Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Mjólkurbikar karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 0
ÍBV
ÍBV
95' Bjarki Björn GunnarssonSindri Þór Ingimarsson 122'1 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Stjarnan er komið áfram í 16 liða úrslit!

Hádramatískur endir hérna skilar Garðbæingum áfram. Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
123. mín
Eyjamenn eiga skot yfir
Lokaspyrna leiksins er skot frá Eyjamönnum sem fer rétt yfir.
Stjarnan
122. mín
Hádramatískt mark á lokamínútunum!

Sindri Þór Ingimarsson

Stjarnan búið að vera miklu betra liðið í framlengingunni og eru verðskuldað komnir yfir.

Boltinn kemur inn í teig þar sem Sindri fær að skalla á markið alveg óáreittur og klárar í markið.

121. mín
Uppbótartíminn er 3 mínútur.
119. mín
Stjarnan er algjörlega dominerandi núna en eru ekki að ná loka boltanum.
115. mín
Guðmundur aftur í frábæru færi
Ísak hleypur upp kantinn og kemur með góðan bolta fyrir en skotið frá Guðmundi varið og aftur er hornspyrna.
114. mín
Guðmundur Baldvin aftur kominn í fínt færi en hann skýtur í varnarmann og Stjarnan fær horn.

Ekkert kom úr því.
Stjarnan
113. mín
InnRóbert Frosti Þorkelsson
ÚtGuðmundur Kristjánsson
110. mín
Guðmundu Baldvin svo nálægt því að koma Stjörnunni yfir
Kjartan hleypur upp vinstri kantinn og gerir mjög vel í að fara framhjá einum og setja svo boltan fyrir.

Guðmundur fær þá boltan og tekur skotið í upplögðu færi en skýtur framhjá.
106. mín
Dauðafæri fyrir Stjörnuna
Eggert hleypur með boltan upp vinstri kantinn og kemur með frábæra sendingu fyrir markið en enginn bláklæddur er mættur til að pota boltanum í opið markið.
106. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
ÍBV
106. mín
InnÓlafur Haukur Arilíusson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
105. mín
Fyrri hálfleikur búinn
Vilhjálmur Alvar flautar til loks fyrri hálfleiks
105. mín
Uppbótartíminn er 1 mínúta.
105. mín
Kjartan í mjög góðu færi fyrir Stjörnuna en hann skýtur í varnarmann og heimamenn fá horn.
104. mín
Gummi Kristjáns á hér skot fyrir utan teig sem er nokkuð gott en ekki nógu fast og Jón Kristinn ver.
103. mín
Stjörnumenn keyra upp í skyndisókn og Ísak kemst í gott skotfæri en skotið hans fer hátt yfir markið.
99. mín
Breki Ómarsson á hér fínt skot fyrir utan teig en boltinn fer framhjá.
ÍBV
95. mín
Bjarki er að fá sitt annað gula spjald hérna!

Bjarki Björn Gunnarsson

Hann reyndi að stoppa skyndisókn Stjörnumanna. Hárréttur dómur.
93. mín
Eyjamenn í fínu færi inn á teig en skotið fer í varnarmann.
91. mín
Framlengingin er hafin!
90. mín
Við erum á leiðinni í framlengingu!
+6

Vilhjálmur flautar leikinn af og það er ljóst að við þurfum auka 30 mínútur til að fá sigurvegara.
90. mín
+6

Stjarnan fær hornspyrnu á lokamínútum leiksins en þeir ná ekki að gera nætt með það.
Stjarnan
90. mín
Gult spjald

Kjartan Már Kjartansson

Stjarnan
90. mín
InnKjartan Már Kjartansson
ÚtHeiðar Ægisson
+5
90. mín
Átti þetta að vera víti?
Þessi mynd náðist áðan þegar Stjarnan bjargaði á línu. Þetta lítur út fyrir að hafa verið víti.

