Leik lokið!
94. mín
STÖÖNGIN!!!
Breki Ómars kominn í gegn og setur boltann í stöngina.
Hann hefði getað farið nær markinu þarna!
Hann hefði getað farið nær markinu þarna!
92. mín
Felix skorar!!!
Felix Örn Friðriksson
Felix svellkaldur og sendir Simen í vitlaust horn. Alvöru dramatík hérna á Meistaravöllum!91. mín
ÍBV að fá víti í uppbótartíma!!!
Breki Ómarsson fellur við í teignum og Erlendur dæmir víti!
Að mínu mati frekar soft víti.
Að mínu mati frekar soft víti.
85. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu, hún fer yfir allan pakkann og Oliver Heiðars er einn á fjærsvæðinu en setur boltann framhjá.
Oliver búinn að vaða í færum hér í dag.
Oliver búinn að vaða í færum hér í dag.
81. mín
Oliver Heiðars tekur langt innkast, boltinn fellur dauður á fjærsvæðinu en enginn Eyjamaður til að pota boltanum í netið og KR-ingar koma boltanum frá.
79. mín
InnLuke Morgan Conrad Rae
ÚtBenoný Breki Andrésson
79. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
79. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtTómas Bent Magnússon
75. mín
Gult spjald
Aron Þórður Albertsson
73. mín
Gult spjald
Olav Öby
69. mín
Frábært mark en Eyjamenn eru búnir að vera mun hættulegri síðustu mínútur.
KR að komast yfir gegn gangi leiksins!!
Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason )
Aukaspyrna á miðjum velli, Jói Bjarna tekur og lyftir boltanum í teig gestanna. Sigurður Bjartur sem er nýkominn inná gerir frábærlega, stekkur á boltann og skallar honum inn!Frábært mark en Eyjamenn eru búnir að vera mun hættulegri síðustu mínútur.
67. mín
Gult spjald
Sigurður Arnar Magnússon
65. mín
InnSigurður Bjartur Hallsson
ÚtKristján Flóki Finnbogason
64. mín
Ég hreinlega skil ekki hvernig það er ekki komið mark í þessum leik.
61. mín
STÖNGIN!
Oliver Heiðars sleppur einn í gegn og rennir boltanum framhjá Simen Kjellevold en boltinn endar í stönginni!
Annað skiptið sem Oliver setur boltann í stöngina í leiknum.
Annað skiptið sem Oliver setur boltann í stöngina í leiknum.
61. mín
InnTheodór Elmar Bjarnason
ÚtAtli Sigurjónsson
60. mín
Simen ver!!!
Sverrir Páll Hjaltested
Simen les Sverri Pál og ver vítið frábærlega!!57. mín
Eyjamenn fá víti!
Grétar Snær Gunnarsson
Boltinn fer í hendina á Grétari Snæ í teig KR-inga!55. mín
Jói Bjarna á skot sem fer af varnarmanni og í horn.
54. mín
InnGuðjón Ernir Hrafnkelsson
ÚtEyþór Daði Kjartansson
53. mín
VÁÁ Ægir Jarl nálægt því!
Ægir Jarl með boltann út á hægri kanti hann keyrir inn frábærlega og á lúmskt skot sem fer rétt framhjá marki gestanna.
Frábærlega gert hjá Ægi!
Frábærlega gert hjá Ægi!
49. mín
Simen Kjellevold!
Tómas Bent á fyrirgjöf sem fer í gegnum alla vörn KR og boltinn fer á Arnar Breka sem er á fjærsvæðinu, hann tekur skotið en Simen Kjellevold lokar frábærlega á hann og ver skotið!
46. mín
Þvílíkt spil!
Eyjamenn með frábært spil í teig KR, sóknin endar með skoti frá Sverri Páli sem fer yfir.
46. mín
Síðari hálfleikur farinn hér af stað!
46. mín
InnOlav Öby
ÚtKennie Knak Chopart
Fyrirliðinn tekinn af velli í hálfleik. Sá hann ekki kveinka sér meðan leik stóð.
45. mín
Hálfleikur
Erlendur Eiríksson flautar til hálfleiks,
markalaust hér á Meistaravöllum en alls ekki leiðinlegur fyrri hálfleikur.
Bæði lið átt sín færi en hafa ekki nýtt þau nægilega vel.
markalaust hér á Meistaravöllum en alls ekki leiðinlegur fyrri hálfleikur.
Bæði lið átt sín færi en hafa ekki nýtt þau nægilega vel.
45. mín
Gult spjald
Tómas Bent Magnússon
Tómas stöðvar skyndisókn KR og fær að launum verðskuldað gult spjald.38. mín
Boltinn dettur fyrir Tómas Bent á vítateig KR-inga, Tómas krullar boltanum yfir mark heimamanna.
Fínasta færi ÍBV.
Fínasta færi ÍBV.
37. mín
Benoný dansar með boltann og rennir honum svo á Grétar Snæ sem er kominn í ágætis stöðu í teig gestanna. Grétar leggur boltann fyrir sig og hamrar honum svo rétt framhjá marki Eyjamanna.
34. mín
Atli Sigurjóns við það að sleppa í gegn en Richard King gerir vel og kemur boltanum í horn. Ekkert kemur úr horni KR-inga.
33. mín
Heimamenn fá þrjár hornspyrnur í röð en heimamenn ná ekki að nýta sér hornin nægilega vel.
21. mín
Stöngin!
Hermann Þór á frábæran bolta inn fyrir á Oliver Heiðars hann er kominn utarlega í teig KR-inga. Oliver lætur vaða og smellir hann boltanum í utanverða stöngina.
20. mín
Þvílík negla!
Benoný Breki langt fyrir utan teig á þrumuskot sem Guy Smit blakar yfir mark gestanna.
17. mín
Enn og aftur fá Eyjamenn horn en KR-ingar koma boltanum frá.
14. mín
Eyþór Daði sem skoraði úr aukaspyrnu í síðustu umferð tekur spyrnuna en hún fer beint í varnarmann KR og heimamenn koma hættunni frá.
13. mín
Gult spjald
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Oliver Heiðars er að keyra á fullri ferð í teig KR og Jói Bjarna brýtur á honum og fær verðskuldað gult spjald. ÍBV með aukaspyrnu á stórhættulegum stað.7. mín
ÍBV að fá fjórða hornið sitt, Ægir Jarl skallar frá.
5. mín
Gestirnir fá fyrsta horn leiksins, KR-ingar skalla boltann yfir og ÍBV fær annað horn. Boltinn berst á Richard King skallar boltann rétt framhjá!
2. mín
Benoný Breki sleppur inn fyrir en er flaggaður rangstæður.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Aron Þórður sparkar þessu af stað fyrir heimamenn.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn með Heyr mína bæn í græjunum, nú styttist í að veislan hefjist!
Fyrir leik
11. umferð Bestu deild karla hefst í dag. KR tekur á móti ÍBV.
— Besta deildin (@bestadeildin) June 10, 2023
???? Meistaravellir
?? 14:00
?? @KRreykjavik ???? @IBVsport
????? Miðasala á https://t.co/gOIMRhybun pic.twitter.com/OcgxOz5aYo
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin!
Rúnar Kristinsson þjálfari KR gerir 3 breytingar frá síðasta leik. Grétar Snær, Benoný Breki og Aron Þórður koma inn í byrjunarliðið. Þeir Olav Öby og Theodór Elmar taka sér sæti á bekknum en Kristinn Jónsson er utan hóps.
Hermann Hreiðarsson gerir tvær breytingar á liðinu. Tómas Bent og Eyþór Daði koma báðir í byrjunarliðið á kostnað Alex Freys og Elvis Bwomono en hann er í banni vegna uppsafnaðra spjalda.
Hermann Hreiðarsson gerir tvær breytingar á liðinu. Tómas Bent og Eyþór Daði koma báðir í byrjunarliðið á kostnað Alex Freys og Elvis Bwomono en hann er í banni vegna uppsafnaðra spjalda.
Fyrir leik
Gaupi spáir í spilin
Gaupi einhver ástælasti íþróttafréttamaður þjóðarinnar en hann las íþróttafréttir í síðasta skipti á Stöð 2 í lok síðasta mánaðar. Hann spáir heimamönnum sigri hér í dag.
KR 1 - 0 ÍBV
,,Þetta er athyglisverður leikur. Eyjamenn hafa verið í basli en mér fannst þeir byrja ágætlega og þeir litu prýðilega út. KR-ingarnir hafa svolítið verið að ná vopnum sínum, en þeir komust í undanúrslit í bikarnum. Þetta er leikur sem KR þarf að vinna ef þeir ætla að blanda sér í hóp sex efstu liða í deildinni. Vinni þeir ekki þennan leik, þá verður KR í neðri hluta deildarinnar það sem eftir lifir sumars. Kristján Flóki mun hjálpa þeim og ég spái því að hann skori.“

