Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
2 - 2
Fylkir
Fylkir
Ísak Andri Sigurgeirsson 56'1 - 01 - 175' Pétur Bjarnason1 - 285' Nikulás Val GunnarssonEmil Atlason 90'2 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Frábær fótboltaleikur í Garðabænum

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan var sterkari aðilinn fram að fyrsta markinu og áttu markið fylilega skilið. Eftir það mark þjarma Fylkismenn að Garðbæingum og taka forystu í leiknum nokkuð sanngjarnt. Emil Atla gerir svo vel að koma boltanum yfir línuna í lokinn og jafntefli að mínu mati nokkuð sanngjörn úrslit

Bestu leikmenn

1. Pétur Bjarnason

Gerir vel í dag. Hávaxinn leikmaður sem erfitt er að eiga við þegar spilað er upp á hans styrkleika. Leggur upp og skorar í dag eftir að hafa komið inn af bekknum fyrir meiddan Óla Kalla. EKki hægt að biðja um meira.

2. Óskar Borgþórsson

Þegar Fylkir var ekki að ógna mikið var alltaf einn maður sem var að valda usla og það var Óskar Borgþórs. Spilaði á vinstri kantinum í dag og gerði Gumma Kristjáns oft erfitt fyrir í hægri bakverðinum.

Atvikið

Jöfnunarmarkið í lok leiks frá Emil Atlasyni eftir aukaspyrnu Jóhanns Árna var ansi dramatískt og góður endir á þessum annars frábæra knattspyrnuleik.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin eru nú með jafn mörg stig, 7 talsins. Fylkir er í 9. sæti en Stjarnan er sæti ofar með betri markatölu.

Vondur dagur

Enginn sérstakur sem átti vondan dag. Stjarnan var samt með fulla stjórn á leiknum fram að fyrsta markinu og hefðu átt að gera betur í 1-0 stöðunni. Fóru illa af ráði sínu.

Dómarinn - 8

Góð frammistaða í dag. Maður tók ekkert eftir dómaranum í dag og þannig á það að vera.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.