þór Hafstein
ÚtÁrni Steinn Sigursteinsson
Gamli Blikinn
Bjarni Hafstein sem er uppalinn Bliki kominn inn á!
75. mín
Hvar er mannskapurinn?
Davíð með frábæra sendingu á fjær en endar bara við hliðarlínuna hinu megin

Vantaði grænar treyjur.
74. mín
Færi !
Dagur Ingi með sendingu inn á Dofra sem kom í "under lap-inu" og Dofri mokar boltanum framhjá markinu
Breiðablik
73. mín
InnDavíð Ingvarsson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
Fjölnir
70. mín
InnDagur Ingi Axelsson
ÚtHákon Ingi Jónsson
67. mín
Klæmint í færi
Höskuldur með hörku bolta meðfram jörðinni inn á teig þar sem Klæmint sem hittir boltann ekki nægilega vel
61. mín
Hákon Ingi enn og aftur
Aftur kemst Hákon Ingi inn á teig en hann fer á vinstri fótinn sinn og á ágætis skot rétt yfir markið!
Breiðablik
60. mín
InnJason Daði Svanþórsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
Ágætis skipting til að eiga inni
Breiðablik
60. mín
InnPatrik Johannesen
ÚtStefán Ingi Sigurðarson
Ágætis skipting til að eiga inni
Breiðablik
60. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtOliver Sigurjónsson
Ágætis skipting til að eiga inni
Breiðablik
60. mín
Ágúst Orri !!

Ágúst Orri Þorsteinsson

Vel spilað hjá Blikum fyrir framan teiginn, Wöhlerinn með sendingu fyrir markið sem fer í Sigurjón og einhvern veginn undir hann, svo dettur boltinn fyrir Ágúst Orra sem hamrar boltanum í autt markið!

0-2 !
58. mín
Brynjar Atli enn og aftur!!
Aftur kemur Axel Freyr með sendingu fyrir markið og þar mætir að mér sýndist Hákon Ingi á nær en Brynjar Atli lokar á hann með löppunum!

Fjölnismenn heldur betur búnir að fá tækifæri
57. mín
Hörkuskot
Águst Orri fær tíma fyrir utan teig og á flott skot svona framhjá/yfir markið
Fjölnir
56. mín
Fimmta spjaldið

Óliver Dagur Thorlacius

Breiðablik
55. mín
Stupid

Ágúst Orri Þorsteinsson

Ágúst Orri brýtur á Dofra og potar boltanum í burtu og fær gult spjald, óþarfi
53. mín
Afhverju ekki?
Wöhlerinn reynir skot frá miðju þar sem að Sigurjón var alltof framarlega, skotið ágætt en rétt yfir markið
52. mín
Flottur stuðningur
Verð að gefa gott hrós á Gulu Þrumuna - Stuðningsmannasveit Fjölnismanna

Búnir að syngja og tralla allann leikinn
48. mín
Róleg byrjun
Seinni farið rólega af stað, Blikar rétt í þessu að spila sig úr pressu Fjölnismanna þar sem að Alex Freyr komst inn á teig og átti skot en beint í Dofra

Fjölnismenn ekkert komist í boltann.
Breiðablik
46. mín
InnDamir Muminovic
ÚtOliver Stefánsson
46. mín
Seinni er farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Jæja kominn hálfleikur hér í Egilshöllinni þar sem Blikar eru 0-1 yfir.