90. mín
Stjörnumenn vilja aftur víti
+2

Ísak Andri hleypur með boltan inn á teig og fellur svo við. Stjörnumenn vilja víti en þetta lítur frekar út fyrir að vera bara öxl í öxl.
90. mín
Uppbótartíminn er 5 mínútur.
89. mín
Jóhann með gott skot fyrir utan teig
Stjarnan kemst í góða sókn sem endar með að Jóhann Árni fær boltan fyrir utan teig og hann á gott skot sem er varið af Jóni Kristni.
87. mín
Stjörnumenn bjarga á línunni!
Eyjamenn eiga aukaspyrnu og þeir setja boltan inn í teig þar sem Eiður nær skallanum á markið og boltinn er á leiðinni inn. En mér sýnist það hafa verið Örvar sem nær að bjarga boltanum á línunni.
Stjarnan
86. mín
InnGuðmundur Baldvin Nökkvason
ÚtAdolf Daði Birgisson
ÍBV
83. mín
InnFilip Valencic
ÚtJón Ingason
ÍBV
81. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtHermann Þór Ragnarsson
80. mín
Enn og aftur kemst Ísak í góða stöðu á vinstri kantinum en í þetta skipti gerir Elvis mjög vel og nær að vísa honum bara útaf vellinum og niðurstaðan er markspyrna.
Stjarnan
73. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtJosep Arthur Gibbs
72. mín
Stjarnan heldur áfram að komast í hættulegar stöður. Í þetta skipti er það Eggert sem kemst upp kantinn en fyrirgjöfin fer í varnarmann og þeir fá horn.
69. mín
Svakalegt skallafæri fyrir Gibbs
Stjarnan fær aðra aukaspyrnu og í þetta sinn setur Jóhann boltan inn í teig.

Spyrnan er alveg frábær og fer beint á kollinn á Joey Gibbs sem er alveg óáreittur en skallinn er lélegur og fer framhjá.
68. mín
Jóhann Árni með skot úr aukaspyrnu en spyrnan er arfaslök og fer hátt yfir.
ÍBV
67. mín
Gult spjald

Sigurður Arnar Magnússon

62. mín
Stjörnumenn vilja víti
Ísak hleypur með boltan inn á teig og fellur síðan við. Vilhjálmur gefur merki um að ekkert brot hafi átt sér stað en heimamenn verða alveg brjálaðir.

Miðið við endursýningar þá hefði alveg verið hægt að dæma á þetta en líka alveg skiljanlegt að hann sleppti þessu.
59. mín
Stangarskot hjá Ísak
Enn og aftur ná Stjörnumenn að búa til fínt færi frá vinstri kantinum þar sem Jóhann kemur með frábæran bolta yfir á Ísak sem á skot í stöng.
55. mín
Leikurinn búinn að vera stopp í töluverðan tíma núna þar sem það gengur eitthvað svakalega brösulega fyrir Sigurð að reima skóna.
50. mín
Hættuleg hornspyrna hjá ÍBV en þeir skalla rétt framhjá.
48. mín
Þrumuskot hjá ÍBV
Sigurður Arnar fær boltan rétt fyrir utan teig og skotið hans fer rétt yfir markið.

Eyjamenn byrja þennan hálfleik vel.
46. mín
Dauðafæri hjá Alex Frey
ÍBV á hornspyrnu sem Stjörnumenn skalla frá en boltinn fer ekki lengra en á á Alex sem er aleinn á teignum og hann tekur skotið en það eru of margir varnarmenn fyrir.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Landsliðsþjálfarinn er á staðnum
Gaman er að segja frá því að Age Haareide er mættur á staðinn til að skoða mögulega einhverja leikmenn.
Hér situr hann fyrir leik
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik en búið að vera slatti af fínum færum. Byðjum bara um betri færanýtingu í seinni hálfleik.
45. mín
Uppbótartíminn er 1 mínúta.
42. mín
Örvar og Ísak spila virkilega vel saman upp vinstri kantinn og ná að búa til hálffæri fyrir Ísak en hann skýtur yfir markið.
38. mín
Jóhann Árni með stórhættulega hornspyrnu sem Jón Kristinn er í bullandi vandræðum með en nær að kíla boltan yfir markið.
ÍBV
38. mín
Gult spjald

Guðjón Ernir Hrafnkelsson

Frekar ljótt brot á Ísak.
37. mín
ÍBV fær aukaspyrnu við hlið teigsins og eru því í fínni fyrirgjafarstöðu.

Bjarki tekur spyrnuuna en hún er skölluð frá.
34. mín
Eggert með frábæra sendingu inn fyrir á Ísak sem tekur full langan tím í að ákveða hvað hann á að gera. Það verður að því að skotfærið þrengist og hann skýtur því hátt yfir.
27. mín
ÍBV með fína hornspyrnu sem Árni þarf að kýla frá. Boltinn endar hjá Elvis sem er aleinn inn í teig en skotið hans fer hátt yfir.
26. mín
Felix Örn með fast skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá.
21. mín
Skrítinn rangstöðu dómur hérna.

