Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þróttur R.
Þróttur R.
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Frábærar, sól og smá gola.
3 - 0
Þór
Þór
Jorgen Pettersen 42'1 - 0Aron Snær Ingason 48'2 - 0Aron Snær Ingason 76'3 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Þróttarar virkilega sannfærandi gegn bitlausum Þórsurum

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar voru fínir fyrstu tólf mínúturnar en eftir það tóku Þróttarar völdin úti á vellinum og uppskáru verðskulduðu að vera yfir í hálfleik. Þórsarar voru fyrstir til að sækja í seinni hálfleik en vel útfærð sókn og lagleg afgreiðsla Arons Snæs sá til þess að forystan var tvöfölduð strax í byrjun seinni hálfleiks. Heimamenn komnir þá í góða stöðu, leið vel í þriggja manna miðvarðakerfi og Þórsarar náðu ekkert að ógna þéttum varnarmúr heimamanna að neinu ráði. Aron Snær skoraði aftur og 3-0 sannfærandi og verðskuldaður sigur staðreynd.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Ingason

Skoraði tvö virkilega góð mörk og var heilt yfir mjög öflugur.

2. Baldur Hannes Stefánsson

Íhugaði að setja hann hreinlega í besta mann leiksins, frábær í vörninni og fílaði sig greinilega vel í þriggja miðvarða kerfi. Hinrik Harðarson átti einnig mjög góðan leik, tvær stoðsendingar.

Atvikið

Þriðja mark Þróttara var virkilega huggulegt. Baldur Hannes kórónaði sinn leik með huggulegri sendingu inn fyrir á Aron Snæ sem tók frábærlega við boltanum og laumaði honum milli fóta nafna síns í marki Þórs.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar fara upp í 8. sætið og eru tveimur stigum á eftir Þór sem er þremur sætum ofar.

Vondur dagur

Gæðaleysi Þórsara fram á við; allir framsæknu leikmenn liðsins fá þetta saman.

Dómarinn - 7

Stóð sig vel heilt yfir. Er eflaust svekktastur sjálfur að hafa ekki dæmt brot eða stöðvað leikinn strax þegar Akseli meiddist.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.