Leik lokið!
90. mín
Stjarnan að bjarga stigi!
Stjarnan Jafnar!!!!
Emil Atlason
Jóhann Árni með aukaspyrnu af löngu færi inn á teiginn þar sem Emil Atlason stangar hann í netið!Stjarnan að bjarga stigi!
90. mín
Frosti Brynjólfs vinnur boltann á hættulegum stað og keyrir af stað en skotið er beint á Árna.
90. mín
4 mínutum bætt við.
85. mín
Fylkir að stela þessu?
Nikulás Val Gunnarsson (stoðsending: Pétur Bjarnason)
Benedikt Daríus með skemmtilegan sprett hérna og kemur boltanum í gegn á Pétur Bjarnason sem setur boltann fyrir á Nikulás sem klárar í autt markið!82. mín
InnJosep Arthur Gibbs
ÚtHilmar Árni Halldórsson
76. mín
InnFrosti Brynjólfsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Þórður handónýtur eftir þennan sprett og nær varla að stíga í fótinn.
75. mín
Jöfnunarmark!!
Pétur Bjarnason
Þórður Gunnar sem er klárlega meiddur hérna fær boltann á hægri kantinum og nær eitthvernveginn að klöngrast áfram og ná boltanum fyrir markið þar sem Pétur Bjarnason er mættur og hittir boltann illa en boltinn lekur inn.71. mín
Áhorfendur í dag eru 823 talsins.
69. mín
Fylkir fær horn hérna sem Arnór Breki tekur og niðurstaðan er annað horn.
66. mín
InnJóhann Árni Gunnarsson
ÚtGuðmundur Baldvin Nökkvason
65. mín
Óskar Borgþórs hérna með fínt skot utan af velli en Árni handsamar þetta. Óskar verið líflegastur Fylkismanna í dag.
62. mín
InnAxel Máni Guðbjörnsson
ÚtElís Rafn Björnsson
62. mín
Elís Rafn og Þórður Gunnar sitja hér báðir á vellinum spurning hvort skiptingarnar verðir fleiri hér strax.
61. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtEmil Ásmundsson
60. mín
Örvar Logi hér að sleppa í gegn en missir boltann of langt frá sér og Ólafur handsamar þetta.
56. mín
Stjarnan kemst yfir!
Ísak Andri Sigurgeirsson (stoðsending: Adolf Daði Birgisson)
Danni Laxdal með langa sendingu upp völlinn sem fer inn á teiginn á Adolf Daða sem kemur með flotta fyrirgjöf inn á markteig þar sem Ísak er fyrstur að átta sig og kemur Garbæingum yfir með góðum skalla.55. mín
Óskar tók hornið en ekkert varð úr þessu.
55. mín
Fylkir fær hér sitt fyrsta horn í dag.
51. mín
Stjarnan fær hér horn. Hilmar tekur að vanda en ekkert verður úr þessu.
49. mín
Hilmar Árni tekur spyrnuna en hún er himinhátt yfir markið.
49. mín
Þórður Gunnar brýtur á Ísaki hér á ansi hættulegum stað.
46. mín
InnEmil Atlason
ÚtKjartan Már Kjartansson
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn.
Fylkir hefja leik í seinni.
45. mín
Hálfleikur
Emil Atlason virðist vera að hita sig upp í að koma inn á hér í hálfleiknum.
45. mín
Hálfleikur
Vilhjálmur flautar hér til hálfleiks. Litið markvert gerst hér í leiknum og spurning hvort að 0-0 spá Guðjóns Péturs verði að veruleika.
45. mín
Þremur mínutum bætt við hér í Garðabænum.
45. mín
Óskar Borgþórs keyrir hér á Gumma Kristjáns og á skot á nærhornið en Árni ver vel.
44. mín
Hilmar tekur hornið sem fer beint í hendurnar á Óla sem missir hann þó fyrir fætur Björns Berg sem er hársbreidd frá því að ná til boltans.
43. mín
Stjarnan fær hér fyrsta horn leiksins
42. mín
Ragnar Bragi hér með frábæran sprett upp vallarhelming Stjörnunnar en skotið hans fer að lokum beint á Árna.
42. mín
Gummi Kristjáns hér með fína fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Eggert er nokkuð einn en skalli hans slakur og beint á Ólaf.
38. mín
InnPétur Bjarnason
ÚtÓlafur Karl Finsen
Óli Kalli lýkur hér leik því miður.
34. mín
Óli Kalli situr á vellinum núna og virðist ekki ætla að halda leik áfram, blóðtaka fyrir Árbæinga.
33. mín
Rétt framhjá!
Nikulás Val gerir hér vel og nær skoti í átt að fjærhorni við vítateigslínuna. Sýndist þetta ætla inn en fer að lokum rétt framhjá!
24. mín
Gult spjald
Ragnar Bragi Sveinsson
Fær hér réttilega gult spjald fyrir að toga Ísak niður20. mín
Gult spjald
Kjartan Már Kjartansson
Harkalega brotið á Óskari hér og réttilega gult.18. mín
Gult spjald
Guðmundur Kristjánsson
Gummi Kristjáns fær hér fyrsta gula spjaldið.17. mín
Kjartan Már með mjög fínan sprett hérna og á að lokum skot sem Kristófer á í engum vandræðum með.
17. mín
Stjarnan heldur boltanum betur þessa stundina en ekki hægt að segja að það stafi mikil ógn af þeim akkurat þessa stundina.
13. mín
Guðmundur Baldvin tekur spyrnuna en hún var einstaklega slök og gífurlega langt framhjá.
12. mín
Ragnar Bragi brýtur hér á Ísaki á stórhættulegum stað.
8. mín
Illa farið með gott færi
Ólafur Karl í mjög góðu færi hér einn við vítateigspunktinn en skotið slakt og beint á Árna.
7. mín
Eggert með skot af löngu færi sem Ólafur Kristófer handsamar með herkjum
6. mín
Fyrsta skot leiksins er komið en það var af löngu færi og langt framhjá frá Emil Ásmundssyni,
3. mín
Adolf Daði fer full harkalega á eftir boltanum sem Ólafur Kristófer handsamar og skellur á Ólafi. Hefði hugsanlega getað verið gult spjald.
1. mín
Leikur hafinn
Komið af stað!
Stjarnan byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin labba þessa stundina til vallar og því styttist í upphafsflaut Villa Alvars.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar virðist vera búinn að finna sitt lið því að hann gerir enga breytingu frá bikarleiknum gegn Keflavík sem Stjarnan vann 4-0.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar gerir hinsvegar heldur fleiri breytingar á sínu liði. Þórður Gunnar Hafþórsson, Ólafur Karl Finsen og Arnór Breki Ásþórsson koma inn í liðið í stað Péturs Bjarnason, Benedikts Daríus Garðarsonar og Axels Mána Guðbjörnssonar.