ÍBV með sannfærandi sigur í síðustu umferð
Eftir að hafa tapað 5 leikjum í röð unnu Eyjamenn frábæran 3-0 sigur gegn HK á Hásteinsvelli í síðustu umferð. Hermann Hreiðarsson hafði þetta að segja í viðtali eftir leik:
,,Þessi sigur sýnir karakterinn í klefanum því það er ekkert létt að tapa fimm leikjum og það er pressa og komnir á botninn en sýndi bara úr hverju menn eru gerðir og það eru bara alvöru menn þarna inn í klefanum.“
ÍBV er í 11. sæti deildarinnar með 9 stig eftir fyrstu 10 umferðirnar.

KR-ingar að komast á beinu brautina
Eftir hörmungarbyrjun á tímabilinu er KR að ná að rétta úr kútnum. KR-ingar komu sér í undanúrslit Mjólkurbikarsins á dögunum með 2-1 sigri á Stjörnunni, þar sem Ægir Jarl Jónasson gerði sigurmarkið á 104. mínútu í framlengingu.
Í 7. umferð var liðið á botni deildarinnar með 4 stig en nú eftir 10 umferðir er KR í 9. sæti með 11 stig. Flottur viðsnúningur hjá KR verður spennandi að sjá hvort að þeir nái að halda dampi hér í dag.

Góðan og blessaðan laugardaginn!
Heilir og sælir lesendur góðir og veriði velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Meistaravöllum, þar sem KR tekur á móti ÍBV í 11. umferð Bestu-deildar karla.

Hádramatískt 1-1 jafntefli hér á Meistaravöllum.
Viðtöl og skýrsla innan skams.