Leik lokið!
90. mín
Skot í stöngina!
Frammarar eru ekkert hættir og ætla að jafna. Óskar með þrumu skot að marki KR og boltinn í innanverða stöngina. Stuttu seinna er Þórir með skalla rétt yfir markið.
4 mínútum bætt við.
4 mínútum bætt við.
90. mín
AFTUR ER ÓLAFUR ÍSHÓLM AÐ BJARGA SÍNUM MÖNNUM
Luke Ray kemst einn á móti Ólafi og nær góðu skoti en Ólafur gerði feikivel og varði.
89. mín
Það hefur heldur betur lifnað yfir Fram. Hlynur Atli fær boltann inn í teig KR, leggur hann út á Fred sem nær skoti, slöku skoti reyndar og boltinn fór framhjá.
87. mín
Rétt áður en Fram skoraði markið áttu þeir tvö góð dauðafæri. Hlynur Atli náði frábærum skalla að markinu sem Simen varði, Þórir kom og fylgdi eftir með skoti en boltinn fór af leikmanni KR og í horn og upp úr því kom svo mark Fram.
86. mín
Eru Frammarar að fara að ná einhverju úr þessum leik?
MAAAARRRRKKKK!
Brynjar Gauti Guðjónsson
Brynjar Gauti skorar eftir klafs í teignum eftir horn og boltinn lak einhvern veginn í markið.Eru Frammarar að fara að ná einhverju úr þessum leik?
75. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtKristinn Jónsson
Kristinn fer meiddur af velli.
74. mín
Kristinn Jónsson liggur hér niðri í teig KR og virðist vera búinn að biðja um skiptingu. Sá ekki hvað gerðist. Hann röltir að hliðarlínunni.
72. mín
Þetta var hættulegasta og í raun eina færi Fram í seinni hálfleiknum.
70. mín
Gult spjald
Tiago Manuel Da Silva Fernandes
70. mín
Dauðafæri
Tiago kominn inn í teig KR eftir fallega sókn, einn á móti Símen í markinu en skotið beint á Símen sem átti ekki í neinum vandræðum með að verja boltann.
69. mín
Gult spjald
Olav Öby
68. mín
Gult spjald
Theodór Elmar Bjarnason
68. mín
Það er einfaldlega ekkert mikið að frétta héðan úr Úlfársárdalnum. KR líður vel að því virðist bara vel með þessa forystu.
67. mín
InnKristján Flóki Finnbogason
ÚtSigurður Bjartur Hallsson
61. mín
InnHlynur Atli Magnússon
ÚtAron Jóhannsson
61. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtGuðmundur Magnússon
60. mín
KR liggja aftarlega á vellinum og leyfa Frömmurum að vera með boltann og beita svo skyndisóknum. Fram er bara ekki að gera neitt af viti þegar þeir eru með boltann.
53. mín
Það er ekki að sjá að Fram sé tveimur mörkum undir og þurfi nauðsynlega setja mark til þess að komast inn í leikinn. KR eru að ná að halda öllum tilraunum þeirra vel niðri og lykilleikmenn Fram eru allir undir pari.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn. Athygli vekur að Atli Sigurjóns er farinn af velli. Hlýtur að hafa orðið fyrir einhverju hnjaski því hann hefur verið besti maður vallarins.
45. mín
InnLuke Morgan Conrad Rae
ÚtAtli Sigurjónsson
45. mín
InnÓskar Jónsson
ÚtAdam Örn Arnarson
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur.
Fáum okkur kaffi og meððí og sjáum hvað seinni hálfleikur ber í skauti sér eftir c.a. 15 mín.
Fáum okkur kaffi og meððí og sjáum hvað seinni hálfleikur ber í skauti sér eftir c.a. 15 mín.
45. mín
Ein mínúta í uppbót
38. mín
Það sem skilur liðin að er einfaldlega færanýtingin. KR hefur ekkert verið að hafa einhverja yfirburði í leiknum og ég hef það á tilfinningunni að Fram geti vel komið sér inn í leikinn. Eins og staðan er núna að minnsta kosti.
35. mín
Ólafur Íshólm að halda sínum mönnum í leiknum!
Fyrst fær Atli Sigurjóns frábæra sendingu frá Theodór Elmari, Atli skundar í teiginn, Brynjar Gauti rennir sér í veg fyrir hann en Atli sér við honum og nær góðu skoti sem Ólafur Íshólm ver.
