Leik lokið!
97. mín
Fram fær aukaspyrnu Ólafur Íshólm er kominn fram boltinn endar hjá Adami Erni sem er í erfiðu færi og skallar framhjá.
97. mín
Gult spjald
Hinrik Harðarson
Leiktöf95. mín
Nú er tíminn ekki að með Frömurum í liði en þeir eru ekki að ná að skapa sér nægilega góð færi og Þróttarar nýta hvert tækifæri til að tefja.
91. mín
Leikmaður Þróttar liggur niðri, það má búast við enn lengri uppbótartíma.
91. mín
Brynjar Gauti með kraftlítinn skalla sem Sveinn Óli á auðvelt með að handsama.
90. mín
Fimm mínútum bætt við!
90. mín
InnEgill Otti Vilhjálmsson
ÚtÞórir Guðjónsson
89. mín
Gummi Magg alltaf hættulegur!
Gummi fær erfiðann bolta á fjærstöng en nær að leggja boltann fyrir sig og komast í skotið en Sveinn Óli ver vel.
87. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtKostiantyn Iaroshenko
87. mín
InnNjörður Þórhallsson
ÚtErnest Slupski
83. mín
Gult spjald
Orri Sigurjónsson
82. mín
Frábær tækling
Þórir Guðjóns við það að fara sleppa í gegn en Kostiantyn Pikul kemur með stórkostlega tæklingu og kemur boltanum frá.
81. mín
Magnús Þórðarson kemur með fyrirgjöf á Gumma Magg sem skallar yfir.
80. mín
Líflegir Köttarar
Stuðningsmenn Þróttar búnir að vera til fyrirmyndar hér í kvöld og fagna hverri einustu tæklingu!
79. mín
Smá pirringur kominn í Framara sem sækja stíft.
78. mín
InnHinrik Harðarson
ÚtGuðmundur Axel Hilmarsson
75. mín
InnÓskar Jónsson
ÚtTiago Manuel Da Silva Fernandes
67. mín
InnAron Snær Ingason
ÚtIzaro Abella Sanchez
Aron Snær að koma inn á fyrir Þróttara en hann er á láni frá Fram.
65. mín
Framarar að galopna leikinn!
Tiago að minnka muninn!
Tiago Manuel Da Silva Fernandes
Tiago tekur hnitmiðað skot inn í D-boganum sem endar í hliðarnetinu.Framarar að galopna leikinn!
63. mín
InnGuðmundur Magnússon
ÚtAlbert Hafsteinsson
Gummi Magg að koma inn á!
Vonandi kemur hann inn með mörk fyrir Framara.
59. mín
Gott skot hjá Hewson
Sam Hewson lætur vaða langt fyrir utan teig, boltinn fer rétt framhjá marki heimamanna.
58. mín
Adam Örn með hressilega tæklingu
Adam Örn Arnarson
Adam Örn fer af fullum krafti í Ernest og fær verðskuldað gult spjald.55. mín
Fínasta aukaspyrna
Orri brýtur á Ernest Slupski og Þróttur fær aukaspyrnu, Kostiantyn Iaroshenko tekur góða spyrnu en Ólafur Íshólm blakar boltanum yfir og í horn.
52. mín
Gult spjald
Már Ægisson
47. mín
Þórir skorar en er flaggaður rangstæður!
Fram fær aukaspyrnu utan af velli Tiago kemur með góðan bolta á Þóri sem stangar boltann í netið en er aðstoðadómarinn lyftir flagginu.
46. mín
InnAron Jóhannsson
ÚtHlynur Atli Magnússon
Nonni gerir tvær breytingar á liði sínu í hálfleik.
46. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtFrederico Bello Saraiva
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað
Framarar byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Stórskemmtilegur fyrri hálfleikur senn á enda
Frábær fyrri hálfleikur að klárast, Þróttarar hafa spilað frábærlega en Framarar geta ekki verið jafn sáttir með sína spilamennsku hér í fyrri hálfleik.
43. mín
Sanchez að tvöfalda forystu Þróttara!
Izaro Abella Sanchez
Ernest Slupski kemur með fyrirgjöf á fjærstöng Hlynur Atli missir af boltanum, Izaro Sanchez er alveg einn getur tekið á móti boltanum og klárar frábærlega!41. mín
Fyrsta spjald leiksins
Breki Baldursson
Breki stöðvar skyndisókn Þróttar með því að rífa niður mann og fær verðskuldað gult spjald.40. mín
Gott skot Þóris
Þórir Guðjóns með gott skot sem Sveinn Óli ver í horn.
39. mín
Framarar fá svipað færi!
Fred Saravia kemur með góðan bolta fyrir framan mark Þróttar R. en enginn Framari mættur til að setja boltann í netið.
37. mín
Stórhættulegt færi Þróttara!
Eiríkur Þorsteinsson kemur með frábæran bolta fyrir markið en Guðmundur Axel nær ekki að reka stóru tá í boltann, Framarar stálheppnir þarna.
32. mín
Framarar sækja
Már Ægisson á marktilraun fyrir utan teig, boltinn fer rétt framhjá marki Þróttara.
30. mín
Þróttarar stórhættulegir í föstum leikatriðum!
Emil kemur Þrótti aftur yfir!!
Emil Skúli Einarsson
Þróttarar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu boltinn, Sam Hewson tekur og sendir hann beint á pönnuna á Emil Skúla sem stýrir honum frábærlega í fjærhornið.Þróttarar stórhættulegir í föstum leikatriðum!
23. mín
Góð tilraun Sanchez
Izaro Sanchez keyrir inn á vinstri fótinn og á fast skot sem endar yfir markinu.
20. mín
Leikurinn búinn að vera mjög opinn og skemmtilegur þessar fyrstu 20 mínútur hér í Úlfarsárdal.
17. mín
Fram í góðu færi
Breki Baldurs fær háann bolta fyrir sem hann skallar rétt framhjá.
16. mín
Þróttarar ógna
Ernest Slupski á gott skot sem Ólafur Íshólm ver frábærlega og í horn.
12. mín
Bæði mörk leiksins hafa komið úr hornspyrnum!
Fram svarar!
Orri Sigurjónsson
Fram fær horn og boltinn fer á fjærstöng þar sem Orri Sigurjóns stangar boltann í netið og skorar sitt fyrsta mark fyrir félagið.Bæði mörk leiksins hafa komið úr hornspyrnum!
6. mín
Draumabyrjun Þróttara!
Þróttarar að komast yfir!
Emil Skúli Einarsson (stoðsending: Izaro Abella Sanchez)
Þróttarar fá horn, boltinn berst út á Izaro Sanchez sem tekur skot sem berst á Emil Skúla á markteig sem stýrir boltanum örugglega í netið.Draumabyrjun Þróttara!
5. mín
Vandræðagangur í vörn Fram
Misskilningur milli Hlyns Atla og Óla Íshólm í öftustu línu Fram sem endar þannig að Hlynur þarf að hreinsa í horn.
4. mín
Fyrsta skot leiksins
Þórir Guðjóns á fyrirgjöf á fjærstöng á Adam Örn en hann skýtur hátt yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Þróttarar byrja með boltann!
Sam Hewson á upphafsspark leiksins og sækja Þróttarar í átt að Dalslaug.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Nonni Sveins þjálfari Fram gerir 5 breytingar á liði sínu frá síðasta deildarleik. Þeir Orri Sigurjóns, Þórir Guðjóns, Breki Baldurs, Adam Örn og Tiago eru allir komnir inn í liðið. Góðar fréttir fyrir Framara að Tiago sé kominn aftur inn í liðið sem var að kljást við meiðsli, Gummi Magg byrjar á bekknum í dag en hann hefur byrjað tímabilið mjög vel.
Spennandi verður að sjá Breka Baldursson en það er strákur fæddur árið 2006 og á leiki með yngri landsliðum íslands.
Ian Jeffs gerir tvær breytingar á liði sínu frá síðasta bikarleik þeir Guðmundur Axel Hilmarsson og Kostiantyn Iaroshenko koma báðir inn í liðið á kostnað Njarðar Þórhallssonar og Birkis Björnssonar.

