Fotbolti.net
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
3 - 1
Vestri
Vestri
Georg Bjarnason 5'1 - 0Elmar Kári Enesson Cogic 42'2 - 0Aron Elí Sævarsson 68'3 - 03 - 179' Benedikt V. Warén
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Afturelding í toppsætið

Hvað réði úrslitum?

Sloppy varnarleikur hjá Vestra, gefa tvö mörk úr hornum og þannig geriru þér erfitt fyrir. Meistarabragur á þessum sigri Aftureldingar. Þó líklega of lítið liðið af tímabilinu til þess að fara tala um svoleiðis hluti.

Bestu leikmenn

1. Aron Eli Sævarsson

Heldur áfram að sýna að hann sé besti bakvörður deildarinnar og auk þess að vera góður heilt yfir í dag skorar hann þetta mikilvæga þriðja mark.

2. Georg Bjarnason

Skorar mikilvægt mark í upphafi leiks og leggur upp annað markið í dag.

Atvikið

Afturelding skorar mark í upphafi leiks sem setti svolítið tóninn. Alltaf mikilvægt að skora snemma.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding tyllir sér í toppsætið á meðan Vestri heldur áfram slakri stigasöfnun og eru nú stigi frá fallsæti.

Vondur dagur

Rafael Broetto leit illa út í þriðja markinu í dag þegar hann greip í tómt og leyfði þannig Aroni að skora í autt markið.

Dómarinn - 6

Enginn stór atriði sem klikkuðu í dag hjá Þórði en fannst hann oft vera með skrýtna línu þegar kom að gulum spjöldum og átti klárlega að reka Deniz Yaldir útaf með annað gula undir lok leiks.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.