Í framhaldinu, stuttu seinna, náði Olav Öby líka góðu skoti að marki sem Ólafur Íshólm varði einnig.
Tvö góð færi sem fóru þarna forgörðum hjá KR.
Í framhaldinu, stuttu seinna, náði Olav Öby líka góðu skoti að marki sem Ólafur Íshólm varði einnig.
Tvö góð færi sem fóru þarna forgörðum hjá KR.
31. mín
Brynjar Gauti klikkar í vörninni, er að reyna að skýla boltanum útaf, Atli tók boltann af honum og sendir út í teiginn og þar er Theodór Elmar mættur og leggur boltann í fjærhornið.
KR tvöfalda forystuna!
Theodór Elmar Bjarnason (stoðsending: Atli Sigurjónsson)
MAAAARRRRKKKK!Brynjar Gauti klikkar í vörninni, er að reyna að skýla boltanum útaf, Atli tók boltann af honum og sendir út í teiginn og þar er Theodór Elmar mættur og leggur boltann í fjærhornið.
29. mín
KR komast þrír á tvo. Theodór Elmar lagði boltann á Kidda inn í teig Fram, Kiddi náði ágætis skoti að marki en Ólafur Íshólm var vel á verði.
28. mín
Gult spjald
Brynjar Gauti Guðjónsson
27. mín
Bjargað á línu eða því sem næst
Delphin náði góðum skalla að marki KR eftir frábæra fyrirgjöf en bjargað var á línu sýndist mér.
23. mín
Almenn stöðubarátta í gangi. Bæði lið skiptast á að sækja án þess að þó að nýta sér þær stöður sem koma upp að neinu ráði. KR er að verjast vel sóknum Frammara.
16. mín
Og þarna munaði litlu
Þarna átti Gummi Magg að gera miklu mun betur. Adam lagði boltann inn í teig, Þórir hælsendi hann á Gumma sem var á auðum sjó þannig lagað fyrir framan markið en hitti boltann illa og skaut framhjá.
15. mín
Um var að ræða fyrsta deildarmark KR í fimm leikjum og fyrsta mark Atla Sigurjóns í sumar.
KR eru að taka öll völd á vellinum að manni finnst. Fram þarf aðeins að vera skipulagðari í sóknunum sínum ef þeir ætla að fá eitthvað út úr leiknum. En það er svo sem mikið eftir.
KR eru að taka öll völd á vellinum að manni finnst. Fram þarf aðeins að vera skipulagðari í sóknunum sínum ef þeir ætla að fá eitthvað út úr leiknum. En það er svo sem mikið eftir.
10. mín
Atli Sigurjóns take a bow!
Sigurður Bjartur lagði boltann fyrir Atla sem var staddur við D-bogann. Atli mundaði skotfótinn og í sneri boltanum laglega í fjærhjornið. Óverjandi fyrir Ólaf Íshólm.
MAAAAARRRKKKK!!!!
Atli Sigurjónsson (stoðsending: Sigurður Bjartur Hallsson)
Þvílíka markið!Atli Sigurjóns take a bow!
Sigurður Bjartur lagði boltann fyrir Atla sem var staddur við D-bogann. Atli mundaði skotfótinn og í sneri boltanum laglega í fjærhjornið. Óverjandi fyrir Ólaf Íshólm.
6. mín
Liðin eru að þreifa á hvort öðru. Frammarar eru þó búnir að vera ívið ágengari og sóknardjarfari en KR.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað!
KR byrjar með boltann og spila í átt að Grafarvoginum eða í þá átt svona c.a.
KR byrjar með boltann og spila í átt að Grafarvoginum eða í þá átt svona c.a.
Fyrir leik
Rúnar Kristinsson með sneið á leikmenn
Fæ að stela smá frá kollega mínum á Vísi sem átti viðtal við Rúnar Kristinsson fyrir leik, en þar er áhugavert m.a. sem hann segir þar
Talaði Rúnar Kristinnsson um það að eitt af vandamálunum væri mögulega að sumir leikmenn hefðu ekki næga pressu á sér vegna manneklu í hóp KR-inga
Talaði Rúnar Kristinnsson um það að eitt af vandamálunum væri mögulega að sumir leikmenn hefðu ekki næga pressu á sér vegna manneklu í hóp KR-inga
Fyrir leik
Dómari kvöldsins
Helgi Mikael Jónasson heldur um flautuna í kvöld
Birkir Sigurðarson er AD1

