Leik lokið!
KR áfram í 16-liða úrslit
Búið!
91. mín
KR fær horn.
86. mín
Hrafn átt góðan seinni hálfleik hjá KR, kemur sér núna í fína stöðu en Þórhallur sér við honum.
85. mín
Haukur Darri með skot en það er laust og Simen ekki í neinum vandræðum.
85. mín
InnLeó Kristinn Þórisson
ÚtÁsgeir Marinó Baldvinsson
84. mín
Klúður
Atli í dauðafæri eftir gott spil. Agalegt slútt hins vegar.
82. mín
InnJón Arnar Sigurðsson
ÚtKennie Knak Chopart
82. mín
InnÆgir Jarl Jónasson
ÚtOlav Öby
81. mín
Dauðafæri
Sigurður Bjartur fær tvöfaldan séns inn á markteig, fyrst bjargað meistaralaga en svo slysalegt klúður.
79. mín
MAAAARK!
Hreinn Ingi Örnólfsson (stoðsending: Kristinn Jónsson ) (sjm)
Fyrirgjöf frá Kidda sem Hreinn setur í eigið net.77. mín


Eyjólfur Garðarsson tók þessar myndir af Olav og fagninu.



Eyjólfur Garðarsson tók þessar myndir af Olav og fagninu.
75. mín
Þróttarar fá hornspyrnu, KR verst vel og Luke kemst í færi hinu megin. Skotið yfir.
70. mín
Kristinn með fína fyrirgjöf en skallinn frá Atla fer framhjá. Fínasta færi.
67. mín
InnSigurður Bjartur Hallsson
ÚtKristján Flóki Finnbogason
67. mín
InnAtli Sigurjónsson
ÚtBenoný Breki Andrésson
66. mín
InnMagnús Snær Dagbjartsson
ÚtÓlafur Örn Eyjólfsson
65. mín
Kennie bjargar því að Ásgeir rölti í gegnum allt KR liðið.
63. mín
InnKristinn Jónsson
ÚtJóhannes Kristinn Bjarnason
60. mín
Sláin inn!
Olav Öby (stoðsending: Theodór Elmar Bjarnason)
Frábær aukaspyrna frá Norðmanninum. Í markmannshornið en í slána og yfir marklínuna. AD2 lyfti flagginu og sagði boltann hafa farið yfir línuna.60. mín
Elmar vinnur aukaspyrnu við vítateiginn.
59. mín
Flottur sprettur frá Luke og Benoný fær boltann í fínu færi. Skot hans hins vegar í varnarmann.
57. mín
Hörkumínúta!
Fyrst ver Þórhallur frá Jóa Bjarna, Þróttar bruna upp og Ásgeir er í álitlegri stöðu en skot hans með vinstri er beint á Simen sem ver auðveldlega.
55. mín
Luke vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað.
Tilraun eftir aukaspyrnu Olavs en hún fer framhjá.
Tilraun eftir aukaspyrnu Olavs en hún fer framhjá.
54. mín
Þróttarar með tilraun, sýndist það vera Haukur sem á skot en Simen skutlar sér og ver til hliðar.
52. mín
KR brýtur ísinn
Kennie Knak Chopart
Elmar með fyrirgjöf út í teiginn sem skölluð er í burtu en ekki nógu langt. Kennie nær til boltans við teiginn og á skot niðri í vinstra markhornið.51. mín
Flóki fékk sendingu inn fyrir, Þórhallur gerir mjög vel og lokar.
KR fékk í kjölfarið tvö horn.
KR fékk í kjölfarið tvö horn.
48. mín
Benoný með fyrirgjöf, Hrafn nær skallanum en hann er af löngu færi og Þórhallur grípur.
46. mín
InnHaukur Darri Pálsson
ÚtAgnar Guðjónsson
Það var bara víst ein breyting. Kári fer á vinstri og Haukur fram.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Engin breyting sjáanleg við upphafsflaut.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust. KR byrjaði aðeins að banka í lok fyrri. Þróttarar verið vel skipulagðir og með sitt leikplan á hreinu. Heimamenn full hægir og hugmyndasnauðir sóknarlega.
45. mín
Luke í dauðafæri á markteignum en hittir ekki boltann eftir fyrirgjöf Flóka.
44. mín
Benoný í fínu færi vinstra megin í teignum en skýtur framhjá nærstönginni.
37. mín
Gult spjald
Helgi Snær Agnarsson
,,Má ekki tækla í fótbolta?" spyrja Þróttarar. Allt annað en sáttir. Helgi renndi sér og brotið er við miðlínu.35. mín
Elías dæmir aukaspyrnu á miðjum velli á Þróttara. Hlýtur að hafa sýnt takkana því frá mér séð virkaði þetta afskaplega ódýrt.
33. mín
Hornið tekið stutt, eftir sprett frá Elmari fellur boltinn fyrir Jóhannes sem lætur vaða en skotið framhjá.
32. mín
KR fær horn.
30. mín
Hrafn með stungu inn á Flóka sem lætur vaða en skotið framhjá. Flaggið fer svo á loft.
29. mín
Vel spilað hjá Þrótturum og Kári á tilraun sem Simen ver vel. Flaggið fer svo á loft.
27. mín
Smá hætta inn á vítateig Þróttara en engin tilraun sem hægt er að segja frá.
26. mín
,,Leyfum þessum að vera með boltann" segja Þróttarar um Olav sem er djúpur miðjumaður KR.
22. mín
Benoný krækir í aukaspyrnu á álitlegum stað.
Spyrnan frá Olav beint í hendur Þórhalls.
Spyrnan frá Olav beint í hendur Þórhalls.
18. mín
KR meira með boltann en ekkert að skapa. Þróttarar sýnt að þeir geta alveg ógnað líka.
8. mín
Jói Bjarna (sýndist mér) með fyrstu tilraun KR. Þórhallur grípur skotið.
8. mín
Þróttur
Þórhallur
Dagur-Haukur-Hreinn-Anton-Helgi
Stefán-Ólafur-Ásgeir-Agnar
Kári
Dagur-Haukur-Hreinn-Anton-Helgi
Stefán-Ólafur-Ásgeir-Agnar
Kári
4. mín
Þróttarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
Hreinn nær skalla en hann er laus og Simen grípur.
Hreinn nær skalla en hann er laus og Simen grípur.
3. mín
KR
Simen
Rúrik-Kennie-Jakob-Elmar
Olav
Luke-Hrafn-Jóhannes-Benoný
Flóki
Rúrik-Kennie-Jakob-Elmar
Olav
Luke-Hrafn-Jóhannes-Benoný
Flóki
1. mín
Leikur hafinn
KR byrjar með boltann
Fyrir leik
Fimm breytingar hjá KR. Flóki, Luke, Benoný, Hrafn og Rúrik koma inn í liðið frá sigrinum gegn Keflavík á laugardag. Finnur Tómas er ekki í hópnum.
Fyrir leik
KR sigursælasta liðið í sögu keppninnar
KR er sigursælasta liðið í sögu bikarkeppninnar með fjórtán titla. Síðast vann liðið titilinn árið 2014 eftir úrslitaleik gegn Keflavík.
Í fyrra
Þróttur féll úr leik gegn ÍR í 2. umferð á síðasta tímabili. KR féll úr leik í 8-liða úrslitum eftir tap gegn Víkingi í átta marka leik.
Fagnað á Laugardalsvelli 2014
Í fyrra
Þróttur féll úr leik gegn ÍR í 2. umferð á síðasta tímabili. KR féll úr leik í 8-liða úrslitum eftir tap gegn Víkingi í átta marka leik.

