Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
Lítill vindur en blautur vindur. Smá regn.
ÍBV
ÍBV
2 - 3
FH
FH
Hermann Þór Ragnarsson 11'1 - 01 - 119' Gyrðir Hrafn Guðbrandsson1 - 253' Steven LennonAlex Freyr Hilmarsson 63'2 - 22 - 392' Guy Smit (sjm)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Sterkur útisigur FH en ÍBV nálgast fallbaráttu

Hvað réði úrslitum?

Auðvitað lokamark leiksins í uppbótartíma sem tryggir FH öll þrjú stigin. Einnig rauða spjald leiksins. Hermann er vissulega tekinn niður og fær verðskuldað aukaspyrnu en slæmir hendi í þann brotlega og að mínu mati réttur dómur svona við fyrstu og einu sýn.

Bestu leikmenn

1. Alex Freyr Hilmarsson

Virkilega öflugur og duglegur inn á miðjunni hjá ÍBV og gerir gott og vandað mark sem hefði getað tryggt þeim stig.

2. Davíð Snær Jóhannsson

Var einnig sprækur á miðjunni eins og Alex og átti margar syrpur upp völlinn. Áræðinn og snöggur og gerir svo markið sem skilar sigri

Atvikið

Það hlýtur að vera rauða spjaldið sem Hermann fékk. Virðist sem hann slái til andstæðings, sem er samkvæmt reglum rautt spjald

Hvað þýða úrslitin?

Sterkur útisgur hjá FH sem kemur þeim upp töfluna en afar svekkjandi fyrir ÍBV sem tapar öðrum heimaleik sínum í röð í uppbótartíma og þeir nálgast fallbaráttu.

Vondur dagur

Alltaf erfitt að benda á einn leikmann en verð að setja þetta á Oliver í þetta skiptið. Spilar hér gegn sínum gömlu félögum í FH og það fer afar lítið fyrir honum í þessum leik.

Dómarinn - 7

Ég verð að segja fyrir mitt leyti að hann tók góðar ákvarðanir í þessum leik. Auðveldur fyrri hálfleikur í raun en svo hrsstust leikar í þeimm seinni. Rauða spjaldið er óvissa en mitt mat er réttur dómur. Aukaspyrna klárlega og gult spjald á Dani en ef þú slærð frá þér þá er það rautt. Rífa sig lausan eða slá frá þer var erfitt að sjá með engar endursýningar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.