Sjáumst aftur eftir korter.
45. mín
Meiðslaáhyggjur..
Oliver Stefánsson leggst niður og þarf að fá aðstoð frá Særúnu sjúkraþjálfara, Damir er að gera sig klárann.
45. mín
Daaaaauuuuuða færi !!!
Langur fram á Axel sem keyrir inn á teig, leggur boltann á Hákon sem tekur frábæra snertingu framhjá Viktori Erni og hann kemst einn gegn Brynjari sem ver frábærlega frá honum!!
44. mín
Kominn smá hiti í höllina
Aðalbjörn að fá alvöru hita frá Gulu þrumunni, Oliver Dagur hins vegar með skot tilraun af löngu færi en yfir markið fór boltinn
42. mín
Sigurjón!!
Alexander Helgi með aukaspyrnu inn á teig og mér sýndist Höskuldur einhvern veginn reyna að skora með hnénu, á allavega tilraun í nærhornið en Sigurjón með frábæra markvörslu!!
38. mín
Hornspyrna frá hægri hönd fyrir Fjölnismenn
Reynir Haralds með bolta inn á teig sem Stefán Ingi skallar frá
33. mín
Fjölnismenn að ógna
Fjölnismenn með flotta skyndisókn en Reynir Haralds nær ekki að koma með nægilega góðan bolta fyrir markið, hittir ekki samherja
28. mín
Hans hátign í brasi
Alltof lengi að losa boltann, Blikar vinna boltann og Ágúst Orri kemst inn á teig og á slakt skot sem Sigurjón ver.

Stefán Ingi sest svo kjölfarið í jörðina en stendur svo upp, virðist vera í lagi með kappann.
28. mín
Mark en dæmt af!!
Sýndist að Stefán Ingi hafi skorað en AD 1 með flaggið á lofti og rangstæða niðurstaðan.
Fjölnir
27. mín
Þriðja spjaldið

Guðmundur Karl Guðmundsson

Aðalbjörn spjaldaglaður

Vissulega allt rétt hjá honum
Breiðablik
24. mín
Wöhlerinn Yellow

Eyþór Aron Wöhler

Aðeins of seinn í Dofra
23. mín
Fjölnismenn fá hornspyrnu
Reynir Haralds með hörku spyrnu á fjær, skalli fyrir markið en Oliver Sigurjónsson mættur að hreinsa frá
18. mín
Skyndisókn!
Blikar leysa úr pressu Fjölnimanna og Wöhlerinn tekur 50 metra sprett að markinu, inn á teig og kýs að skjóta frekar en að gefa hann og boltinn endar í höndunum á Sigurjóni.

Klæmint inn á teig í dauðafæri gapandi frír
Breiðablik
17. mín
MARK!!!

Oliver Sigurjónsson

Hornspyrna á fjær, boltinn skallaður frá teignum svo vinna Fjölnismenn skallaeinvígi rétt fyrir utan teig, boltinn dettur út fyrir Oliver sem á skot í fyrsta skoppandi í nærhornið og Sigurjón haggast ekki í markinu.

0-1.
14. mín
Brynjar Atli!!
Fjölnismenn komast inn í teig Blika, boltinn dettur óvænt fyrir fætur Hákons Inga sem á hörku skot en Brynjar Atli ver þetta vel og VÖM hreinsar frá.
Fjölnir
13. mín
Fyrsta gula

Júlíus Mar Júlíusson

Brot rétt fyrir utan teig
12. mín
Blikar að klkka aftast
Fjölnismenn pressa Brynjar Atla sem kemur með slaka sendingu í átt að Alex Helga sem missir af honum

Axel Freyr vinnur boltann en á slakt skot framhjá markinu
10. mín
Wöhlerinn!
Boltinn dettur óvænt fyrir Eyþór Wöhler fyrir utan teig þar sem hann reynir skot í fyrsta en skotið er rétt yfir markið.
8. mín
Fjölnismenn ógna
Axel Freyr með hörku sprett upp hægri kantinn, reynir sendingu fyrir markið en Oliver tæklar í horn.
8. mín
Byrjunarlið Blika
6. mín
Stefán Ingi í færi!
Skemmtilegt spil Blika þar sem að Stefán Ingi kemst inn á teig vinstra megin og á skot í fjærhornið en rétt framhjá fór boltinn
5. mín
Fyrsta skot á mark
Ágúst Orri kemst í ákjósanlega stöðu fyrir framan teig og á ágætis skot í nærhornið og Sigurjón slær boltann í hornspyrnu
3. mín
Klæmint nálægt því að skora
Fjölnismenn skalla til baka á Sigurjón í markinu og boltinn skoppar illa fyrir KLæmint sem er nálægt því að pota boltanum í markið
2. mín
Oliver Stef smá shaky..
Blikar að reyna spila úr öftustu línu og kemur með slaka sendingu á Brynjar í markinu sem hreinsar frá í gula treyju og í markspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað, megi þetta vera geggjaður leikur
Alvöru gæsahúð fyrir leik, Deyja fyrir hópinn minn með K-Axel spilað þegar að liðin labba inn á völlinn