Spennandi verður að sjá Breka Baldursson en það er strákur fæddur árið 2006 og á leiki með yngri landsliðum íslands.
Ian Jeffs gerir tvær breytingar á liði sínu frá síðasta bikarleik þeir Guðmundur Axel Hilmarsson og Kostiantyn Iaroshenko koma báðir inn í liðið á kostnað Njarðar Þórhallssonar og Birkis Björnssonar.

Fyrir leik
Tríóið
Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna en honum til halds og trausts á sitthvorri línunni eru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Magnús Garðarsson.
Eftirlitsmaður leiksins er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Eftirlitsmaður leiksins er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Fyrir leik
Framarar virða punktinn
Fyrstu tveir leikir Fram í Bestu deildinni hafa báðir endað með jafntefli þar sem liðið hefur í bæði skiptin glatað niður eins marks forystu.
Spennandi verður að sjá hvort að Tiago verði í byrjunarliðinu en hann er að koma til baka eftir meiðsli.
Guðmundur Magnússon hefur ekkert gefið eftir frá síðasta tímabili og hefur hann skorað 2 mörk í 2 leikjum í Bestu deildinni.

Spennandi verður að sjá hvort að Tiago verði í byrjunarliðinu en hann er að koma til baka eftir meiðsli.
Guðmundur Magnússon hefur ekkert gefið eftir frá síðasta tímabili og hefur hann skorað 2 mörk í 2 leikjum í Bestu deildinni.

Fyrir leik
Frábær byrjun Þróttara
Þróttur R. fengu þægilegan drátt í Mjólkurbikarnum þar sem þeir léku á móti 5. deildarliði Stokkseyris í fyrstu umferð bikarsins og fóru leikar þar 18-0 fyrir Þrótturum.
Í 64. liða úrslitum léku Þróttarar á móti KFS og unnuþeir þar öruggan 5-0 sigur á Eyjamönnum.
Flott byrjun á bikarnum hjá Kötturum!

Í 64. liða úrslitum léku Þróttarar á móti KFS og unnuþeir þar öruggan 5-0 sigur á Eyjamönnum.
Flott byrjun á bikarnum hjá Kötturum!

Fyrir leik
32-liða úrslit mjólkurbikarsins!
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu beint frá Úlfarsárdal í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þar sem Framarar taka á móti Þrótti Reykjavík.






Viðtöl og skýrsla innan skams.