Sverrir Páll var sloppinn í gegn eftir að Sindri hittir ekki boltan og gefur hann eiginlega beint á hann. Aðstoðardómari flaggar hinsvegar rangstöðu sem ég skil ekki alveg þar sem það var Stjörnumaður sem snerti síðast boltan.
ÍBV
18. mín
Gult spjald

Bjarki Björn Gunnarsson

Fyrir brot sem gerðist fyrr.
17. mín
Dauðafæri fyrir Stjörnuna
Eggert gerir vel í að færa boltan upp völlin og kemur svo með frábæra sendingu á Ísak sem er sloppinn í gegn. Ísak stígur svo út einn varnarmanninn og tekur skotið sem er á leiðinni í niður í hornið en Jón Kristinn ver vel.

15. mín
Eyjamenn í fyrstu álitlegu sókninni sinni þar sem Elvis kemur með fína fyrirgjöf en Árni er vel á verði í markinu og kemur út til að handsama boltan.
12. mín
Ísak Andri með alveg svakalega takta til að færa Stjörnu liðið hærra upp völlinn. Hann færir boltan síðan yfir á Örvar sem reynir fyrirgjöfina en hún fer í varnarmann og úr verður hornspyrna sem ekkert kemur úr.
7. mín
Leikurinn stöðvaður þar sem Sindri og Bjarki hoppa upp í skallabolta en enda á að skalla hvorn annan í stað boltans. Þeir standa báðir upp á endanum og virðast ætla að halda áfram leik.
6. mín
Eyjamenn í bullandi veseni í vörninni þar sem Adolf og Ísak reyna að prjóna sig í gegnum hana. Það munar ekki miklu en gestunum tekst að hreinsa frá á endanum.
4. mín
Uppstilling ÍBV:
Jón Kristinn
Elvis - Eiður - Jón
Guðjón - Bjarki - Sigurður - Alex - Felix
Sverrir - Hermann
4. mín
Uppstilling Stjörnunnar:
Árni
Heiðar - Daníel - Sindri - Örvar
Jóhann - Guðmundur - Eggert
Adolf - Gibbs - Ísak
3. mín
Jóhann Árni tók spyrnuna en skaut rétt yfir markið.
3. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og eru í góðu skotfæri.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er stórleikur umferðarinnar í Mjólkurbikarnum farinn af stað!
Fyrir leik
Byrjunarlið ÍBV
Hermann Hreiðarsson gerir einnig tvær breytingar á sínu liði en þeir töpuðu í síðasta leik 3-0 gegn KA á Akureyri. Það eru þeir Sverrir Páll Hjaltested og Hermann Þór Ragnarsson sem kom inn í liðið á kostnað Filip Valencic og Tómas Bent Magnússonar.

Sverrir Páll Hjaltested
Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar
Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði 1-0 gegn FH um síðustu helgi. Það eru þeir Heiðar Ægisson og Daníel Laxdal sem koma inn í liðið á kostnað Hilmars Árna Halldórssonar og Björns Berg Bryde.

Hilmar Árni Halldórsson
Fyrir leik
Dómari leiksins
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður dómari þessa leiks og línuverðirnir verða Andri Vigfússon og Eðvarð Eðvarðsson.

Eftirlitsmaður er Ingvar Örn Gíslason og varadómari er Arnar Ingi Ingvarsson
Fyrir leik
ÍBV einnig stigalausir
ÍBV hefur ekki byrjað tímabælið mikið betur þar sem þeir hafa líka tapað báðum leikjunum sínum í Bestu deildinni og síðast var það 3-0 tap gegn KA á Akureyri.
Fyrir leik
Stjarnan byrjar tímabilið illa
Stjarnan hefur tapað báðum leikjunum sem þeir hafa spilað í Bestu deildinni á þessu tímabili og síðast var það 1-0 tap gegn FH á útivelli.
Fyrir leik
32-liða úrslit Mjólkurbikarsins!
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsing frá viðureign Stjörnunnar og ÍBV í Mjólkurbikar karla. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og verður spilaður á heimavelli Stjörnunnar í Garðabænum
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.