GPL 10 spáir í spilin
Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Grindavíkur og fyrrum leikmaður Stjörnunnar spáir í spilin.
Stjarnan 0 - 0 Fylkir (á mánudag klukkan 19:15)
Stjarnan gerir allt til að vinna en með innkomu Danna Lax í liðið er ekki hægt að skora á þá og líklega hefði Stjarnan verið í 1 sæti ef hann hefði spilað frá byrjun þessa móts en Rúnar Páll læsir öllu hinum megin og Guðmundur Baldvin, Eggert , Adolf og Hilmar Árni skjóta allir í tréverkið en inn fer boltinn ekki.
Við vonum nú samt að þessi spá hjá Guðjóni Pétri verði ekki að veruleika og að við fáum eitthver mörk í þetta!

Stuð í Garðabænum
Leikdagur dagskrá:
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) May 22, 2023
18:15 - Dúllubar opnar
18:15 - Veislusalur opnar fyrir Gullkortshafa þar sem Brynjar Björn mætir og fer yfir málin
18:30 - Búllubörger frá Stjörnubúllunni verður klár!
19:15 - Stjarnan - Fylkir @SAMSUNGVÖLLUR
Mætum snemma!
SKÍNI STJARNAN pic.twitter.com/4cZPCN7cMy
Fyrir leik
Á Samsungvellinum mætast Stjarnan og Fylkir.
— Besta deildin (@bestadeildin) May 22, 2023
???? Samsungvöllurinn
?? 19:15
?? @FCStjarnan ???? @FylkirFC
????? Miðasala á https://t.co/gOIMRhybun pic.twitter.com/dVBTl3iku3
Fyrir leik
Leikurinn er sérstakur fyrir þær sakir að Rúnar Páll Sigmundsson er að mæta aftur í Garðabæinn. Rúnar, sem er í dag þjálfari Fylkis, er í fyrsta sinn á þjálfaraferlinum að fara að stýra liði gegn Stjörnunni í keppnisleik á vegum KSÍ. Allavega ef marka má vefsíðu Knattspyrnusambandsins.
Rúnar er algjör goðsögn hjá Stjörnunni eftir að hann stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils árið 2014. Hann stýrði Stjörnunni með frábærum árangri frá 2014 til 2021.
Á svæði Silfurskeiðarinnar - stuðningsmannahóps Stjörnunnar - á Facebook er leiknum í kvöld lýst sem endurkomu kóngsins (e. return of the king) en það á svo sannarlega vel við í þessu tilfelli.
Svo er Ólafur Karl Finsen, maðurinn sem tryggði Stjörnunni meistaratitilinn 2014, í liði Fylkis. Þannig að þessi leikur verður sérstakur fyrir nokkrar sakir.
Kóngurinn snýr aftur

Stjarnan
Stjarnan kemur inn í leikinn á góðum nótum eftir að hafa byrjað vel undir stjórn Jökuls Elísabetarsonar en hann hefur unnið fyrstu tvo leikina eftir að hafa tekið við liðinu eftir brottrekstur Ágúst Gylfasonar sem var látinn fara eftir arfaslakt gengi í upphafi tímabils.
Seinasti leikur liðsins var gegn Keflavík í bikarnum og unnu Garðbæingar þar einstaklega öruggan 4-0 sigur en það sama var uppi á teningum í seinasta deildarleik en þar fékk liðið ÍBV í heimsókn í Garðabæinn og voru lokatölur þar einnig 4-0. Spurningin er bara sú hvort að þetta góða gengi undir stjórn Jökuls geti haldið áfram.

Velkominn!
Komiði sæl og blessuð og verið velkominn í beina textalýsingu úr Garðabænum. Hér fer fram leikur Stjörnunnar og Fylkis á Samsungvellinum. 

Umfjöllun kemur seinna í kvöld.