Egill Guðvarður Guðlaugsson er AD2

Birkir Sigurðarson er AD1

Egill Guðvarður Guðlaugsson er AD2

Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Guðjón Pétur Lýðsson eða GPL10 er spámaður umferðarinnar
Fram 2 - 2 KR
Framarar skora fyrsta mark leiksins og er það Aron Jó sem gerir það Álftnesingur Haukari og Grindjáni getur líklega ekki fengið betri skóla nema kannski í Breiðablik. KR jafnar svo leikinn eftir að bestu menn KR Kiddi Jóns og Teódór Elmar spila Framara sundur og saman og Ægir Jarl pottar honum inn með hausnum. Gummi Magg setur svo annað beint í andlitið á KR en ég kenndi honum að skalla á sínum tíma . KR spilar svo sinn besta bolta á gervigrasinu hjá Fram það sem eftir lifir leiks og Atli Sigurjóns rekur endahnútinn á svakalega sókn og endar leikurinn í næstu andrá.

Byrjunarliðin eru komin inn
Fram gerir tvær breytingar frá tapinu á móti Fylki. Þórir Guðjónsson og Delphin Tshiembe koma inn í byrjunarliðið fyrir þá Orra Sigurjóns sem fer á bekkinn og Albert Hafsteinsson sem meiddist á móti Fylki.
KR gerir einnig tvær breytingar frá sigrinum á móti Fylki í Mjólkurbikarnum. Sigurður Bjartur og Kristinn Jóns koma inn í stað Aron Þórðar Albertsonar og Kristjáns Flóka en Flóki fór af velli í síðasta leik vegna höfuðhöggs.

Þórir Guðjónsson byrjar í dag

Gengi KR í sumar
KR hefur verið í basli og valdið miklum vonbrigðum. Meira að segja svo að allt í einu hefur verið umræða um hvort hinn mikli Sigurvegari Rúnar Kristinsson sé kominn á endastöð með liðið.
Þeir byrjuðu mótið með jafntefli og unnu svo næsta leik þar á eftir. Eftir það hafa þeir ekki unnið leik né gert jafntefli né skorað mark og sitja í neðsta sæti deildarinnar fyrir leik kvöldins á markatölu.
Hinsvegar unnu þeir góðan 3 - 4 sigur á Fylki í 16. liða úrslitum Mjólkurbikarsins siðastliðinn fimmtudag og skoruðu þar 4 mörk. Það hlýtur að veita þeim smávegis boozt inn í þennan leik í kvöld.

Gengi Fram í sumar
Það hefur yfirleitt verið ávísun á markaleiki að sjá leiki Fram það sem af er sumri.
Þeir byrjuðu mótið með tveimur jafnteflum, síðan komu tvö töp og síðan komu tveir sigrar og svo töpuðu þeir nokkuð sanngjarnt fyrir Fylki í síðustu umferð 3 - 1.
Ef við miðum við þetta trend, að gera hlutina alltaf tvisar, þá ættu þeir að tapa hér í kvöld. En það er eitthvað sem segir mér að það sé ekki markmið þeirra.
Einnig eiga þeir enn eftir að halda markinu hreinu í sumar og það hlýtur að vera keppikefli þeirra að ná því í dag.

Reykjavíkurslagur
Þetta verður Reykjavíkurslagur af bestu gerð. Bæði lið eiga sér stóra og mikla sögu í Íslenskri knattspyrnu og verið sigursæl, þótt langt um liðið sé síðan Fram hafi unnið þann stóra.
En það verður fróðlegt að sjá hvernig liðin mæta hér til leiks í dag.
En það verður fróðlegt að sjá hvernig liðin mæta hér til leiks í dag.
Fyrir leik
Fram - KR
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Fram og KR í 8. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu sem hefst kl. 19:15.

Viðtöl og umfjöllun koma innan skamms.