SKÝRSLAN: Loksins vann KR
Hvað réði úrslitum?
Stjórnun KR á leiknum meira og minna allan leikinn gerði það að verkum að þeir höfðu yfirhöndina og komu sér í tveggja marka forystu.
Fram skapaði sér lítið og voru einhvern veginn máttlausir fram á við, þangað til á síðustu tíu mínútum leiksins þegar þeir minnka muninn að þá er eins og það kvikni á þeim. Það er einungis heppni KR og eða léleg nýting á færum sem gerir það að verkum að Fram jafnar ekki leikinn. En þeir hefðu svo sem ekki átt það skilið ef allar 90 mínúturnar eru taldar.
Bestu leikmenn
1. Theodór Elmar Bjarnason
Valið stóð á milli hans og Atla Sigurjóns en þar sem Atli fór af velli vegna veikinda að þá á Theodór Elmar þetta skuldlaust. Hann skoraði mark í dag og var ógnandi með Atla og Sigurði Bjarti fram á við.
2. Ólafur Íshólm Ólafsson
Kannski skrítið að velja mann næstbestan sem fær á sig tvö mörk í tapliði. En hann gerði það einfaldlega að verkum að tapið var ekki stærra.
Atvikið
Erfitt að velja eitthvað atvik. Setjum það bara á innanverða stangarskotið sem Óskar Jónsson átti að marki KR á 90 mínútu leiksins. Hefði það skot farið inn, hefði leikurinn endað 2 - 2.
Hvað þýða úrslitin?
KR lyftir sér úr fallsætum og nær í sinn fyrsta deildarsigur í fimm leikjum. Sitja nú í 10 sæti deildarinnar.
Enn nær Fram ekki að halda hreinu og tapa öðrum leiknum í röð. Sitja í 7. sæti deildarinnar
Vondur dagur
Ég ætla að setja þetta á sóknarlínu Fram. Gummi Magg og Þórir Guðjóns sáust varla í leiknum og Gummi var tekinn út af á rúmlega 60. mínútu.
Dómarinn - 8,5
Vel dæmdur leikur hjá Helga Mikael í dag. Ekkert út á hann að setja.




