Fotbolti.net
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Fram
Fram
Lengjudeild kvenna
Framvöllur
3 - 2
FHL
FHL
Ólína Sif Hilmarsdóttir 23'1 - 01 - 132' Jóhanna Melkorka Þórsdóttir (sjm)1 - 237' Rósey BjörgvinsdóttirÞórey Björk Eyþórsdóttir 51'2 - 2Fanney Birna Bergsveinsdóttir 90'3 - 2
Dómari: Tómas Meyer
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson

SKÝRSLAN: Dramatík í Úlfarsárdal

Hvað réði úrslitum?

Það sem að réði úrslitum í dag myndi vera meðal annars þrautseigja Fram. Fram var undir í hálfleik en áttu stórfenglegan seinni hálfleik. Þær sóttu nærri allan hálfleikinn og börðust fram á síðustu stundu. FHL voru nokkuð þéttar en ekki nógu of ákveðnar fram á við.

Bestu leikmenn

1. Ólína Sif Hilmarsdóttir

Ólína sif var mjög góð í leiknum í dag. Hún skapaði mikið af færum fyrir liðsfélagana sína og ekki má gleyma geggjaða markinu sem hún skoraði á 32. mínútu

2. Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir

Fyrirliði Fram, Þyrí, var frábær á miðjunni í dag. Hún vann boltann marg oft og dró liðið áfram

Atvikið

Atvikið verður að vera sigurmarkið í uppbótartíma. Eftir að Fram var búið að liggja á vörn FHL allan seinni hálfleikinn uppskáru þær loksins sigurmark sem Fanney Birna skoraði.

Hvað þýða úrslitin?

Fram lyftir sér upp úr fallsæti með sigrinum og eru núna með fjögur stig. FHL er ennþá í 7. sætinu eftir leikinn í dag og eru þær þar með sex stig. Þetta var fyrsti sigur Fram á tímabilinu.

Vondur dagur

Það þyrfti að nefna sóknarlínu FHL, sem átti slæman dag. FHL skapaði sér lítið af færum og var heppnisstimpill yfir mörkum þeirra.

Dómarinn - 7

Dómarinn mjög fínn í dag. Hafði bara fín tök á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.