SKÝRSLAN: Grindavík hafði betur gegn bitlausu Njarðvíkurliði
Hvað réði úrslitum?
Erfiður leikur við erfiðr aðstæður. Þungur völlur en Grindvíkingar voru bara heilt yfir betri í kvöld. Njarðvíkingar voru flottir varnarlega en Grindvíkingar áttu öll færinn.
Bestu leikmenn
1. Stinningskaldi
Bestu menn vallarins voru í stúkunni að syngja og tralla. Hvet alla þá sem hafa færi á því að gera sér ferð á Grindavíkurleiki þar sem þessi sveit kemur saman að styðja við liðið.
2. Marko Vardic
Afmælisbarnið með sigurmarkið og afar fallegt sigurmark. Var flottur í liði Grindavíkur og er sá sem skildi á milli. Var nálægt því að leggja upp annað mark að auki.
Atvikið
Leikurinn bauð ekki upp á mörg atvik svo ég vel bara markið hjá Grindavík, hefðu viljað setja fleirri en markið sem Marko Vardic skoraði var einkar fallegt og í raun verðskuldaði að vera sigurmark.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík fer í toppsætið eftir 3 umferðir og virðist fátt ætla að koma í veg fyrir það að þeir geri sig gildandi í toppbaráttunni.
Njarðvíkingar eru áfram með 2 stig í 9.sætinu.
Vondur dagur
Sókarnleikur Njarðvíkur fann sig enganveginn og var gríðarleg vonbrigði.
Dómarinn - 4
Fannst skrítinn lína stundum og gula spjaldið sem Luqman fékk var sótt úr stúkunni. Vantaði stundum samræmið þar sem dæmt var á öðru meginn en ekki hinumeginn hjá báðum liðum.



