Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
KR
KR
Besta-deild karla
Meistaravellir
Sól og sumarlegt
1 - 1
ÍBV
ÍBV
Sigurður Bjartur Hallsson 69'1 - 01 - 192' Felix Örn Friðriksson (víti)
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: KR slapp með skrekkinn á Meistaravöllum

Hvað réði úrslitum?

Simen Kjellevold hélt KR-ingum í leiknum ásamt lélegri færanýtingu Eyjamanna. ÍBV óð í færum og er það með ólíkindum að liðið skoraði einungis eitt mark.

Bestu leikmenn

1. Simen Kjellevold

Simen var frábær í dag og hélt sínum mönnum inn í leiknum. Varði víti og átti margar frábærar vörslur.

2. Arnar Breki Gunnarsson

Mér fannst Arnar frábær í dag hann skapaði mikið fyrir sína menn og var mikið í boltanum.

Atvikið

Vítaspyrnudómurinn á 91. mínútu var svo sannarlega stórt atvik. KR einhvernvegin yfir í leiknum en svo dæmir Erlingur vítaspyrnu í uppbótartíma.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að KR skýtur sér upp um tvö sæti í það 7. ÍBV er enn í 11. sæti með jafnmörg stig og Stjarnan en verri markatölu.

Vondur dagur

Sigurður Bjartur markaskorari KR gerir sig sekan um slæm mistök þegar hann sparkar í Breka Ómarsson í teig KR í uppbótartíma. Það var hægt að velja marga úr KR-liðinu en spilamennska þeirra í dag var ekki uppá marga fiska. Sverrir Páll Hjaltested klikkaði á víti í stöðunni 0-0 en Simen las hann bara og gerði vel þar.

Dómarinn - 6

Erlendur Eiríksson dæmdi tvö víti sem er að mínu mati rétt, var ekki viss fyrst en eftir að hafa skoðað atvikin þá tel ég þetta vera réttan dóm. Spurning um brot í marki KR.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.