SKÝRSLAN: Sigurinn síst of stór á Skaganum
Hvað réði úrslitum?
ÍA er bara mikið betra fótboltalið en Ægir. Komast snemma í 2-0 og eftir það náðu Ægismenn fínum spilkafla en inn vildi boltinn ekki. Þriðja markið var rothögg fyrir Ægismenn og eftir það var ekki aftur snúið.
Bestu leikmenn
1. Viktor Jónsson
Viktor Jónsson er besti framherjinn í þessari deild. í þessari deild ertu tryggður í kringum 20 mörk frá honum. í dag setti hann 2 og hefði átt að skora fleiri en heppnin var ekki með honum.
2. Breki Þór Hermannsson
Var að gera vel fram á við. Hávaxinn leikmaður og hentar vel með Viktori. Leggur upp tvö mörk og hefði getað lagt upp fleiri en liðsfélagar hans voru ekki að nýta færin vel. Flottur leikur hjá honum í dag.
Atvikið
Þriðja mark ÍA var rothögg fyrir Ægismenn sem höfðu fengið fín færi fram að því. Eftir það var aðeins eitt lið á vellinum. Hlynur Sævar gerði vel í markinu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA eru aðeins einu stigi frá efsta sætinu. Ægismenn eru nú 11 stigum frá öruggu sæti og það styttist í svigann á það að þeir séu fallnir.
Vondur dagur
Maður sá hvað trúin á verkefninu var lítil hjá Ægismönnum. Þeir eru svo gott sem fallnir og það sést á spilamennsku liðsins.
Dómarinn - 8
Ekkert út á Aðalbjörn að setja í dag. Ekki erfiður leikur að dæma samt sem áður.