Fagnað á Laugardalsvelli 2014
Fyrir leik
Spilað á gervigrasinu við Frostaskjól
KR-völlur er gervigrasvöllurinn sem er við Frostaskjól, félagsheimili KR-inga. Meistaravellir, aðalvöllur liðsins, er ekki tilbúinn fyrir leiki.
Fyrir leik
Dómararnir
Elías Ingi Árnason er með flautuna og honum til aðstoðar eru þeir Guðmundur Valgeirsson og Arnþór Helgi Gíslason.
Elías Ingi

Elías Ingi
Fyrir leik
Aldrei mæst áður
Engar viðureignir fundust þegar leitað var af fyrri viðureignum þessara liða í meistaraflokki karla.
Fyrir leik
Þriðji leikur Þróttara í keppninni
Þetta er þriðji leikur Þróttara í keppninni en KR kemur inn í keppnina á þessu stigi eins og önnur Bestu deildar lið. Þróttur verður í 2. deild í sumar og sló út Úlfana og KV á leið sinni í 32-liða úrslitin.
Adam Árni Róbertsson, sem lék með Keflavík í efstu deild í fyrra, hefur skorað tvö mörk fyrir Þróttara í keppninni og þeir Kári Sigfússon, Magnús Andri Ólafsson og Stefán Jón Friðriksson hafa skorað sitt markið hver.
Adam Árni
Adam Árni Róbertsson, sem lék með Keflavík í efstu deild í fyrra, hefur skorað tvö mörk fyrir Þróttara í keppninni og þeir Kári Sigfússon, Magnús Andri Ólafsson og Stefán Jón Friðriksson hafa skorað sitt markið hver.

Adam Árni
Fyrir leik
32-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Velkomnir lesendur góðir í textalýsingu frá leik KR og Þrótti Vogum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Ekki er um ítarlega textalýsingu en sagt verður frá mörkum, spjöldum, skiptingum og stórum atvikum og reynt að segja frá helstu færum.




