SKÝRSLAN: Gæði Vals komu í ljós gegn ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Valskonur voru mun meira með boltann en sköpuðu sér ekki mikið en höfðu einfaldlega meiri gæði. Í fyrra markinu var dauður bolti í teig ÍBV, Jamia Fields nýtti sér það. Seinna markið sýndi Anna Rakel hvernig vinstri löpp hún er með og hamraði hún boltann í vinkilinn.
Bestu leikmenn
1. Anna Rakel Pétursdóttir
Mark og hreint lak varla hægt að biðja um meira frá Önnu.
2. Þórdís Elva Ágústsdóttir
Þórdís var frábær á miðjunni hjá Val í dag. Valsarar voru mun meira með boltann og leituðu mikið á Þórdísi. Hún átti einnig hörkuskot sem fór í þverslánna og niður.
Atvikið
Mark Önnu Rakelar var af dýrari gerðinni þegar hún smellti boltanum í vinkilinn fyrir utan teig.
Hvað þýða úrslitin?
Valur trónir á toppi deildarinnar með 10 stig og betri markatölu en Þróttur R.
ÍBV situr í 7. sæti með 6 stig eftir fyrstu 5 umferðirnar.
Vondur dagur
Bríet Bragadóttir dómari leiksins átti að mínu mati versta daginn af öllum þeim sem voru inná vellinum. Enginn áberandi lélegur í hvoru liði en Bríet gerði stór mistök og hefði leikurinn þróast öðruvísi hefði hún dæmt víti ÍBV í vil.
Dómarinn - 3
Bríet gerði risastór mistök þegar hún benti ekki á punktinn þegar Olga Sevcova féll við í teig Vals í stöðunni 1-0.