Þá veit maður að maður er kominn í Grafarvoginn.
Fyrir leik
Ungir menn að spreyta sig
Gaman að sjá í báðum byrjunarliðum að Fjölnismenn eru með tvo leikmenn fædda 2004, þá Júlíus Júlíusson, Daníel Ingvarsson svo Árna Stein sem er 2003. Hjá Blikum er Ágúst Orri (2005) að byrja, verður gaman að fylgjast með þessum strakum í dag.
Fyrir leik
Sæmilegi bekkurinn hjá Blikum
Davíð Ingvarsson kemur inn í hóp Blika en hann fór i aðgerð á ökkla 1.mars. Damir, Viktor Karl, Patrik J, Jason Daði, Ágúst Eðvald

Þetta er alvöru bekkur.
Fyrir leik
Nýju mennirnir fá að spreyta sig
Talandi um Tweet-ið hjá Óskari Hrafni þá verða tölurverðar breytingar frá liðinu sem byrjaði gegn Val. Alex Freyr, Oliver Stefáns, Kleiment Olsen, Eyþór Wöhler, Ágúst Orri og að ég held, Stefán Ingi eru allir að byrja sinn fyrsta alvöru leik fyrir Blika í dag. Verður mjög áhuagvert að fylgjast með hvernig samspil Blika verður í þessum leik.
Fyrir leik
Gamla góða Egilshöllin...
Aðstæður dagsins eru í umdeildari kantinum. Þar sem að Extra-völlurinn er ekki klár á þessum tíma árs þá verður leikið í Egilshöllinni, það fyrsta sem menn hugsa líklega þegar þeir heyra "Egilshöllin" er krossbandslit og það er spurning hvort menn fara eitthvað varkárir inn í leikinn með það á bakvið eyrað, það er spurning.
Fyrir leik
Fjölnismenn líta vel út
Ég hef heyrt frá ýmsum stöðum frá leikmönnum í Lengjudeildinni að Fjölnismenn líta virkilega vel út hef heyrt meira að segja orðið "Scary" þannig ég hlakka til að sjá hvernig Fjölnismenn mæta til leiks í dag.
Fyrir leik
Blikar fengu sjálfstrausts-sprautu á Hlíðarenda
Eftir slysið, ef svo má kalla gegn HK í fyrstu umferð gerðu Blikar sér lítið fyrir og unnu góðan og mikilvægan 0-2 sigur gegn Völsurum þannig trúi ekki öðru en að Blikar komi bara fullir sjálfstrausts inn í þennan leik.
Fyrir leik
Fjölnismenn fengu notalegan drátt í 64-liða
Fjölnismenn fengu ekkert sérstaklega erfiðan drátt í 64 liða úrslitum þar sem að þeir fengu lið Kríu frá Seltjarnarnesi, mótspyrnan var ekki mikil og enduðu leikar 0-10 fyrir Fjölnismenn, gaman að sjá að í þeim leik skoraði Árni Steinn Sigursteinsson 4 mörk, strákur sem er aðeins 20 ára gamall.
Fyrir leik
Svona verður lið Blika samkvæmt Óskari Hrafni
Það kom líklega mörgum á óvart á mánudaginn þegar að Óskar Hrafn drap niður penna á Twitter, daginn eftir sigurinn 2-0 sigurinn á Val þar sem hann tilkynnti byrjunarliðið. Rosalegt tweet sem fékk mikil viðbrögð.

Fyrir leik
Innanhúsleikur í Mjólkinni
Dömur mínar og herrar veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Egilshöllinni þar sem að Fjölnismenn fá Breiðablik í heimsókn í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Þetta verður leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.